1Og ég sá annað tákn á himni, mikið og undursamlegt: Sjö engla, sem höfðu sjö síðustu plágurnar, því að með þeim fullnaðist reiði Guðs.2Og ég leit sem glerhaf eldi blandið, og ég sá þá, sem unnið höfðu sigur á dýrinu og líkneski þess og á tölu nafns þess, standa við glerhafið og halda á hörpum Guðs.3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín, Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur, allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.5Og eftir þetta sá ég, að upp var lokið musterinu á himni, tjaldbúð vitnisburðarins.6Og út gengu úr musterinu englarnir sjö, sem höfðu plágurnar sjö, klæddir hreinu, skínandi líni og gyrtir gullbeltum um brjóst.7Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gullskálar, fullar reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda.8Og musterið fylltist af reyknum af dýrð Guðs og mætti hans, og enginn mátti inn ganga í musterið, uns fullnaðar væru þær sjö plágur englanna sjö.

15.1 Sjö englar Opb 16.1; 17.1; 21.9 – sjö plágur 3Mós 16.21
15.2 Glerhaf Opb 4.6 – líkneski og tala dýrsins Opb 13.16+
15.3 Söngur Móse 2Mós 15.1-18 – mikil og dásamleg 2Mós 15.11; Slm 111.2-4; 139.14 – alvaldur Opb 1.8+
15.3-4 Hver skyldi ekki … Jer 10.7
15.4 Allar þjóðir munu koma Slm 86.9; Mal 1.11
15.5 Vitnisburðartjaldbúðin 2Mós 38.21; 40.34; sbr Opb 11.19+
15.7 Skálar fullar reiði Guðs Opb 14.10+
15.8 Musterið fyllist af reiknum 2Mós 40.34-35; 1Kon 8.10-11; Jes 6.4