1Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi, en svar tungunnar kemur frá Drottni.2Manninum þykja allir sínir vegir hreinir, en Drottinn prófar hugarþelið.3Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.4Allt hefir Drottinn skapað til síns ákveðna marks, svo og guðleysingjann til óheilladagsins.5Sérhver hrokafullur maður er Drottni andstyggð, hér er höndin upp á það: hann sleppur ekki óhegndur!6Með elsku og trúfesti er friðþægt fyrir misgjörð, og fyrir ótta Drottins forðast menn hið illa.7Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns, þá sættir hann og óvini hans við hann.8Betra er lítið með réttu en miklar tekjur með röngu.9Hjarta mannsins upphugsar veg hans, en Drottinn stýrir gangi hans.10Goðsvar er á vörum konungsins, í dómi mun munni hans ekki skeika.11Rétt vog og reisla koma frá Drottni, lóðin á vogarskálunum eru hans verk.12Að fremja ranglæti er konungum andstyggð, því að hásætið staðfestist fyrir réttlæti.13Réttlátar varir eru yndi konunga, og þeir elska þann, er talar hreinskilni.14Konungsreiði er sem sendiboði dauðans, en vitur maður sefar hana.15Í mildilegu augnaráði konungs er líf, og hylli hans er sem vorregns-ský.16Hversu miklu betra er að afla sér visku en gulls og ákjósanlegra að afla sér hygginda en silfurs.17Braut hreinskilinna er að forðast illt, að varðveita sálu sína er að gæta breytni sinnar.18Drambsemi er undanfari tortímingar, og oflæti veit á fall.19Betra er að vera lítillátur með auðmjúkum en að skipta herfangi með dramblátum.20Sá sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drottni.21Sá sem er vitur í hjarta, verður hygginn kallaður, og sætleiki varanna eykur fræðslu.22Lífslind er hyggnin þeim, sem hana á, en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.23Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn og eykur fræðsluna á vörum hans.24Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.25Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.26Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum, því að munnur hans rekur á eftir honum.27Varmennið grefur óheillagröf, og á vörum hans er sem brennandi eldur.28Vélráður maður kveikir illdeilur, og rógberinn veldur vinaskilnaði.29Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn og leiðir hann á vondan veg.30Sá sem lokar augunum, upphugsar vélræði, sá sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.31Gráar hærur eru heiðurskóróna, á vegi réttlætis öðlast menn hana.32Sá sem seinn er til reiði, er betri en kappi, og sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá sem vinnur borgir.33Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir, en Drottinn ræður, hvað upp kemur.

16.2 Drottinn reynir ásetning Okv 21.2, 1Sam 2.3; Job 31.6; Lúk 16.15
16.4 Óheilladagurinn Okv 11.4+
16.6 Misgerðir afplánaðar Okv 10.12, 1Pét 4.8 – ótti Drottins Okv 8.13+
16.8 Lítið með réttu Okv 15.16; Slm 37.16; Tob 12.8-9
16.10 Ríkja með réttlæti Okv 31.4-5,8-9; 1Kon 3.28; Slm 72.1-4
16.11 Réttar vogir Okv 11.1+
16.16 Gildi spekinnar Okv 8.11+
16.20 Treysta Guði Okv 3.5-6+
16.27 Brennandi eldur Jak 3.6; Okv 13.3+