1Spádómur um öræfin við hafið. Eins og fellibyljir í suðurlandinu geysist það áfram, það kemur úr öræfunum, úr hinu hræðilega landi.2Hörð tíðindi hafa mér birt verið: Ránsmenn ræna, hermenn herja! Áfram, Elamítar! Gjörið umsát, Medíumenn! Ég gjöri enda á öllum andvörpum.3Þess vegna skjálfa lendar mínar, þess vegna hremma sárir verkir mig, eins og hríðir jóðsjúka konu. Ég engist saman, svo að ég heyri ekkert, ég er svo agndofa, að ég sé ekkert.4Hjarta mitt er ringlað, skelfing er skyndilega yfir mig komin. Nú er nóttin, sem ég jafnan hefi þráð, orðin mér að skelfingu.5Borðin eru sett fram og ábreiðurnar breiddar á hvílubekkina, etið er og drukkið. Rísið upp, þjóðhöfðingjar! Smyrjið skjölduna!6Svo sagði Drottinn við mig: Far þú og nem staðar á sjónarhólnum og seg, hvað þú sér.7Og sjáir þú menn á reið, tvo reiðmenn, annan ríðandi á asna, hinn á úlfalda, þá legg þú hlustirnar við.8En ég kallaði: Æ, Drottinn, á ég að standa allan daginn á sjónarhól og vera á varðbergi nótt eftir nótt?9En sjá, þá komu menn ríðandi, tveir reiðmenn. Og þeir tóku til orða og sögðu: Fallin, fallin er Babýlon, og allar goðalíkneskjur hennar liggja sundur brotnar á jörðinni.10Kramda og þreskta þjóðin mín, það sem ég hefi heyrt af Drottni allsherjar, Guði Ísraels, það hefi ég kunngjört yður.11Spádómur um Dúma. Það er kallað til mín frá Seír: Vökumaður, hvað líður nóttinni? Vökumaður, hvað líður nóttinni?12Vökumaðurinn svarar: Morgunninn kemur, og þó er nótt. Ef þér viljið spyrja, þá komið aftur og spyrjið.13Spádómur um Arabíu. Takið náttstað í kjarrinu að kveldi, þér kaupmannalestir Dedansmanna!14Komið út með vatn á móti hinum þyrstu, þér sem búið í Temalandi! Færið brauð flóttamönnunum!15Því þeir flýja undan sverðunum, undan brugðnu sverði, undan bendum boga, undan þunga ófriðarins.16Því að svo hefir Drottinn sagt við mig: Áður en eitt ár er liðið, eins og ár kaupamanna eru talin, skal öll vegsemd Kedars að engu verða,17og leifarnar, sem eftir verða af bogum Kedarínga kappa, munu verða teljandi, því að Drottinn, Ísraels Guð, hefir sagt það.

21.1 Gegn Babýlon Jes 13.1+ – hinu ógnvekjandi landi Jes 30.6; 5Mós 1.19; 8.15; Jer 2.6
21.3 Hríðir Jes 16.11
21.5 Lagt á borð Dan 5.1-4
21.6 Varðmaður 2Kon 9.17; Esk 33; Hab 2.1
21.9 Fallin er Babýlon Jer 51.8; Opb 18.2
21.10 Troðin Jes 28.28 – þresking Jes 41.15; Am 1.3; Mík 4.13; Hab 3.12; sbr Jer 51.33
21.11 Edóm 1Mós 25.14; 1Kro 1.30 – Seír 1Mós 14.6; 32.3; 5Mós 2.4 – vökumaður Esk 33.2,6; Slm 130.6
21.12 Morguninn kemur Jes 17.14; 2Kon 19.35; Slm 30.6; 46.6; Róm 13.12
21.13 Dedan 1Mós 10.7; 25.2-3; Jer 25.23; 49.8; Esk 25.13; 27.20; 38.13
21.16 Kedar Jes 42.11; 60.7; Jer 2.10; 49.28-33; Esk 27.21; Slm 120.5