1Sjálfir vitið þér, bræður, að koma vor til yðar varð ekki árangurslaus.2Yður er kunnugt, að vér höfðum áður þolað illt og verið misþyrmt í Filippí, en Guð gaf oss djörfung til að tala til yðar fagnaðarerindi Guðs, þótt baráttan væri mikil.3Boðun vor er ekki sprottin af villu né af óhreinum hvötum og vér reynum ekki að blekkja neinn.4En Guð hefur talið oss maklega þess að trúa oss fyrir fagnaðarerindinu. Því er það, að vér tölum ekki eins og þeir, er þóknast vilja mönnum, heldur Guði, sem rannsakar hjörtu vor.5Aldrei höfðum vér nein smjaðuryrði á vörum, það vitið þér. Og ekki bjó þar ásælni að baki, Guð er vottur þess.6Ekki leituðum vér vegsemdar af mönnum, hvorki yður né öðrum, þótt vér hefðum getað beitt myndugleika sem postular Krists.7Nei, vér vorum mildir yðar á meðal, eins og móðir, sem hlúir að börnum sínum.8Slíkt kærleiksþel bárum vér til yðar, að vér vildum glaðir gefa yður ekki einungis fagnaðarerindi Guðs, heldur og vort eigið líf því að þér voruð orðnir oss ástfólgnir.9Þér munið, bræður, eftir erfiði voru og striti: Vér unnum nótt og dag, til þess að vera ekki neinum yðar til þyngsla, um leið og vér prédikuðum fyrir yður fagnaðarerindi Guðs.10Þér og Guð, eruð vottar þess, hversu heilaglega, réttvíslega og óaðfinnanlega vér hegðuðum oss hjá yður, sem trúið.11Þér vitið, hvernig vér áminntum og hvöttum og grátbændum hvern og einn yðar, eins og faðir börn sín,12til þess að þér skylduð breyta eins og samboðið er Guði, er kallar yður til ríkis síns og dýrðar.13Og þess vegna þökkum vér líka Guði án afláts, því að þegar þér veittuð viðtöku því orði Guðs, sem vér boðuðum, þá tókuð þér ekki við því sem manna orði, heldur sem Guðs orði, eins og það í sannleika er. Og það sýnir kraft sinn í yður, sem trúið.14Þér hafið, bræður, tekið yður til fyrirmyndar söfnuði Guðs í Júdeu, sem eru í Kristi Jesú. Því að þér hafið þolað hið sama af löndum yðar sem þeir urðu að þola af Gyðingum,15er bæði líflétu Drottin Jesú og spámennina og hafa ofsótt oss. Þeir eru Guði eigi þóknanlegir og öllum mönnum mótsnúnir.16Þeir vilja meina oss að tala til heiðingjanna, til þess að þeir megi verða hólpnir. Þannig fylla þeir stöðugt mæli synda sinna. En reiðin er þá líka yfir þá komin um síðir.17En vér, bræður, sem um stundarsakir höfum verið skildir frá yður að líkamanum til en ekki huganum, höfum þráð yður mjög og gjört oss allt far um að fá að sjá yður aftur.18Þess vegna ætluðum vér að koma til yðar, ég, Páll, oftar en einu sinni, en Satan hefur hamlað því.19Hver er von vor eða gleði vor eða sigursveigurinn, sem vér hrósum oss af? Eruð það ekki einmitt þér, frammi fyrir Drottni vorum Jesú við komu hans?20Jú, þér eruð vegsemd vor og gleði.

2.1 Ekki árangurslaus 1Þess 1.5,9
2.2 Í Filippí Post 16.19-24 – barátta í Þessaloníku Post 17.1-5
2.4 Trúa mér fyrir fagnaðarerindinu 1Tím 1.11 – þóknast ekki mönnum heldur Guði Gal 1.10; 2Kor 5.9 – Guð rannskar hjörtun Jer 11.20
2.5 Smjaðuryrði 2Pét 2.3 – ásælni Post 20.33 – Guð er vottur 1Þess 2.10
2.6 Vegsemd Jóh 5.41,44
2.7 Eins og móðir Gal 4.19
2.8 Gefa eigið líf Jóh 15.13
2.9 Vann nótt og dag Post 18.3; 20.33-35; 1Kor 4.12; 1Þess 4.11; 2Þess 3.7-12 – ekki til þyngsla 2Kor 11.7-10; 12.13-18
2.11 Eins og faðir 1Kor 4.15
2.12 Samboðið Guði Ef 4.1-3+ ; Fil 1.27; 2Þess 1.5 – kallar til dýrðar sinnar 1Pét 5.10
2.13 Þökka án afláts 1Þess 1.2; 2Þess 1.3; 2.13 – veita viðtöku Mrk 4.16; Post 11.1 – orð Guðs Gal 1.11-12 – sýnir kraft sinn Fil 2.13
2.14 Til fyrirmyndar 1Þess 1.6+ – þolað hið sama Post 17.5,13
2.15 Líflétu bæði Jesú og spámennina Mrk 10.34; Post 2.23; 7.52 – hafa ofsótt okkur Post 9.23,29; 13.45,50; 14.2,5,19; 17.5,13; 18.12
2.16 Mælir syndanna 1Mós 15.16; Matt 23.32-33 – reiðin 1Þess 1.10+
2.19 Koma Drottins Jesú Matt 24.3; 1Kor 15.23; 1Þess 3.13; 5.23; 2Þess 1.7
2.20 Vegsemd vor og gleði Fil 2.16; 4.1; 2Þess 1.4