1Jósef var fluttur til Egyptalands, og Pótífar, hirðmaður Faraós og lífvarðarforingi, maður egypskur, keypti hann af Ísmaelítum, sem hann höfðu þangað flutt.2En Drottinn var með Jósef, svo að hann varð maður lángefinn, og hann var í húsi húsbónda síns, hins egypska manns.3Og er húsbóndi hans sá, að Drottinn var með honum og að Drottinn lét honum heppnast allt, sem hann tók sér fyrir hendur,4þá fann Jósef náð í augum hans og þjónaði honum. Og hann setti hann yfir hús sitt og fékk honum í hendur allt, sem hann átti.5Og upp frá þeirri stundu, er hann hafði sett Jósef yfir hús sitt og yfir allt, sem hann átti, blessaði Drottinn hús hins egypska manns sakir Jósefs, og blessun Drottins var yfir öllu, sem hann átti innan húss og utan.6Og hann fól Jósef til umráða allar eigur sínar og var afskiptalaus um allt hjá honum og gekk aðeins að máltíðum. Jósef var vel vaxinn og fríður sýnum.7Og eftir þetta bar svo til, að kona húsbónda hans renndi augum til Jósefs og mælti: Leggstu með mér!8En hann færðist undan og sagði við konu húsbónda síns: Sjá, húsbóndi minn lítur ekki eftir neinu í húsinu hjá mér, og allar eigur sínar hefir hann fengið mér í hendur.9Hann hefir ekki meira vald í þessu húsi en ég, og hann fyrirmunar mér ekkert nema þig, með því að þú ert kona hans. Hvernig skyldi ég þá aðhafast þessa miklu óhæfu og syndga á móti Guði?10Og þó að hún leitaði til við Jósef með þessum orðum dag eftir dag, þá lét hann ekki að vilja hennar að leggjast með henni og hafa samfarir við hana.11Þá bar svo til einn dag, er hann gekk inn í húsið til starfa sinna og enginn heimilismanna var þar inni,12að hún greip í skikkju hans og mælti: Leggstu með mér! En hann lét skikkjuna eftir í hendi hennar og flýði og hljóp út.13En er hún sá, að hann hafði látið eftir skikkjuna í hendi hennar og var flúinn út,14þá kallaði hún á heimafólk sitt og mælti við það: Sjáið, hann hefir fært oss hebreskan mann til þess að dára oss. Hann kom inn til mín og vildi hafa lagst með mér, en ég æpti hástöfum.15Og er hann heyrði, að ég hrópaði og kallaði, lét hann skikkju sína eftir hjá mér og flýði og hljóp út.16Því næst geymdi hún skikkju hans hjá sér þangað til húsbóndi hans kom heim.17Sagði hún honum þá sömu söguna og mælti: Hebreski þrællinn, sem þú hefir til vor haft, kom til mín til þess að dára mig.18En þegar ég hrópaði og kallaði, lét hann eftir skikkju sína hjá mér og flýði út.19Er húsbóndi hans heyrði orð konu sinnar, er hún talaði við hann svo mælandi: Þannig hefir þræll þinn hegðað sér við mig, þá varð hann ákaflega reiður.20Og húsbóndi Jósefs tók hann og setti hann í myrkvastofu, þar sem bandingjar konungs voru geymdir, og hann sat þar í myrkvastofunni.21Drottinn var með Jósef og veitti honum mannahylli og lét hann finna náð í augum forstjóra myrkvastofunnar.22Og forstjóri myrkvastofunnar fékk Jósef á vald alla bandingjana, sem voru í myrkvastofunni. Og hvað eina, sem þeir gjörðu þar, gjörðu þeir að hans fyrirlagi.23Forstjóri myrkvastofunnar leit ekki eftir neinu, sem var undir hans hendi, því að Drottinn var með honum. Og hvað sem hann gjörði, það lét Drottinn heppnast.

39.1 Jósef til Egyptalands Slm 105.16-19; SSal 10.13-14; Post 7.9-10
39.3 Drottinn var með honum 1Mós 26.3+ – heppnast allt 1Mós 39.23; 1Sam 18.14; Slm 1.3
39.6 Fríður sýnum 1Sam 16.12
39.7 Leggstu með mér Okv 7.1-27; Préd 7.26; 1Kor 6.13
39.9 Syndga á móti Guði 2Sam 12.13; Slm 51.6
39.12 Lagði á flótta Okv 5.8
39.15 Hrópa VDan 1.24
39.19 Reiddist mjög Okv 6.29-35
39.21 Drottin var með Jósef 1Mós 26.3+