1Eftir Abímelek reis upp Tóla Púason, Dódóssonar, maður af Íssakar, til að frelsa Ísrael. Hann bjó í Samír á Efraímfjöllum,2og var hann dómari í Ísrael í tuttugu og þrjú ár. Síðan andaðist hann og var grafinn í Samír.3Eftir hann reis upp Jaír Gíleaðíti og var dómari í Ísrael í tuttugu og tvö ár.4Hann átti þrjátíu sonu, sem riðu á þrjátíu ösnufolum, þeir áttu þrjátíu borgir. Eru þær kallaðar Jaírs-þorp allt fram á þennan dag. Þær liggja í Gíleaðlandi.5Síðan andaðist Jaír og var grafinn í Kamón.6Ísraelsmenn gjörðu enn að nýju það, sem illt var í augum Drottins, og dýrkuðu Baala og Astörtur, guði Arams, guði Sídonar, guði Móabs, guði Ammóníta og guði Filista, og yfirgáfu Drottin og dýrkuðu hann ekki.7Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael, og hann seldi þá í hendur Filistum og í hendur Ammónítum.8Og þeir þjáðu og þjökuðu Ísraelsmenn það ár. Í átján ár þjökuðu þeir alla Ísraelsmenn, sem bjuggu hinumegin Jórdanar í landi Amoríta, þá er bjuggu í Gíleað.9Enn fremur fóru Ammónítar yfir Jórdan til þess að herja einnig á Júda, Benjamín og Efraíms hús, svo að Ísrael komst í miklar nauðir.10Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins og sögðu: Vér höfum syndgað móti þér, því að vér höfum yfirgefið Guð vorn og dýrkað Baala.11En Drottinn sagði við Ísraelsmenn: Hafa ekki Egyptar, Amorítar, Ammónítar, Filistar,12Sídoningar, Amalekítar og Midíanítar kúgað yður? Þá hrópuðuð þér til mín og ég frelsaði yður úr höndum þeirra.13En þér hafið yfirgefið mig og dýrkað aðra guði. Fyrir því vil ég eigi framar hjálpa yður.14Farið og hrópið til guða þeirra, er þér hafið kjörið. Hjálpi þeir yður, þegar þér eruð í nauðum.15Þá sögðu Ísraelsmenn við Drottin: Vér höfum syndgað. Gjör við oss rétt sem þér líkar, frelsa oss aðeins í dag.16Síðan köstuðu þeir burt frá sér útlendu guðunum og dýrkuðu Drottin. Eirði hann þá illa eymd Ísraels.17Þá var Ammónítum stefnt saman, og settu þeir herbúðir sínar í Gíleað. Og Ísraelsmenn söfnuðust saman og settu herbúðir sínar í Mispa.18En lýðurinn, höfðingjarnir í Gíleað sögðu hver við annan: Hver er sá maður, er fyrstur vill hefja ófrið við Ammóníta? Hann skal vera höfðingi yfir öllum Gíleaðbúum!

10.1 Tóla, Púa 1Mós 46.13; 4Mós 26.23; 1Kro 7.1 – Efraímfjöll Dóm 3.27+
10.3 Jaír frá Gíleað 4Mós 32.41; 5Mós 3.14; 1Kon 4.13; 1Kro 2.20-23
10.4 Þrjátíu synir sbr Dóm 8.30; 12.14
10.6 Illt í augum Drottins 5Mós 4.25+ – Baalar og Astörtur Dóm 2.13+ – yfirgáfu Drottin Dóm 2.12; 3.7
10.7 Reiði Drottins … seldi þá Dóm 2.14+
10.10 Hróp til Drottins Dóm 3.9,15; 4.3; 6.6 – við höfum syndgað 5Mós 1.41; 1Sam 12.10; 1Kon 8.47; Slm 106.6; Dan 9.5; Bar 1.17
10.12 Amalek og Midían Dóm 3.13+ ; 6.1+,3 – ég frelsaði ykkur Dóm 2.16; 3.9,15; 6.9,14; 10.1
10.13 Aðrir guðir 2Mós 20.3+
10.14 Hjálpi þeir 5Mós 32.37-38; Jer 2.28
10.15 Vér höfum syndgað v.10+
10.16 Köstuðu frá sér 1Mós 35.2,4; Jós 24.23; 1Sam 7.3-4 – hremmingar Ísraels sbr 2Mós 3.7,9