1Orð prédikarans, sonar Davíðs, konungs í Jerúsalem.2Aumasti hégómi, segir prédikarinn, aumasti hégómi, allt er hégómi!3Hvaða ávinning hefir maðurinn af öllu striti sínu, er hann streitist við undir sólinni?4Ein kynslóðin fer og önnur kemur, en jörðin stendur að eilífu.5Og sólin rennur upp, og sólin gengur undir og hraðar sér til samastaðar síns, þar sem hún rennur upp.6Vindurinn gengur til suðurs og snýr sér til norðurs, hann snýr sér og snýr sér og fer aftur að hringsnúast á nýjan leik.7Allar ár renna í sjóinn, en sjórinn verður aldrei fullur, þangað sem árnar renna, þangað halda þær ávallt áfram að renna.8Allt er sístritandi, enginn maður fær því með orðum lýst, augað verður aldrei satt af að sjá, og eyrað verður aldrei mett af að heyra.9Það sem hefir verið, það mun verða, og það sem gjörst hefir, það mun gjörast, og ekkert er nýtt undir sólinni.10Sé nokkuð til, er um verði sagt: sjá, þetta er nýtt þá hefir það orðið fyrir löngu, á tímum sem á undan oss voru.11Forfeðranna minnast menn eigi, og ekki verður heldur eftirkomendanna, sem síðar verða uppi, minnst meðal þeirra, sem síðar verða.12Ég, prédikarinn, var konungur yfir Ísrael í Jerúsalem.13Ég lagði allan hug á að rannsaka og kynna mér með hyggni allt það, er gjörist undir himninum: Það er leiða þrautin, sem Guð hefir fengið mönnunum að þreyta sig á.14Ég hefi séð öll verk, sem gjörast undir sólinni, og sjá: Allt var hégómi og eftirsókn eftir vindi.15Hið bogna getur ekki orðið beint, og það sem skortir verður eigi talið.16Ég hugsaði með sjálfum mér: Sjá, ég hefi aflað mér meiri og víðtækari speki en allir þeir, er ríkt hafa yfir Jerúsalem á undan mér, og hjarta mitt hefir litið speki og þekkingu í ríkum mæli.17Og er ég lagði allan hug á að þekkja speki og að þekkja flónsku og heimsku, þá komst ég að raun um, að einnig það var að sækjast eftir vindi.18Því að mikilli speki er samfara mikil gremja, og sá sem eykur þekking sína, eykur kvöl sína.

1.2 Aumasti hégómi Slm 62.10; Róm 8.20
1.3 Hvaða gagn? Préd 2.20-22; 3.9-11
1.4 Ein kynslóð fer … Sír 14.18
1.7 Halda áfram Sír 40.11
1.11 Minnast ekki Préd 2.16+
1.14 Hégómi Préd 2.11,17,26; 4.4,16; 6.9; 11.8,10; sbr 1.3+
1.16 Speki Salómons 1Kon 3.12; 5.9-10; 10.1-13,23-24; Sír 47.14-17