1Svo bar við, er Jesús var á stað einum að biðjast fyrir, að einn lærisveina hans sagði við hann, þá er hann lauk bæn sinni: Herra, kenn þú oss að biðja, eins og Jóhannes kenndi lærisveinum sínum.2En hann sagði við þá: Þegar þér biðjist fyrir, þá segið: Faðir, helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,3gef oss hvern dag vort daglegt brauð.4Fyrirgef oss vorar syndir, enda fyrirgefum vér öllum vorum skuldunautum. Og eigi leið þú oss í freistni.5Og hann sagði við þá: Nú á einhver yðar vin og fer til hans um miðnætti og segir við hann: Vinur, lánaðu mér þrjú brauð,6því að vinur minn er kominn til mín úr ferð og ég hef ekkert að bera á borð fyrir hann.7Mundi hinn þá svara inni: Gjör mér ekki ónæði. Það er búið að loka dyrum og börn mín og ég komin í rúmið. Ég get ekki farið á fætur að fá þér brauð?8Ég segi yður, þótt hann fari ekki á fætur og fái honum brauð vegna vinfengis þeirra, þá fer hann samt fram úr sakir áleitni hans og fær honum eins mörg og hann þarf.9Og ég segi yður: Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.10Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.11Er nokkur sá faðir yðar á meðal, að hann gefi syni sínum, er biður um fisk, höggorm í staðinn,12eða sporðdreka, ef hann biður um egg?13Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda, sem biðja hann.14Jesús var að reka út illan anda, og var sá mállaus. Þegar illi andinn var út farinn, tók málleysinginn að mæla, og undraðist mannfjöldinn.15En sumir þeirra sögðu: Með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda, rekur hann út illu andana.16En aðrir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.17En hann vissi hugrenningar þeirra og sagði við þá: Hvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt, leggst í auðn, og hús fellur á hús.18Sé nú Satan sjálfum sér sundurþykkur, hvernig fær ríki hans þá staðist fyrst þér segið, að ég reki illu andana út með fulltingi Beelsebúls?19En reki ég illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar.20En ef ég rek illu andana út með fingri Guðs, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.21Þegar sterkur maður, alvopnaður, varðveitir hús sitt, þá er allt í friði, sem hann á,22en ráðist annar honum sterkari á hann og sigri hann, tekur sá alvæpni hans, er hann treysti á, og skiptir herfanginu.23Hver sem er ekki með mér, er á móti mér, og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir.24Þegar óhreinn andi fer út af manni, reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis. Og er hann finnur það ekki, segir hann: Ég vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór.25Og er hann kemur og finnur það sópað og prýtt,26fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri, og þeir fara inn og setjast þar að, og verður svo hlutur þess manns verri eftir en áður.27Er hann mælti þetta, hóf kona ein í mannfjöldanum upp rödd sína og sagði við hann: Sæll er sá kviður, er þig bar, og þau brjóst, er þú mylktir.28Hann sagði: Já, því sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.29Þegar fólkið þyrptist þar að, tók hann svo til orða: Þessi kynslóð er vond kynslóð. Hún heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar.30Því Jónas varð Ninívemönnum tákn, og eins mun Mannssonurinn verða þessari kynslóð.31Drottning Suðurlanda mun rísa upp í dóminum ásamt mönnum þessarar kynslóðar og sakfella þá, því að hún kom frá endimörkum jarðar að heyra speki Salómons, og hér er meira en Salómon.32Ninívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og sakfella hana, því að þeir gjörðu iðrun við prédikun Jónasar, og hér er meira en Jónas.33Enginn kveikir ljós og setur það í felur né undir mæliker, heldur á ljósastiku, svo að þeir, sem inn koma, sjái ljósið.34Auga þitt er lampi líkamans. Þegar auga þitt er heilt, þá er og allur líkami þinn bjartur, en sé það spillt, þá er og líkami þinn dimmur.35Gæt því þess, að ljósið í þér sé ekki myrkur.36Sé því líkami þinn allur bjartur og hvergi myrkur í honum, verður hann allur í birtu, eins og þegar lampi lýsir á þig með loga sínum.37Þá er hann hafði þetta mælt, bauð farísei nokkur honum til dagverðar hjá sér. Hann kom og settist til borðs.38Faríseinn sá, að hann tók ekki handlaugar á undan máltíðinni, og furðaði hann á því.39Drottinn sagði þá við hann: Þér farísear, þér hreinsið bikarinn og fatið utan, en hið innra eruð þér fullir yfirgangs og illsku.40Þér heimskingjar, hefur sá, sem gjörði hið ytra, ekki einnig gjört hið innra?41En gefið fátækum það, sem í er látið, og þá er allt yður hreint.42En vei yður, þér farísear! Þér gjaldið tíund af myntu og rúðu og alls kyns matjurtum, en hirðið ekki um réttlæti og kærleika Guðs. Þetta ber að gjöra og hitt eigi ógjört að láta.43Vei yður, þér farísear! Yður er ljúft að skipa æðsta bekk í samkundum og láta heilsa yður á torgum.44Vei yður, því þér eruð eins og duldar grafir, sem menn ganga yfir án þess að vita.45Þá tók lögvitringur einn til orða: Meistari, þú meiðir oss líka með því, sem þú segir.46En Jesús mælti: Vei yður líka, þér lögvitringar! Þér leggið á menn lítt bærar byrðar, og sjálfir snertið þér ekki byrðarnar einum fingri.47Vei yður! Þér hlaðið upp grafir spámannanna, sem feður yðar líflétu.48Þannig berið þér vitni um athafnir feðra yðar og samþykkið þær. Þeir líflétu þá, en þér hlaðið upp grafirnar.49Þess vegna hefur og speki Guðs sagt: Ég mun senda þeim spámenn og postula, og suma þeirra munu þeir lífláta og ofsækja.50Þannig verður kynslóð þessi krafin um blóð allra spámannanna, er úthellt hefur verið frá grundvöllun heims,51frá blóði Abels til blóðs Sakaría, sem drepinn var milli altarisins og musterisins. Já, segi ég yður, þess mun krafist verða af þessari kynslóð.52Vei yður, þér lögvitringar! Þér hafið tekið brott lykil þekkingarinnar. Sjálfir hafið þér ekki gengið inn, og þeim hafið þér varnað, sem inn vildu ganga.53Og er hann var farinn út þaðan, tóku fræðimenn og farísear að ganga hart að honum og spyrja hann í þaula um margt54og sitja um að veiða eitthvað af vörum hans.

11.1-13 Hlst. Matt 6.9-15; 7.7-11
11.1 Jesús biðst fyrir Matt 14.23+ ; Mrk 6.46+ ; Lúk 3.21+ – eins og Jóhannes kenndi Jóh 5.33 – lærisveinar Jóhannesar Matt 9.14+
11.2 Faðir Lúk 10.21; 22.42; 23.34,46 – heligst þitt nafn Matt 6.9+ – þitt ríki Matt 6.10+
11.4 Fyrirgefning synda Matt 26.28+ – gefa upp skuldir Matt 18.24-27 – fyrirgefning Matt 18.35+ – freistni Matt 6.13+
11.7 Ger mér ekki ónæði Matt 26.10; Lúk 18.5; Gal 6.17
11.8 Sakir áleitni hans Lúk 18.5
11.14-23 Hlst. Matt 12.22-30; Mrk 3.20-27
11.14 Mállaus andi Mrk 9.17-25
11.15 Beelsebúl Matt 10.25+ – höfðingi illra anda Matt 9.34 – með fulltingi Beelsebúls Matt 9.34; 12.24; Mrk 3.22
11.16 Jesú freistað Lúk 10.25+ – tákn af himni Matt 12.38+ ; Mrk 8.11 – af himni (frá Guði) Lúk 15.7,18,21; 20.4; sbr Matt 3.2+
11.18 Satan Mrk 1.13+
11.20 Fingur Guðs 2Mós 8.15
11.22 Sterkari Lúk 3.16
11.23 Með eða á móti Jesú Matt 12.30; Mrk 9.40; sbr Lúk 9.50
11.24-26 Hlst. Matt 12.43-45
11.24 Eyðihrjóstur Lúk 8.29+
11.26 Verri Jóh 5.14
11.27 Sæll Matt 5.3+ – … er þig bar Lúk 1.31,42,48
11.28 Heyra Guðs orð Lúk 8.21
11.29-32 Hlst. Matt 12.38-42; Mrk 8.12
11.29 Þessi kynslóð Matt 12.39+ – heimta tákn 1Kor 1.22; sbr Lúk 7.22; 11.20 – tákn Jónasar Jón 3.2-5; Matt 16.4; sbr Matt 12.40
11.30 Mannssonurinn Matt 8.20+
11.31 Drottning Suðurlanda 1Kon 10.1-10 – speki Lúk 2.40,52; 21.15 – Salómon 1Kon 3; 5.9-14
11.32 Sinnaskipti Lúk 3.3 – Ninívemenn Jón 3.5,8,10
11.33-36 Hlst. Matt 5.15; 6.22-23
11.37-54 Hlst. Matt 23.1-36; Mrk 12.38-40; Lúk 20.45-47
11.37 Í boði farísea Lúk 7.36; 14.1
11.38 Þvoði ekki hendur Matt 15.2,20
11.41 Gefa Lúk 6.30 og hlst.; 12.33; 16.9; 18.22 og hlst.; 19.8; 21.1-4 og hlst.; Post 9.36; 10.2,4,31; 11.29; 24.17
11.42 Vei … Matt 11.21+ ; Lúk 6.24+ – tíund 3Mós 27.30; 5Mós 14.22-23
11.45 Lögvitringur Lúk 7.30+
11.49 Speki Guðs Lúk 7.35+ – spámönnum og postulum misþyrmt Lúk 6.23+
11.50 Krafin um blóð 1Mós 9.5; 42.22; 2Sam 4.11; Slm 9.13; Esk 33.6,8
11.51 Blóð Abels 1Mós 4.8 – blóð Sakaría 2Kro 24.20-21
11.54 Veiða í oðrum Matt 16.1; 19.3; 22.15,35; Lúk 20.20