1Svikavog er Drottni andstyggð, en full vog yndi hans.2Komi hroki, kemur smán, en hjá lítillátum er viska.3Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá, en undirferli svikulla tortímir þeim.4Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar, en réttlæti frelsar frá dauða.5Réttlæti hins ráðvanda gjörir veg hans sléttan, en hinn óguðlegi fellur um guðleysi sitt.6Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá, en hinir svikulu ánetjast í eigin græðgi.7Þegar óguðlegur maður deyr, verður von hans að engu, og eftirvænting glæpamannanna er að engu orðin.8Hinn réttláti frelsast úr nauðum, og hinn óguðlegi kemur í hans stað.9Með munninum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun, en hinir réttlátu frelsast fyrir þekkingu.10Borgin fagnar yfir gæfu réttlátra, og þegar óguðlegir farast, gjalla gleðiópin.11Borgin hefst fyrir blessun hreinskilinna, en fyrir munn óguðlegra steypist hún.12Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir.13Sá er gengur um sem rógberi, lýstur upp leyndarmálum, en sá sem er staðfastur í lund, leynir sökinni.14Þar sem engin stjórn er, þar fellur þjóðin, en þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.15Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl, er óhultur.16Yndisleg kona hlýtur sæmd, og hinir sterku hljóta auðæfi.17Kærleiksríkur maður gjörir sálu sinni gott, en hinn grimmi kvelur sitt eigið hold.18Hinn óguðlegi aflar sér svikuls ávinnings, en sá er réttlæti sáir, sannra launa.19Iðki einhver réttlæti, þá leiðir það til lífs, en ef hann eltir hið illa, leiðir það hann til dauða.20Andstyggð fyrir Drottni eru þeir, sem hafa rangsnúið hjarta, en yndi hans þeir, er breyta ráðvandlega.21Hér er höndin upp á það: Hinn vondi sleppur ekki óhegndur! en niðjar réttlátra komast undan.22Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann.23Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs, en vonir óguðlegra leiða yfir sig reiðidóm.24Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari.25Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta.26Fólkið formælir þeim, sem heldur í kornið, en blessun kemur yfir höfuð þess, er selur það.27Sá sem leitar góðs, stundar það, sem velþóknanlegt er, en sá sem sækist eftir illu, verður fyrir því.28Sá sem treystir á auð sinn, hann fellur, en hinir réttlátu munu grænka eins og laufið.29Sá sem kemur ólagi á heimilishag sinn, erfir vind, og afglapinn verður þjónn hins vitra.30Ávöxtur hins réttláta er lífstré, og hinn vitri hyllir að sér hjörtun.31Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu, hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn?

11.1 Rétt vog 3Mós 19.36+ ; Mík 6.9-12, sbr Sír 26.29-27.3
11.2 Hógværir Okv 3.34; 15.33; 16.19; 22.4; 29.23; sbr Okv 21.24
11.4 Dagur reiði Jes 13.13, Sef 1.14-18; Slm 110.5
11.9 Með orðum Okv 12.6+
11.11 Blessun 1Mós 12.2-3; Júdt 13.18-20; sbr Okv 10.6-7+
11.14 Margir ráðgjafar Okv 15.22; 24.6; SSal 6.24; sbr Okv 29.16
11.15 Handsöl Okv 6.1-5+
11.19 Réttlæti til lífs Okv 10.11+
11.23 Vonir ranglátra Okv 10.28+
11.25 Örlæti Okv 14.21+
11.28 Þrífast Slm 1.3
11.30 Réttlæti og líf Okv 10.11+
11.31 Endurgjald hins réttláta Okv 10.6-7+ ; 11.21,24; Slm 37.25,26; sbr Okv 8.35+ ; 13.13+ – og syndarans Okv 11.21; 1Pét 4.18