1Á fyrsta ríkisári Kýrusar Persakonungs blés Drottinn honum því í brjóst til þess að orð Drottins fyrir munn Jeremía rættust að láta boð út ganga um allt ríki sitt, og það í konungsbréfi, á þessa leið:2Svo segir Kýrus Persakonungur: Öll konungsríki jarðarinnar hefir Drottinn, Guð himnanna, gefið mér, og hann hefir skipað mér að reisa sér musteri í Jerúsalem í Júda.3Hver sá meðal yðar, sem tilheyrir þjóð hans, með honum sé Guð hans, og hann fari heim til Jerúsalem í Júda og reisi musteri Drottins, Ísraels Guðs. Hann er sá Guð, sem býr í Jerúsalem.4Og hvern þann, sem enn er eftir, á sérhverjum þeim stað þar sem hann dvelst sem útlendingur, hann skulu menn á þeim stað styrkja með silfri og gulli og lausafé og kvikfénaði, auk sjálfviljagjafa til Guðs musteris í Jerúsalem.5Þá tóku ætthöfðingjar Júda og Benjamíns og prestarnir og levítarnir sig upp allir þeir, er Guð hafði blásið því í brjóst að fara og reisa musteri Drottins í Jerúsalem.6Og allir nágrannar þeirra hjálpuðu þeim um áhöld úr silfri, um gull, um lausafé og um kvikfénað og um gersemar, auk alls þess, er menn gáfu sjálfviljuglega.7Kýrus konungur lét af hendi kerin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnesar hafði flutt burt frá Jerúsalem og sett í musteri guðs síns.8Kýrus Persakonungur fékk þau í hendur Mítredat féhirði, og hann taldi þau út í hendur Sesbasar, höfðingja Júdaættkvíslar.9En talan á þeim var þessi: 30 gullskálar, 1.000 silfurskálar, 29 pönnur,1030 könnur af gulli, silfurkönnur minni háttar: 410, önnur ker 1.000 _11öll kerin af gulli og silfri til samans 5.400. Allt þetta flutti Sesbasar með sér, þá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babýlon heim til Jerúsalem.

1.1 Kýrus Jes 44.28-45.6
1.4 Gjafir til musterisins Esr 7.15-16; 8.25-30; 2Mós 25.2-3+
1.6 Frjálsum vilja 2Mós 11.2-3; 12.35-36