1Nú sá ég engil stíga niður af himni. Hann hélt á lykli undirdjúpsins og stórum fjötri í hendi sér.2Og hann tók drekann, þann gamla höggorm, sem er djöfull og Satan, og batt hann um þúsund ár.3Hann kastaði honum í undirdjúpið og læsti og setti innsigli yfir, svo að hann leiddi ekki framar þjóðirnar afvega, allt til þess er fullnuðust þúsund árin. Eftir það á hann að vera leystur um stuttan tíma.4Og ég sá hásæti og menn settust í þau og dómsvald var þeim fengið, og ég sá sálir þeirra, sem hálshöggnir höfðu verið sakir vitnisburðar Jesú og sakir orðs Guðs. Það voru þeir hinir sömu sem höfðu ekki tilbeðið dýrið né líkneski þess og ekki fengið merki á enni sér og hönd. Og þeir lifnuðu og ríktu með Kristi um þúsund ár.5En aðrir dauðir lifnuðu ekki fyrr en þúsund árin voru liðin. Þetta er fyrri upprisan.6Sæll og heilagur er sá, sem á hlut í fyrri upprisunni. Yfir þeim hefur hinn annar dauði ekki vald, heldur munu þeir vera prestar Guðs og Krists og þeir munu ríkja með honum um þúsund ár.7Þegar þúsund árin eru liðin, mun Satan verða leystur úr fangelsi sínu.8Og hann mun út ganga til að leiða þjóðirnar afvega, þær sem eru á fjórum skautum jarðarinnar, Góg og Magóg, og safna þeim saman til stríðs, og tala þeirra er sem sandur sjávarins.9Og þeir stigu upp á víðan völl jarðar og umkringdu herbúðir heilagra og borgina elskuðu. En eldur féll af himni ofan og eyddi þeim.10Og djöflinum, sem leiðir þá afvega, var kastað í díkið elds og brennisteins, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn. Og þeir munu kvaldir verða dag og nótt um aldir alda.11Og ég sá mikið hvítt hásæti og þann, sem í því sat. Og fyrir ásjónu hans hvarf himinn og jörð og þeirra sá engan stað.12Og ég sá þá dauðu, stóra og smáa, standa frammi fyrir hásætinu, og bókum var lokið upp. Og annarri bók var lokið upp og það er lífsins bók. Og hinir dauðu voru dæmdir, eftir því sem ritað var í bókunum, samkvæmt verkum þeirra.13Og hafið skilaði hinum dauðu, þeim sem í því voru, og dauðinn og Hel skiluðu þeim dauðu, sem í þeim voru, og sérhver var dæmdur eftir verkum sínum.14Og dauðanum og Helju var kastað í eldsdíkið. Þetta er hinn annar dauði, eldsdíkið.15Og ef einhver fannst ekki skráður í lífsins bók, var honum kastað í eldsdíkið.

20.1 Undirdjúpið Opb 9.1+
20.2 Hinn gamli höggormur Opb 12.9+
20.4 Hásæti Dan 7.9,22,27; Matt 19.28; Lúk 22.30; 1Kor 6.2 – píslarvottar Opb 6.9+ – orð Guðs og vitnisburður Jesú Opb 1.2+ – dýrið tilbeðið Opb 13.8+ – merki dýrsins Opb 13.16+ – ríkja með Kristi Opb 5.10+
20.6 Hinn annar dauði Opb 2.11+ – prestar Opb 1.6+
20.8 Fjögur skaut jarðar Opb 7.1+
20.9 Umkringdu borgina Lúk 21.20,24
20.10 Díki elds Opb 19.20+
20.12 Bækur Dan 7.10 – lífsins bók Opb 3.5+ – eftir verkum sínum Opb 2.23+
20.14 Dauðanum kastað í eldsdíkið 1Kor 15.26,54; Opb 21.4