1Þá vakti engillinn, er við mig talaði, mig aftur, eins og þegar maður er vakinn af svefni,2og sagði við mig: Hvað sér þú? Ég svaraði: Ég sé ljósastiku, og er öll af gulli. Ofan á henni er olíuskál og á henni eru sjö lampar og sjö pípur fyrir lampana.3Og hjá ljósastikunni standa tvö olíutré, annað hægra megin við olíuskálina, hitt vinstra megin.4Þá tók ég til máls og sagði við engilinn, sem við mig talaði: Hvað merkir þetta, herra minn?5Og engillinn, sem við mig talaði, svaraði og sagði við mig: Veistu ekki, hvað þetta merkir? Ég svaraði: Nei, herra minn!6Þá tók hann til máls og sagði við mig: Þetta eru orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! segir Drottinn allsherjar.7Hver ert þú, stóra fjall? Fyrir Serúbabel skalt þú verða að sléttu. Og hann mun færa út hornsteininn, og þá munu kveða við fagnaðaróp: Dýrlegur, dýrlegur er hann!8Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:9Hendur Serúbabels hafa lagt grundvöll þessa húss, hendur hans munu og fullgjöra það. Og þá skaltu viðurkenna, að Drottinn allsherjar hefir sent mig til yðar.10Því að allir þeir, sem lítilsvirða þessa litlu byrjun, munu horfa fagnandi á blýlóðið í hendi Serúbabels. Þessir sjö lampar eru augu Drottins, sem líta yfir gjörvalla jörðina.11Þá tók ég til máls og sagði við hann: Hvað merkja þessi tvö olíutré, hægra og vinstra megin ljósastikunnar?12Og ég tók annað sinn til máls og sagði við hann: Hvað merkja þær tvær olíuviðargreinar, sem eru við hliðina á þeim tveimur gullpípum, sem láta olífuolíu streyma út úr sér?13Þá sagði hann við mig: Veistu ekki, hvað þær merkja? Ég svaraði: Nei, herra minn!14Þá sagði hann: Það eru þeir tveir smurðu, er standa frammi fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.

4.2 Hvað sérðu? Sak 5.2; Jer 1.11-13; Am 7.8; 8.2 – ljósastika 2Mós 25.31; 1Kon 7.49; Opb 2.1
4.6 Serúbabel Hag 1.1+ – ekki með valdi né krafti 1Sam 17.47; Jes 31.1; Hós 1.7; Slm 20.8; 33.16
4.7 Hornsteinn Jes 28.16; 1Pét 2.4
4.9 Hlutverk Sakaría Sak 2.12+
4.10 Smá verk Hag 2.3-5
4.14 Drottinn gjörvallrar jarðar Sak 6.5; Opb 11.4