1Jósef gat þá ekki lengur haft stjórn á sér í augsýn allra, sem viðstaddir voru, og kallaði: Látið alla ganga út frá mér! Og enginn maður var inni hjá honum, þegar hann sagði bræðrum sínum hver hann væri.2Og hann grét hástöfum, svo að Egyptar heyrðu það, og hirðmenn Faraós heyrðu það.3Jósef mælti við bræður sína: Ég er Jósef. Er faðir minn enn á lífi? En bræður hans gátu ekki svarað honum, svo hræddir urðu þeir við hann.4Og Jósef sagði við bræður sína: Komið hingað til mín! Og þeir gengu til hans. Hann mælti þá: Ég er Jósef bróðir yðar, sem þér selduð til Egyptalands.5En látið það nú ekki fá yður hryggðar, og setjið það ekki fyrir yður, að þér hafið selt mig hingað, því að til lífs viðurhalds hefir Guð sent mig hingað á undan yður.6Því að nú hefir hallærið verið í landinu í tvö ár, og enn munu líða svo fimm ár, að hvorki verði plægt né uppskorið.7En Guð hefir sent mig hingað á undan yður til þess að halda við kyni yðar á jörðinni og sjá lífi yðar borgið, til mikils hjálpræðis.8Það er því ekki þér, sem hafið sent mig hingað, heldur Guð. Og hann hefir látið mig verða Faraó sem föður og herra alls húss hans og höfðingja yfir öllu Egyptalandi.9„Hraðið yður nú og farið heim til föður míns og segið við hann: Svo segir Jósef sonur þinn: Guð hefir gjört mig að herra alls Egyptalands; kom þú til mín og tef eigi.“10Og þú skalt búa í Gósenlandi og vera í nánd við mig, þú og synir þínir og sonasynir þínir og sauðfé þitt og nautgripir þínir og allt, sem þitt er.11En ég skal sjá þér þar fyrir viðurværi, því að enn verður hallæri í fimm ár, svo að þú komist ekki í örbirgð, þú og þitt hús og allt, sem þitt er.12Og nú sjá augu yðar, og augu Benjamíns bróður míns sjá, að ég með eigin munni tala við yður.13Og segið föður mínum frá allri vegsemd minni á Egyptalandi og frá öllu, sem þér hafið séð, og flýtið yður nú og komið hingað með föður minn.14Og hann féll um háls Benjamín bróður sínum og grét, og Benjamín grét um háls honum.15Og hann minntist við alla bræður sína, faðmaði þá og grét. Eftir það töluðu bræður hans við hann.16Þau tíðindi bárust til hirðar Faraós: Bræður Jósefs eru komnir! Og lét Faraó og þjónar hans vel yfir því.17Og Faraó sagði við Jósef: Seg þú við bræður þína: Þetta skuluð þér gjöra: Klyfjið eyki yðar og haldið af stað og farið til Kanaanlands.18Takið föður yðar og fjölskyldur yðar og komið til mín, og skal ég gefa yður bestu afurðir Egyptalands, og þér skuluð eta feiti landsins.19Og bjóð þú þeim: Gjörið svo: Takið yður vagna í Egyptalandi handa börnum yðar og konum yðar og flytjið föður yðar og komið.20Og hirðið eigi um búshluti yðar, því að hið besta í öllu Egyptalandi skal vera yðar.21Og synir Ísraels gjörðu svo, og Jósef fékk þeim vagna eftir boði Faraós, og hann gaf þeim nesti til ferðarinnar.22Hann gaf og sérhverjum þeirra alklæðnað, en Benjamín gaf hann þrjú hundruð sikla silfurs og fimm alklæðnaði.23Og föður sínum sendi hann sömuleiðis tíu asna klyfjaða hinum bestu afurðum Egyptalands og tíu ösnur klyfjaðar korni og brauði og vistum handa föður hans til ferðarinnar.24Lét hann síðan bræður sína fara, og þeir héldu af stað. Og hann sagði við þá: Deilið ekki á leiðinni.25Og þeir fóru frá Egyptalandi og komu til Kanaanlands, heim til Jakobs föður síns.26Og þeir færðu honum tíðindin og sögðu: Jósef er enn á lífi og er höfðingi yfir öllu Egyptalandi. En hjarta hans komst ekki við, því að hann trúði þeim ekki.27En er þeir báru honum öll orð Jósefs, sem hann hafði við þá talað, og hann sá vagnana, sem Jósef hafði sent til að flytja hann á, þá lifnaði yfir Jakob föður þeirra.28Og Ísrael sagði: Mér er það nóg, að Jósef sonur minn er enn á lífi. Ég vil fara og sjá hann áður en ég dey.

45.1 Sagði hver hann var Post 7.13
45.2 Jósef grét 1Mós 42.24+
45.3 Óttaslegnir 1Mós 50.15
45.4 Selduð til Egyptalands 1Mós 37.28; Slm 105.17
45.5 Guð sendi mig 1Mós 45.8; 50.20; Róm 8.28
45.6 Fimm ár 1Mós 41.27
45.8 Stýra Egyptalandi 1Mós 41.41; 45.26
45.10 Gósenland 1Mós 46.28,34; 47.1-6,27; 50.8; 2Mós 8.18; 9.26
45.13 Faðir minn 1Mós 45.18; Post 7.14
45.18 Sækið föður ykkar 1Mós 45.13+ – gæði landsins 1Mós 47.6,11
45.22 Benjamín 1Mós 43.34+
45.26 Stýrir Egyptalandi 1Mós 45.8+ – trúði þeim ekki Slm 126.1; Job 9.16; Lúk 16.31; 24.11
45.28 Sjá 1Mós 46.30