1Davíðssálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að ég geng fram í grandvarleik og þér treysti ég óbifanlega.2Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta.3Því að ég hefi elsku þína fyrir augum, og ég geng í sannleika þínum.4Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn.5Ég hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra.6Ég þvæ hendur mínar í sakleysi og geng í kringum altari þitt, Drottinn,7til þess að láta lofsönginn hljóma og segja frá öllum þínum dásemdarverkum.8Drottinn, ég elska bústað húss þíns og staðinn þar sem dýrð þín býr.9Hríf eigi sál mína burt með syndurum né líf mitt með morðingjum,10þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum.11En ég geng fram í grandvarleik, frelsa mig og líkna mér.12Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin.

26.1 Minnt á réttlæti Guðs Slm 7.9; 17.1 – í ráðvendi Slm 15.2-5; 18.21-28; 101.2
26.2 Rannsaka mig Slm 7.10; 17.3; 139.23 – nýru og hjarta Slm 7.10+
26.3 Gæska og traust Slm 25.10+
26.4-5 Umgengst ekki óguðlega Slm 1.1-2
26.6 Þvo hendur sínar Slm 73.13; 5Mós 21.6-7; Matt 27.24; sbr 2Mós 30.17-21
26.7 Máttarverk Guðs Slm 9.2
26.8 Elska bústað þinn Slm 122.1 – dýrð þín Slm 29.9; 63.3; sbr 2Mós 16.7+
26.9 Ekki með syndurum Slm 28.3; sbr Slm 1.1
26.12 Á öruggum vegi Slm 25.4; 27.11; 143.10