1Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu, þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum.2Þar var honum búinn kvöldverður, og Marta gekk um beina, en Lasarus var einn þeirra, sem að borði sátu með honum.3Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna.4Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann:5Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara og gefin fátækum?6Ekki sagði hann þetta af því, að hann léti sér annt um fátæka, heldur af því, að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók það, sem í hana var látið.7Þá sagði Jesús: Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns.8Fátæka hafið þér ætíð hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.9Nú komst allur fjöldi Gyðinga að því, að Jesús væri þarna, og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna, heldur og til að sjá Lasarus, sem hann hafði vakið frá dauðum.10Þá réðu æðstu prestarnir af að taka einnig Lasarus af lífi,11því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.12Sá mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, frétti degi síðar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem.13Þeir tóku þá pálmagreinar, fóru út á móti honum og hrópuðu: Hósanna! Blessaður sé sá, sem kemur, í nafni Drottins, konungur Ísraels!14Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:15Óttast ekki, dóttir Síon. Sjá, konungur þinn kemur, ríðandi á ösnufola.16Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu, en þegar Jesús var dýrlegur orðinn, minntust þeir þess, að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gjört þetta fyrir hann.17Nú vitnaði fólkið, sem með honum var, þegar hann kallaði Lasarus út úr gröfinni og vakti hann frá dauðum.18Vegna þess fór einnig mannfjöldinn á móti honum, því menn höfðu heyrt, að hann hefði gjört þetta tákn.19Því sögðu farísear sín á milli: Þér sjáið, að þér ráðið ekki við neitt. Allur heimurinn eltir hann.20Grikkir nokkrir voru meðal þeirra, sem fóru upp eftir til að biðjast fyrir á hátíðinni.21Þeir komu til Filippusar frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: Herra, oss langar að sjá Jesú.22Filippus kemur og segir það Andrési. Andrés og Filippus fara og segja Jesú.23Jesús svaraði þeim: Stundin er komin, að Mannssonurinn verði gjörður dýrlegur.24Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr, verður það áfram eitt. En ef það deyr, ber það mikinn ávöxt.25Sá sem elskar líf sitt, glatar því, en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi, mun varðveita það til eilífs lífs.26Sá sem þjónar mér, fylgi mér eftir, og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér, mun faðirinn heiðra.27Nú er sál mín skelfd, og hvað á ég að segja? Faðir, frelsa mig frá þessari stundu? Nei, til þessa er ég kominn að þessari stundu:28Faðir, gjör nafn þitt dýrlegt! Þá kom rödd af himni: Ég hef gjört það dýrlegt og mun enn gjöra það dýrlegt.29Mannfjöldinn, sem hjá stóð og hlýddi á, sagði, að þruma hefði riðið yfir. En aðrir sögðu: Engill var að tala við hann.30Jesús svaraði þeim: Þessi rödd kom ekki mín vegna, heldur yðar vegna.31Nú gengur dómur yfir þennan heim. Nú skal höfðingja þessa heims út kastað.32Og þegar ég verð hafinn upp frá jörðu, mun ég draga alla til mín.33Þetta sagði hann til að gefa til kynna, með hvaða hætti hann átti að deyja.34Mannfjöldinn svaraði honum: Lögmálið segir oss, að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt, að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?35Þá sagði Jesús við þá: Skamma stund er ljósið enn á meðal yðar. Gangið, meðan þér hafið ljósið, svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá sem gengur í myrkri, veit ekki, hvert hann fer.36Trúið á ljósið, meðan þér hafið ljósið, svo að þér verðið börn ljóssins. Þetta mælti Jesús og fór burt og duldist þeim.37Þótt hann hefði gjört svo mörg tákn fyrir augum þeirra, trúðu þeir ekki á hann,38svo að rættist orð Jesaja spámanns, er hann mælti: Drottinn, hver trúði boðun vorri, og hverjum varð armur Drottins opinber?39Þess vegna gátu þeir ekki trúað, enda segir Jesaja á öðrum stað:40Hann hefur blindað augu þeirra og forhert hjarta þeirra, að þeir sjái ekki með augunum né skilji með hjartanu og snúi sér og ég lækni þá.41Jesaja sagði þetta af því að hann sá dýrð hans og talaði um hann.42Samt trúðu margir á hann, jafnvel höfðingjar, en gengust ekki við því vegna faríseanna, svo að þeir yrðu ekki samkundurækir.43Þeir kusu heldur heiður manna en heiður frá Guði.44En Jesús hrópaði: Sá sem trúir á mig, trúir ekki á mig, heldur þann sem sendi mig,45og sá sem sér mig, sér þann er sendi mig.46Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri.47Ef nokkur heyrir orð mín og gætir þeirra ekki, þá dæmi ég hann ekki. Ég er ekki kominn til að dæma heiminn, heldur til að frelsa heiminn.48Sá sem hafnar mér og tekur ekki við orðum mínum, hefur sinn dómara: Orðið, sem ég hef talað, verður dómari hans á efsta degi.49Því ég hef ekki talað af sjálfum mér, heldur hefur faðirinn, sem sendi mig, boðið mér, hvað ég skuli segja og hvað ég skuli tala.50Og ég veit, að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér.

12.1 Til Betaníu Jóh 11.1,43-44
12.2 Marta gekk um beina Lúk 10.40
12.3 Smurði fætur Jesú Lúk 7.37-38
12.4 Júdas Jóh 6.71; sbr Matt 10.4+
12.5 Seld … gefin fátækum Matt 19.21+ og hlst. – þrjú hundruð denarar Mrk 14.5; sbr Jóh 6.7
12.7 Til greftrunardags míns Jóh 19.40
12.8 Ætíð hjá ykkur 5Mós 15.11; Matt 26.11; Mrk 14.7
12.9 Lasarus Jóh 11.43-44
12.11 Margir fóru að trúa Jóh 7.31+
12.13 Pálmagreinar 1Makk 13.51; 2Makk 10.7; Opb 7.9 – Hósanna Slm 118.25-26 – sá sem kemur Matt 3.11+ ; sbr Jóh 1.9; 6.14; 11.27 – konungur Ísraels Jóh 1.49+ ; sbr Jóh 6.15; 18.33,37,39; 19.3-21
12.15 Óttast ekki … Sak 9.9
12.16 Skildu ekki Matt 16.9; Mrk 6.52; 8.17,21; Lúk 18.34; Jóh 16.12 – dýrlegur Jóh 7.39+ – lærisveinarnir minntust Jóh 2.22+ ; 15.26; 16.4,13-15; sbr Lúk 24.8
12.17 Út úr gröfinni Jóh 11.43-44
12.19 Allur heimurinn Jesú Jóh 11.48; sbr Mrk 1.37; Jóh 12.32
12.21 Filippus Matt 10.3+ ; – frá Betsaídu Jóh 1.44; sbr Matt 11.21+ – sjá Jesú Lúk 19.3; 23.8
12.23 Stundin Mrk 14.35,41; Jóh 2.4; 7.6,8,30; 8.20; 13.1; 17.1 – dýrð Mannssonarins verður opinber Jóh 7.39+ ; sbr 8.28; Matt 8.20+
12.24 Hveitikornið deyr 1Kor 15.36
12.25 Glata, varðveita Matt 10.39+ ; Mrk 8.35; Lúk 9.24
12.26 Fylgja Jesú Matt 4.19+ ; Mrk 8.34; Lúk 14.27 – þar mun og … Jóh 14.3; 17.24
12.27 Sál mín er skelfd Slm 6.4; 42.6,12; Matt 26.38; Mrk 14.34 – frá þessari stundu Mrk 14.32-42 og hlst.
12.28 Ger nafn þitt dýrlegt Matt 6.9; Jóh 13.31-32; 17.1-11 – rödd af himni Mrk 1.11; 9.7 og hlst. – faðirinn dýrlegur Jóh 13.31-32; 17.1
12.29 Engill Post 23.9
12.30 Ykkar vegna Jóh 11.42
12.31 Dómur Jóh 3.19; 9.39 – höfðingi þessa heims Jóh 14.30; 16.11
12.32 Jesús hafinn upp Jóh 3.14; 8.28 – dregur alla til sín Jóh 6.44
12.33 Með hvaða hætti Jóh 18.32; 21.19
12.34 Til eilífðar Slm 89.5,37; 110.4; Jes 9.6; Dan 7.14
12.35 Skamma stund Jóh 7.33+ – meðan þið hafið ljósið Jóh 9.4 – ljós og myrkur Jóh 1.5; 8.12; 12.46 – veit ekki, hvert hann fer Jóh 11.10; 2.11
12.36 Börn ljóssins Ef 5.8; 1Þess 5.5
12.38 Drottinn, hver trúði … ? Jes 53.1; Róm 10.16
12.40 Hann hefur blindað … Jes 6.9-10; Matt 13.15; Mrk 4.12; 8.18; Lúk 8.10; Post 28.26-27; sbr Jóh 1.9-11; 9.39-41
12.41 Sá dýrð hans Jes 6.1; sbr Jóh 1.14+ ; 8.56
12.42 Margir trúðu á hann Jóh 7.31+ ; Jóh 7.42 – samkundurækir Jóh 9.22; 16.1-4
12.43 Heiður manna Jóh 5.44
12.44 Þann sem sendi mig Matt 10.40; Jóh 13.20+
12.45 Sjá Jesú, sjá föðurinn Jóh 10.38; 13.20; 14.9+ ; sbr 1.18; 5.19-30
12.46 Ljós í heiminn komið Jóh 3.19+ – í myrkri Jóh 12.35
12.47 Heyra, en fara ekki eftir Matt 7.26; Lúk 6.49 – ekki dæma, heldur frelsa Jóh 3.17; 8.15; sbr 5.22,27; 8.16,20
12.49-50 Flytja orð föðurins Jóh 7.17; 8.26,28; 14.10,24