1Á öðru ríkisári Nebúkadnesars dreymdi Nebúkadnesar draum, og varð honum órótt í skapi og mátti eigi sofa.2Þá bauð konungur að kalla til sín spásagnamenn og særingamenn og galdramenn og Kaldea, að þeir segðu konungi, hvað hann hefði dreymt, og þeir komu og gengu fyrir konung.3Þá sagði konungur við þá: Mig hefir dreymt draum og mér er órótt í skapi, uns ég fæ að vita drauminn.4Þá sögðu Kaldearnir við konunginn á arameísku: Konungurinn lifi eilíflega! Seg þjónum þínum drauminn, og munum vér þá segja þýðing hans.5Konungur svaraði og sagði við Kaldea: Ásetningur minn er óhagganlegur: Ef þér segið mér ekki drauminn og þýðing hans, skuluð þér verða höggnir sundur og hús yðar gjörð að sorphaug.6En ef þér segið mér drauminn og þýðing hans, munuð þér af mér þiggja margs konar gjafir og mikla sæmd. Segið mér því drauminn og þýðing hans!7Þá svöruðu þeir aftur og sögðu: Konungurinn segi þjónum sínum drauminn, og þá skulum vér segja, hvað hann þýðir.8Konungur svaraði og sagði: Ég veit með vissu, að þér ætlið að leita yður frests, þar eð þér sjáið að ásetningur minn er óhagganlegur.9En ef þér segið mér ekki drauminn, þá bíður yðar dómur, sem ekki verður nema á einn veg. Þér hafið komið yður saman um að fara með lygatal og skaðsemdar frammi fyrir mér, þar til er tímarnir breytast. Segið mér því drauminn, svo að ég fái skilið, að þér megið einnig segja mér þýðing hans.10Kaldearnir svöruðu konungi og sögðu: Enginn er sá maður í heimi, er sagt geti það, er konungurinn mælist til, né heldur hefir nokkur mikill og voldugur konungur krafist slíks af nokkrum spásagnamanni, særingamanni eða Kaldea.11Því að það er torvelt, sem konungurinn heimtar, og enginn getur kunngjört konunginum það nema guðirnir einir, en bústaður þeirra er ekki hjá dauðlegum mönnum.12Af þessu varð konungur gramur og mjög reiður og bauð að taka af lífi alla vitringa í Babýlon.13Gekk þá sú skipun út, að lífláta skyldi vitringana, og var leitað að þeim Daníel og félögum hans til að lífláta þá.14Þá sneri Daníel sér með viturleik og skynsemd til Arjóks, lífvarðarforingja konungs, sem út var genginn til þess að lífláta vitringana í Babýlon.15Hann tók til máls og sagði við Arjók valdsmann konungs: Hví er skipun konungs svo hörð? Arjók skýrði þá Daníel frá málavöxtum.16Og Daníel gekk upp til konungs og bað hann gefa sér frest, að hann mætti kunngjöra konungi þýðinguna.17Þá gekk Daníel heim til húss síns til þess að segja þeim Hananja, Mísael og Asarja, félögum sínum, frá þessu,18og til þess að biðja Guð himinsins líknar um leyndardóm þennan, svo að Daníel og félagar hans yrðu ekki líflátnir með hinum vitringunum í Babýlon.19Þá var leyndardómurinn opinberaður Daníel í nætursýn. Þá lofaði Daníel Guð himnanna.20Daníel tók til máls og sagði: Lofað veri nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því að hans er viskan og mátturinn.21Hann breytir tímum og tíðum, hann rekur konunga frá völdum og hann setur konunga til valda, hann gefur spekingunum speki og hinum hyggnu hyggindi.22Hann opinberar hina dýpstu og huldustu leyndardóma, hann veit, hvað í myrkrinu gjörist, og ljósið býr hjá honum.23Ég þakka þér, Guð feðra minna, og vegsama þig fyrir það, að þú hefir gefið mér visku og mátt og nú látið mig vita það, er vér báðum þig um, því að þú hefir opinberað oss það, er konungur vildi vita.24Daníel fór nú til Arjóks, sem konungur hafði falið að lífláta vitringana í Babýlon. Hann fór og mælti til hans á þessa leið: Ekki skalt þú lífláta vitringana í Babýlon. Leið mig inn fyrir konung, og mun ég segja konungi þýðinguna.25Síðan leiddi Arjók Daníel í skyndi inn fyrir konung og mælti svo til hans: Ég hefi fundið mann meðal hinna herleiddu frá Júda, sem ætlar að segja konunginum þýðing draumsins.26Konungur svaraði og sagði við Daníel, sem kallaður var Beltsasar: Getur þú sagt mér drauminn, sem mig dreymdi, og þýðing hans?27Daníel svaraði konungi og sagði: Leyndardóm þann, sem konungurinn spyr um, geta hvorki vitringar, særingamenn, spásagnamenn né stjörnuspekingar sagt konunginum.28En sá Guð er á himnum, sem opinberar leynda hluti, og hann hefir kunngjört Nebúkadnesar konungi það, er verða mun á hinum síðustu dögum. Draumur þinn og vitranir þær, er fyrir þig bar í rekkju þinni, voru þessar:29Þá er þú hvíldir í rekkju þinni, konungur, stigu upp hugsanir hjá þér um, hvað verða mundi eftir þetta, og hann, sem opinberar leynda hluti, hefir kunngjört þér, hvað verða muni.30En hvað mig snertir, þá er það ekki fyrir nokkurrar visku sakir, sem ég hafi til að bera umfram alla menn aðra, þá er nú eru uppi, að þessi leyndardómur er mér opinber orðinn, heldur til þess að þýðingin yrði kunngjörð konunginum og þú fengir að vita hugsanir hjarta þíns.31Þú horfðir fram fyrir þig, konungur, og stóð þar líkneski mikið. Líkneski þetta var stórt og yfirtaks-ljómandi. Það stóð frammi fyrir þér og var ógurlegt ásýndum.32Höfuð líkneskis þessa var af skíru gulli, brjóstið og armleggirnir af silfri, kviðurinn og lendarnar af eiri,33leggirnir af járni, fæturnir sums kostar af járni, sums kostar af leir.34Þú horfðir á það, þar til er steinn nokkur losnaði, án þess að nokkur mannshönd kæmi við hann. Hann lenti á fótum líkneskisins, sem voru af járni og leir, og molaði þá.35Þá muldist sundur í sama bili járnið, leirinn, eirinn, silfrið og gullið, og varð eins og sáðir á sumarláfa, vindurinn feykti því burt, svo að þess sá engan stað. En steinninn, sem lenti á líkneskinu, varð að stóru fjalli og tók yfir alla jörðina.36Þetta er draumurinn, og nú viljum vér segja konunginum þýðing hans.37Þú, konungur, yfirkonungur konunganna, sem Guð himnanna hefir gefið ríkið, valdið, máttinn og tignina,38þú, sem hann hefir mennina á vald selt, hvar svo sem þeir búa, dýr merkurinnar og fugla himinsins, og sett þig drottnara yfir því öllu, þú ert gullhöfuðið.39En eftir þig mun hefjast annað konungsríki, minni háttar en þitt er, og því næst hið þriðja ríki af eiri, sem drottna mun yfir allri veröldu.40Þá mun hefjast fjórða ríkið, sterkt sem járn, því að járnið sundurbrýtur og mölvar allt, og eins og járnið molar sundur, eins mun það sundurbrjóta og mola öll hin ríkin.41En þar er þú sást fæturna og tærnar, að sumt var af pottaraleir, sumt af járni, það merkir að ríkið mun verða skipt. Þó mun það nokkru í sér halda af hörku járnsins, þar sem þú sást járnið blandað saman við deigulmóinn.42En þar er tærnar á fótunum voru sums kostar af járni og sums kostar af leir, þá mun það ríki að nokkru leyti verða öflugt og að nokkru leyti veikt.43Og þar er þú sást járnið blandað saman við deigulmóinn, þá munu þeir með kvonföngum saman blandast, og þó ekki samþýðast hvorir öðrum, eins og járnið samlagar sig ekki við leirinn.44En á dögum þessara konunga mun Guð himnanna hefja ríki, sem aldrei skal á grunn ganga, og það ríki skal engri annarri þjóð í hendur fengið verða. Það mun knosa og að engu gjöra öll þessi ríki, en sjálft mun það standa að eilífu,45þar sem þú sást að steinn nokkur losnaði úr fjallinu, án þess að nokkur mannshönd kæmi við hann, og mölvaði járnið, eirinn, leirinn, silfrið og gullið. Mikill Guð hefir kunngjört konunginum hvað hér eftir muni verða. Draumurinn er sannur og þýðing hans áreiðanleg.46Þá féll Nebúkadnesar konungur fram á ásjónu sína og laut Daníel og bauð að fórna honum matfórn og reykelsi.47Konungur mælti til Daníels og sagði: Í sannleika er yðar Guð yfirguð guðanna og herra konunganna og opinberari leyndra hluta, með því að þú máttir þennan leyndardóm auglýsa.48Eftir það hóf konungur Daníel til mikilla mannvirðinga og gaf honum miklar og margar gjafir, setti hann höfðingja yfir allt Babel-hérað og gjörði hann að æðsta forstjóra yfir öllum vitringum í Babýlon.49Og fyrir tilmæli Daníels gjörði konungur þá Sadrak, Mesak og Abed-Negó að sýslumönnum yfir Babel-héraði, en sjálfur var Daníel við hirð konungs.

2.1 Olli áhyggjum 1Mós 41.8 – svefnleysi Dan 6.19
2.18 Guð himnanna Dan 2.37,44; 1Mós 24.7; Júdt 5.8
2.19 Nætursýn Dan 7.7; 1Mós 46.2
2.21 Tímar og tíðir Dan 7.12; Post 1.7; 1Þess 5.1