1Þeir fóru nú um Amfípólis og Apollóníu og komu til Þessaloníku. Þar áttu Gyðingar samkundu.2Eftir venju sinni gekk Páll inn til þeirra, og þrjá hvíldardaga ræddi hann við þá og lagði út af ritningunum,3lauk þeim upp fyrir þeim og setti þeim fyrir sjónir, að Kristur átti að líða og rísa upp frá dauðum. Hann sagði: Jesús, sem ég boða yður, hann er Kristur.4Nokkrir þeirra létu sannfærast og gengu til fylgis við Pál og Sílas, auk þess mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og mikilsháttar konur eigi allfáar.5En Gyðingar fylltust afbrýði og fengu með sér götuskríl, æstu til uppþota og hleyptu borginni í uppnám. Þustu þeir að húsi Jasonar og vildu færa þá fyrir lýðinn.6En þegar þeir fundu þá ekki, drógu þeir Jason og nokkra bræður fyrir borgarstjórana og hrópuðu: Mennirnir, sem komið hafa allri heimsbyggðinni í uppnám, þeir eru nú komnir hingað,7og Jason hefur tekið á móti þeim. Allir þessir breyta gegn boðum keisarans, því þeir segja, að annar sé konungur og það sé Jesús.8Og þeir vöktu óhug með fólkinu og einnig borgarstjórunum með þessum orðum.9Slepptu þeir ekki þeim Jasoni fyrr en þeir höfðu látið þá setja tryggingu.10En bræðurnir sendu þá Pál og Sílas þegar um nóttina til Beroju. Þegar þeir komu þangað, gengu þeir inn í samkunduhús Gyðinga.11Þeir voru veglyndari þar en í Þessaloníku. Þeir tóku við orðinu með allri góðfýsi og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig farið.12Margir þeirra tóku trú og einnig Grikkir ekki allfáir, tignar konur og karlar.13En er Gyðingar í Þessaloníku fréttu, að Páll hefði einnig boðað orð Guðs í Beroju, komu þeir og hleyptu líka ólgu og æsingu í múginn þar.14Þá sendu bræðurnir jafnskjótt með Pál af stað til sjávar, en Sílas og Tímóteus urðu eftir.15Leiðsögumenn Páls fylgdu honum allt til Aþenu og sneru aftur með boð til Sílasar og Tímóteusar að koma hið bráðasta til hans.16Meðan Páll beið þeirra í Aþenu, var honum mikil skapraun að sjá, að borgin var full af skurðgoðum.17Hann ræddi þá í samkundunni við Gyðinga og guðrækna menn, og hvern dag á torginu við þá, sem urðu á vegi hans.18En nokkrir heimspekingar, Epíkúringar og Stóumenn, áttu og í orðakasti við hann. Sögðu sumir: Hvað mun skraffinnur sá hafa að flytja? Aðrir sögðu: Hann virðist boða ókennda guði, því að hann flutti fagnaðarerindið um Jesú og upprisuna.19Og þeir tóku hann og fóru með hann á Aresarhæð og sögðu: Getum vér fengið að vita, hver þessi nýja kenning er, sem þú ferð með?20Því að eitthvað nýstárlegt flytur þú oss til eyrna, og oss fýsir að vita, hvað þetta er.21En allir Aþeningar og aðkomumenn þar gáfu sér ekki tóm til annars fremur en að segja eða heyra einhver nýmæli.22Þá sté Páll fram á miðri Aresarhæð og tók til máls: Aþeningar, þér komið mér svo fyrir sjónir, að þér séuð í öllum greinum miklir trúmenn,23því að ég gekk hér um og hugði að helgidómum yðar og fann þá meðal annars altari, sem á er ritað: Ókunnum guði. Þetta, sem þér nú dýrkið og þekkið ekki, það boða ég yður.24Guð, sem skóp heiminn og allt, sem í honum er, hann, sem er herra himins og jarðar, býr ekki í musterum, sem með höndum eru gjörð.25Ekki verður honum heldur þjónað með höndum manna, eins og hann þyrfti nokkurs við, þar sem hann sjálfur gefur öllum líf og anda og alla hluti.26Hann skóp og af einum allar þjóðir manna og lét þær byggja allt yfirborð jarðar, er hann hafði ákveðið setta tíma og mörk bólstaða þeirra.27Hann vildi, að þær leituðu Guðs, ef verða mætti þær þreifuðu sig til hans og fyndu hann. En eigi er hann langt frá neinum af oss.28Í honum lifum, hrærumst og erum vér. Svo hafa og sum skáld yðar sagt: Því að vér erum líka hans ættar.29Fyrst vér erum nú Guðs ættar, megum vér eigi ætla, að guðdómurinn sé líkur smíði af gulli, silfri eða steini, gjörðri með hagleik og hugviti manna.30Guð, sem hefur umborið tíðir vanviskunnar, boðar nú mönnunum, að þeir skuli allir hvarvetna taka sinnaskiptum,31því að hann hefur sett dag, er hann mun láta mann, sem hann hefur fyrirhugað, dæma heimsbyggðina með réttvísi. Þetta hefur hann sannað öllum mönnum með því að reisa hann frá dauðum.32Þegar þeir heyrðu nefnda upprisu dauðra, gjörðu sumir gys að, en aðrir sögðu: Vér munum hlusta á þetta hjá þér öðru sinni.33Þannig skildi Páll við þá.34En nokkrir menn slógust í fylgd hans. Þeir tóku trú. Meðal þeirra var Díónýsíus, einn úr Areopagus-dóminum, og kona nokkur, Damaris að nafni, og aðrir fleiri.

17.1-9 Uppþot í Þessaloníku 1Þess 2.1-2
17.2 Eftir venju sinni Lúk 4.16; Post 9.20; 17.10,17
17.3 Kristur átti að líða Lúk 24.26; Post 3.18 – og rísa upp frá dauðum Lúk 24.46 – Jesús er Kristur Post 5.42+
17.4 Guðræknir Post 13.43+ – mikilsháttar konur Post 13.50; 17.12 – afturhvarf í Þessaloníku Post 20.4; sbr Kól 4.10
17.5-6 Gyðingar valda uppþotum 1Þess 2.14
17.6 Mennirnir … Post 16.20
17.7 Gegn boðum keisarans Lúk 23.2 – Jesús annar konungur Lúk 23.2; Jóh 19.12; sbr Matt 2.1-3
17.11 Rannsökuðu ritningarnar Jóh 5.39
17.12 Tóku trú Post 2.44+ – tignar konur Post 13.50; 17.4
17.13 Athæfi Gyðinganna Post 14.19
17.14 Sílas Post 15.22+ – Tímóteus Post 16.1+ – aftur í Þessaloníku 1Þess 3.1-6
17.17 Páll ræðir við Gyðinga Post 18.19; sbr 17.2+ – guðræknir Post 13.43+ – á torginu Post 16.19
17.19 Vitnisburður fyrir yfirvöldum Post 4.8-12; 5.27-33; 9.15; 23.6; 24.10-21; 26.2-23; sbr Lúk 21.12
17.22-31 Ræða Páls Post 13.16-41; 20.18-35; 22.1-21; 24.10-21; 26.2-33; sbr Post 2.14+ ; 1Þess 1.9-10
17.24 Guð skóp heiminn Slm 146.6; Jes 42.5; SSal 13-14; Post 14.15 – herra himins og jarðar Matt 11.25 – býr ekki í … 1Kon 8.27; Jes 66.1-2; Post 7.48
17.25 Með höndum manna Slm 50.12; Post 19.26 – þarf einskis við Slm 51.18; Jer 7.22 – gefur líf og anda Jes 42.5
17.26 Mörk bólstaða 5Mós 32.8
17.27 Leita Guðs Jes 55.6; sbr Róm 1.19-20 – eigi langt frá Slm 145.18; Jer 23.23
17.28 Hans ættar sbr 1Mós 1.26; 1Pét 1.4; 1Jóh 3.2
17.29 Guð er engu líkur Jes 40.18-20; 44.10-17; Post 19.26
17.30 Vanviska liðinna tíma Post 3.17; 13.27; 14.16; 17.23; Ef 4.17-19
17.31 Dæma heimsbyggðina með réttvísi Slm 9.9; 96.13; 98.9 – hefur fyrirhugað mann Post 10.42
17.34 Nokkrir tóku trú Post 17.4