1Til söngstjórans. Liljulag. Davíðssálmur.2Hjálpa mér, ó Guð, því að vötnin ætla að drekkja mér.3Ég er sokkinn niður í botnlausa leðju og hefi enga fótfestu, ég er kominn ofan í vatnadjúp og bylgjurnar ganga yfir mig.4Ég hefi æpt mig þreyttan, er orðinn brennandi þurr í kverkunum, augu mín eru döpruð orðin af að þreyja eftir Guði mínum.5Fleiri en hárin á höfði mér eru þeir er hata mig að ástæðulausu, fleiri en bein mín þeir sem án saka eru óvinir mínir. Því sem ég hefi eigi rænt, hefi ég samt orðið að skila aftur.6Þú, Guð, þekkir heimsku mína, og sakir mínar dyljast þér eigi.7Lát eigi þá, er vona á þig, verða til skammar mín vegna, ó Drottinn, Drottinn hersveitanna, lát eigi þá er leita þín, verða til svívirðingar mín vegna, þú Guð Ísraels.8Þín vegna ber ég háðung, þín vegna hylur svívirðing auglit mitt.9Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum og óþekktur sonum móður minnar.10Vandlæting vegna húss þíns hefir uppetið mig, og smánanir þeirra er smána þig, hafa lent á mér.11Ég hefi þjáð mig með föstu, en það varð mér til háðungar.12Ég gjörði hærusekk að klæðnaði mínum, og ég varð þeim að orðskvið.13Þeir er sitja í hliðinu, ræða um mig, og þeir er drekka áfengan drykk, syngja um mig.14En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar. Svara mér, Guð, í trúfesti hjálpræðis þíns sakir mikillar miskunnar þinnar.15Drag mig upp úr leðjunni, svo að ég sökkvi eigi, lát mig björgun hljóta frá hatursmönnum mínum og úr hafdjúpinu.16Lát eigi vatnsbylgjurnar ganga yfir mig, né djúpið svelgja mig, og lát eigi brunninn lykja aftur op sitt yfir mér.17Bænheyr mig, Drottinn, sakir gæsku náðar þinnar, snú þér að mér eftir mikilleik miskunnar þinnar.18Hyl eigi auglit þitt fyrir þjóni þínum, því að ég er í nauðum staddur, flýt þér að bænheyra mig.19Nálgast sál mína, leys hana, frelsa mig sakir óvina minna.20Þú þekkir háðung mína og skömm og svívirðing, allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum.21Háðungin kremur hjarta mitt, svo að ég örvænti. Ég vonaði, að einhver mundi sýna meðaumkun, en þar var enginn, og að einhverjir mundu hugga, en fann engan.22Þeir fengu mér malurt til matar, og við þorstanum gáfu þeir mér vínsýru að drekka.23Svo verði þá borðið fyrir framan þá að snöru, og að gildru fyrir þá sem ugglausir eru.24Myrkvist augu þeirra, svo að þeir sjái eigi, og lát lendar þeirra ávallt riða.25Hell þú reiði þinni yfir þá og lát þína brennandi gremi ná þeim.26Búðir þeirra verði eyddar og enginn búi í tjöldum þeirra,27því að þann sem þú hefir lostið, ofsækja þeir og auka þjáningar þeirra er þú hefir gegnumstungið.28Bæt sök við sök þeirra og lát þá eigi ganga inn í réttlæti þitt.29Verði þeir afmáðir úr bók lifenda og eigi skráðir með réttlátum.30En ég er volaður og þjáður, hjálp þín, ó Guð, mun bjarga mér.31Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla það í lofsöng.32Það mun Drottni líka betur en uxar, ungneyti með hornum og klaufum.33Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast, þér sem leitið Guðs hjörtu yðar lifni við.34Því að Drottinn hlustar á hina fátæku og fyrirlítur eigi bandingja sína.35Hann skulu lofa himinn og jörð, höfin og allt sem í þeim hrærist.36Því að Guð veitir Síon hjálp og reisir við borgirnar í Júda, og menn skulu búa þar og fá landið til eignar.37Niðjar þjóna hans munu erfa það, og þeir er elska nafn hans, byggja þar.

69.2 Vötnin ná upp að hálsi Slm 18.5; Jón 2.4-6
69.3 Djúp Slm 130.1
69.4 Hrópað mig þreyttan Slm 6.7; Jer 45.3 – augu mín döpruð Slm 119.82,123; Hlj 2.11 – þreyja eftir Guði Slm 33.22; 71.14
69.5 Fleiri en hárin Slm 40.13 – hata mig Slm 35.19; Jóh 15.25
69.6 Heimska mín Slm 38.6
69.7 Leita Drottins Slm 9.11+
69.8 Þín vegna Jer 15.15 – svívirðing Slm 44.16
69.9 Ókunnur bræðrum mínum Job 19.13,15
69.10 Vandlæting vegna húss þíns Slm 119.139; Jóh 2.17; sbr Róm 15.3 – smánaryrði Slm 79.4
69.11 Fasta Slm 109.24-25
69.14 Ver mér náðugur Jes 49.8 – þín mikla miskunn Hlj 3.32
69.17 Náð þín Slm 17.7+ ; 109.21
69.18 Hyl eigi Slm 13.2+ – flýt þér Slm 31.3+
69.19 Nálægur Hlj 3.57
69.21 Að einhverjir hugguðu Jes 51.19
69.22 Edik Mrk 15.36
69.23 Verði borðið Róm 11.9-10
69.25 Hell þú Esk 21.36; Sef 3.8; Opb 16.1
69.26 Búðir þeirra eyddar Post 1.20
69.29 Lífsins bók Opb 3.5+
69.31 Lofsöngur Slm 50.14
69.32 Betra en fórn Slm 50.8; 51.18-19; Hós 6.6; Am 5.21-24; Mík 6.6-8
69.33 Snauðu gleðjast Slm 34.3 – leita Guðs Slm 9.11+ – lifni við Slm 22.27
69.34 Drottin hlustar á hin fátæku Slm 140.13 – fyrirlítur eigi bandingja Sak 9.12
69.36 Reisir við borgirnar Slm 102.17; Jes 44.27; Jer 30.18; Esk 36.10
69.37 Niðjar þjóna hans Jes 65.9 – elska nafn hans Slm 5.12+