1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð,2þá er Sifítar komu og sögðu við Sál: Veistu að Davíð felur sig hjá oss?3Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn með mætti þínum.4Guð, heyr þú bæn mína, ljá eyra orðum munns míns.5Því að erlendir fjandmenn hefjast gegn mér og ofríkismenn sækjast eftir lífi mínu, eigi hafa þeir Guð fyrir augum. Sela6Sjá, Guð er mér hjálpari, það er Drottinn er styður mig.7Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma, lát þá hverfa af trúfesti þinni.8Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir, lofa nafn þitt, Drottinn, að það sé gott,9því að það hefir frelsað mig úr hverri neyð, og auga mitt hefir svalað sér á að horfa á óvini mína.

54.5 Ráðist gegn mér Slm 86.14
54.8 Nafn þitt Slm 52.11
54.9 Hlakka yfir Slm 59.11; 112.8; 118.7