1Við Babýlons fljót, þar sátum vér og grétum, er vér minntumst Síonar.2Á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar.3Því að herleiðendur vorir heimtuðu söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti: Syngið oss Síonarkvæði!4Hvernig ættum vér að syngja Drottins ljóð í öðru landi?5Ef ég gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd.6Tunga mín loði mér við góm, ef ég man eigi til þín, ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt.7Mun þú Edóms niðjum, Drottinn, óheilladag Jerúsalem, þegar þeir æptu: Rífið, rífið allt niður til grunna!8Babýlonsdóttir, þú sem tortímir! Heill þeim, er geldur þér fyrir það sem þú hefir gjört oss!9Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein.

137.1 Við Babýlonsfljót Esk 3.15
137.5 Ef ég gleymi þér Jer 51.50
137.7 Edóms niðjar Esk 35.5; Jl 4.19; Ób 1-21; Hlj 4.21; sbr Jer 49.7-22
137.9 Slær ungbörnum við stein Jes 13.16; Hós 14.1; Nah 3.10