1Þeir Davíð og hershöfðingjarnir tóku og frá til þjónustu niðja Asafs, Hemans og Jedútúns, er að spámannahætti lofuðu Guð með gígjum, hörpum og skálabumbum. Og tala þeirra, er starf höfðu við þessa þjónustu, var:2Af Asafsniðjum: Sakkúr, Jósef, Netanja og Asarela, synir Asafs, undir stjórn Asafs, er lék eins og spámaður eftir fyrirsögn konungs.3Af Jedútún: Synir Jedútúns: Gedalja, Serí, Jesaja, Hasabja, Mattitja, Símeí, sex alls, undir stjórn Jedútúns föður síns, er lék á gígju eins og spámaður, þá er lofa skyldi Drottin og vegsama hann.4Af Heman: Synir Hemans: Búkkía, Mattanja, Ússíel, Sebúel, Jerímót, Hananja, Hananí, Elíata, Giddaltí, Rómamtí Eser, Josbekasa, Mallótí, Hótír, Mahasíót.5Allir þessir voru synir Hemans, sjáanda konungs, er horn skyldu hefja að boði Guðs. Og Guð gaf Heman fjórtán sonu og þrjár dætur.6Allir þessir voru við sönginn í musteri Drottins undir stjórn föður þeirra með skálabumbur, hörpur og gígjur til þess að gegna þjónustu í musteri Guðs undir forustu konungs, Asafs, Jedútúns og Hemans.7Og talan á þeim og frændum þeirra, er lærðir voru í ljóðum Drottins, og allir voru vel að sér, var tvö hundruð áttatíu og átta.8Og þeir vörpuðu hlutkesti um starfið, yngri sem eldri, kennarar sem lærisveinar.9Fyrsti hlutur fyrir Asaf féll á Jósef, sonu hans og bræður, tólf alls, annar á Gedalja, sonu hans og bræður, tólf alls,10þriðji á Sakkúr, sonu hans og bræður, tólf alls,11fjórði á Jísrí, sonu hans og bræður, tólf alls,12fimmti á Netanja, sonu hans og bræður, tólf alls,13sjötti á Búkkía, sonu hans og bræður, tólf alls,14sjöundi á Jesarela, sonu hans og bræður, tólf alls,15áttundi á Jesaja, sonu hans og bræður, tólf alls,16níundi á Mattanja, sonu hans og bræður, tólf alls,17tíundi á Símeí, sonu hans og bræður, tólf alls,18ellefti á Asareel, sonu hans og bræður, tólf alls,19tólfti á Hasabja, sonu hans og bræður, tólf alls,20þrettándi á Súbael, sonu hans og bræður, tólf alls,21fjórtándi á Mattitja, sonu hans og bræður, tólf alls,22fimmtándi á Jeremót, sonu hans og bræður, tólf alls,23sextándi á Hananja, sonu hans og bræður, tólf alls,24seytjándi á Josbekasa, sonu hans og bræður, tólf alls,25átjándi á Hananí, sonu hans og bræður, tólf alls,26nítjándi á Mallótí, sonu hans og bræður, tólf alls,27tuttugasti á Elíjata, sonu hans og bræður, tólf alls,28tuttugasti og fyrsti á Hótír, sonu hans og bræður, tólf alls,29tuttugasti og annar á Giddaltí, sonu hans og bræður, tólf alls,30tuttugasti og þriðji á Mahasíót, sonu hans og bræður, tólf alls,31tuttugasti og fjórði á Rómamtí Eser, sonu hans og bræður, tólf alls.

25.1 Asaf Slm 50.1+ – Heman Slm 88.1 – Jedútún Slm 39.1+