1Ég sagði við sjálfan mig: Jæja þá, reyndu gleðina og njóttu gæða lífsins! En sjá, einnig það er hégómi.2Um hláturinn sagði ég: hann er vitlaus! og um gleðina: hverju fær hún til vegar komið?3Mér kom til hugar að gæða líkama mínum á víni en hjarta mitt skyldi stjórna öllu viturlega og að halda fast við heimskuna, uns ég sæi, hvað gott væri fyrir mennina að gjöra undir himninum alla ævidaga þeirra.4Ég gjörði stórvirki: Ég reisti mér hús, ég plantaði mér víngarða,5ég gjörði mér jurtagarða og aldingarða og gróðursetti þar alls konar aldintré,6ég bjó mér til vatnstjarnir til þess að vökva með vaxandi viðarskóg,7ég keypti þræla og ambáttir, og ég átti heimafædd hjú. Ég átti og meiri hjarðir nauta og sauða en allir þeir, sem verið höfðu á undan mér í Jerúsalem.8Ég safnaði mér og silfri og gulli og fjársjóðum frá konungum og löndum, ég fékk mér söngmenn og söngkonur og það sem er yndi karlmannanna: fjölda kvenna.9Og ég varð mikill og meiri öllum þeim, er verið höfðu í Jerúsalem á undan mér. Einnig speki mín var kyrr hjá mér.10Og allt það sem augu mín girntust, það lét ég eftir þeim. Ég neitaði ekki hjarta mínu um nokkra gleði, því að hjarta mitt hafði ánægju af allri fyrirhöfn minni, og þetta var hlutdeild mín af allri fyrirhöfn minni.11En er ég leit á öll verk mín, þau er hendur mínar höfðu unnið, og á þá fyrirhöfn, er ég hafði haft fyrir að gjöra þau, þá sá ég, að allt var hégómi og eftirsókn eftir vindi, og að enginn ávinningur er til undir sólinni.12Ég sneri mér að því að virða fyrir mér speki og flónsku og heimsku, því að hvað mun sá maður gjöra, er kemur eftir konunginn? Hann gjörir það sem menn hafa gjört fyrir löngu.13Þá sá ég, að spekin hefir yfirburði yfir heimskuna eins og ljósið hefir yfirburði yfir myrkrið.14Vitur maður hefir augun í höfðinu, en heimskinginn gengur í myrkri. Jafnframt tók ég eftir því, að eitt og hið sama kemur fram við alla.15Og ég sagði við sjálfan mig: Hið sama sem kemur fram við heimskingjann, það kemur og fram við mig, og til hvers hefi ég þá orðið svo frábærlega vitur? Þá hugsaði ég í hjarta mínu, að einnig það væri hégómi.16Því að menn minnast ekki hins vitra að eilífu, frekar en heimskingjans, því að allir verða þeir löngu gleymdir á komandi tímum, og deyr ekki jafnt vitur sem heimskur?17Þá varð mér illa við lífið, því að mér mislíkaði það, er gjörist undir sólinni, því að allt er hégómi og eftirsókn eftir vindi.18Og mér varð illa við allt mitt strit, er ég streittist við undir sólinni, með því að ég verð að eftirskilja það þeim manni, er kemur eftir mig.19Og hver veit, hvort hann verður spekingur eða heimskingi? Og þó á hann að ráða yfir öllu striti mínu, er ég hefi streitst við og viturlega með farið undir sólinni einnig það er hégómi.20Þá hvarf ég að því að láta hjarta mitt örvænta yfir allri þeirri mæðu, er ég hafði átt í undir sólinni.21Því að hafi einhver unnið starf sitt með hyggindum, þekking og dugnaði, verður hann að selja það öðrum í hendur til eignar, sem ekkert hefir fyrir því haft. Einnig það er hégómi og mikið böl.22Hvað fær þá maðurinn fyrir allt strit sitt og ástundun hjarta síns, er hann mæðist í undir sólinni?23Því að allir dagar hans eru kvöl, og starf hans er armæða. Jafnvel á næturnar fær hjarta hans eigi hvíld. Einnig þetta er hégómi.24Það er ekkert betra til með mönnum en að eta og drekka og láta sálu sína njóta fagnaðar af striti sínu. En það hefi ég séð, að einnig þetta kemur af Guðs hendi.25Því að hver má eta eða neyta nokkurs án hans?26Því að þeim manni, sem honum geðjast, gefur hann visku, þekking og gleði, en syndaranum fær hann það starf að safna og hrúga saman til þess að selja það þeim í hendur, er Guði geðjast. Einnig það er hégómi og eftirsókn eftir vindi.

2.1 Hégómi Préd 1.14+
2.3 Hvað er til gagns Préd 5.17; 6.12 – alla ævidaga Job 14.5
2.11 Hégómi Préd 1.14+
2.14 Í myrkri sbr Jóh 8.12; 1Jóh 2.11+
2.16 Minnast ekki Préd 1.11; SSal 2.4; sbr Sír 44.8-15 – vitur deyr einnig Slm 49.11+
2.22 Hvað fær maðurinn? Sír 11.18-19; sbr Préd 1.3+
2.23 Jafnvel á næturnar Préd 8.16; Job 7.1-4; Sír 40.5
2.24 Njóta lífsins Préd 3.12-13; 5.17; 8.15; 9.7; 11.9; Sír 14.14; sbr 1Kor 15.32+
2.26 Safnar fyrir aðra Job 27.16-17; Okv 13.22