1Sá sem oftlega hefir ávítaður verið, en þverskallast þó, mun skyndilega knosaður verða, og engin lækning fást.2Þegar réttlátum fjölgar, gleðst þjóðin, en þegar óguðlegir drottna, andvarpar þjóðin.3Sá sem elskar visku, gleður föður sinn, en sá sem leggur lag sitt við skækjur, glatar eigum sínum.4Konungurinn eflir landið með rétti, en sá sem þiggur mútur, eyðir það.5Sá maður, sem smjaðrar fyrir náunga sínum, hann leggur net fyrir fætur hans.6Í misgjörð vonds manns er fólgin snara, en réttlátur maður fagnar og gleðst.7Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lítilmótlegu, en óguðlegur maður hirðir ekkert um að kynna sér það.8Spottarar æsa upp borgina, en vitrir menn lægja reiðina.9Þegar vitur maður á í þrætumáli við afglapa, þá reiðist hann og hlær, en hvíld fæst engin.10Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda, en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.11Heimskinginn úthellir allri reiði sinni, en vitur maður sefar hana að lokum.12Þegar drottnarinn hlýðir á lygaorð, verða allir þjónar hans bófar.13Fátæklingurinn og kúgarinn mætast, Drottinn ljær ljós augum beggja.14Sá konungur, sem dæmir hina lítilmótlegu með réttvísi, hásæti hans mun stöðugt standa að eilífu.15Vöndur og umvöndun veita speki, en agalaus sveinn gjörir móður sinni skömm.16Þegar óguðlegum fjölgar, fjölgar og misgjörðum, en réttlátir munu horfa á fall þeirra.17Aga þú son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró og veita unað sálu þinni.18Þar sem engar vitranir eru, kemst fólkið á glapstigu, en sá sem varðveitir lögmálið, er sæll.19Þræll verður eigi agaður með orðum, því að hann skilur þau að vísu, en fer ekki eftir þeim.20Sjáir þú mann, sem er fljótfær í orðum, þá er meiri von um heimskingja en hann.21Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku, vill hann að lokum verða ungherra.22Reiðigjarn maður vekur deilur, og bráðlyndur maður drýgir marga synd.23Hroki mannsins lægir hann, en hinn lítilláti mun virðing hljóta.24Þjófsnauturinn hatar líf sitt, hann hlýðir á bölvunina, en segir þó ekki frá.25Ótti við menn leiðir í snöru, en þeim er borgið, sem treystir Drottni.26Margir leita hylli drottnarans, en réttur mannsins kemur frá Drottni.27Andstyggð réttlátra er sá, sem ranglæti fremur, og andstyggð óguðlegra sá, sem ráðvandlega breytir.

29.3 Skækjur Sír 9.6; Lúk 15.30; sbr Okv 2.16+
29.12 Lygaorð sbr Okv 12.6+
29.14 Stöðugt hásæti Okv 16.12; 20.28; 25.5; Jes 16.5
29.15 Vöndur Ovk 13.24+ – umvöndum Okv 10.17; sbr Okv 15.5+
29.16 Fall þeirra Jes 22.15-23; 28.14-15,18-19
29.17 Agaðu son þinn Okv 13.24+
29.18 Engar vitranir Slm 74.9+ – sæll Slm 1.1+
29.22 Reiðigjarn Okv 14.17+
29.23 Hinn hógværi Okv 11.2+
29.25 Treysta Drottni Okv 3.5-6+