1Naaman, hershöfðingi Sýrlandskonungs, var í miklum metum hjá herra sínum og í hávegum hafður, því að undir forustu hans hafði Drottinn veitt Sýrlendingum sigur. Var maðurinn hinn mesti kappi, en líkþrár.2Sýrlendingar höfðu farið herför í smáflokkum og haft burt af Ísraelslandi unga stúlku. Þjónaði hún konu Naamans.3Hún sagði við húsmóður sína: Ég vildi óska að húsbóndi minn væri kominn til spámannsins í Samaríu. Hann mundi losa hann við líkþrána.4Þá fór Naaman og sagði herra sínum frá á þessa leið: Svo og svo hefir stúlkan frá Ísraelslandi talað.5Þá mælti Sýrlandskonungur: Far þú, ég skal senda Ísraelskonungi bréf. Lagði Naaman þá af stað og tók með sér tíu talentur silfurs, sex þúsund sikla gulls og tíu alklæðnaði.6Hann færði Ísraelskonungi bréfið, er var á þessa leið: Þegar bréf þetta kemur þér í hendur, þá skalt þú vita, að ég hefi sent til þín Naaman þjón minn, og skalt þú losa hann við líkþrá hans.7En er Ísraelskonungur hafði lesið bréfið, reif hann klæði sín og mælti: Er ég þá Guð, er deytt geti og lífgað, fyrst hann gjörir mér orð um að losa mann við líkþrá hans? Megið þér þar sjá og skynja, að hann leitar saka við mig.8En er Elísa, guðsmaðurinn, frétti, að Ísraelskonungur hefði rifið klæði sín, sendi hann til konungs og lét segja honum: Hví rífur þú klæði þín? Komi hann til mín, þá skal hann komast að raun um, að til er spámaður í Ísrael.9Þá kom Naaman með hesta sína og vagna og nam staðar úti fyrir húsdyrum Elísa.10Þá sendi Elísa mann til hans og lét segja honum: Far og lauga þig sjö sinnum í Jórdan, þá mun hold þitt komast í samt lag og þú munt hreinn verða!11Þá varð Naaman reiður og gekk burt og mælti: Ég hugði þó, að hann mundi koma út til mín og ganga að mér og ákalla nafn Drottins, Guðs síns, veifa hendinni í áttina til helgistaðarins og koma þannig líkþránni burt.12Eru ekki Abana og Farfar, fljótin hjá Damaskus, betri en allar ár í Ísrael? Gæti ég ekki laugað mig í þeim og orðið hreinn? Sneri hann sér þá við og hélt burt í reiði.13Þá gengu þjónar hans til hans, töluðu til hans og sögðu: Ef spámaðurinn hefði skipað þér eitthvað erfitt, mundir þú þá ekki hafa gjört það? Hve miklu fremur þá, er hann hefir sagt þér: Lauga þig og munt þú hreinn verða?14Þá fór hann ofan eftir og dýfði sér sjö sinnum niður í Jórdan, eins og guðsmaðurinn hafði sagt. Varð þá hold hans aftur sem hold á ungum sveini, og hann varð hreinn.15Þá hvarf hann aftur til guðsmannsins og allt hans föruneyti, og er hann kom þangað, gekk hann fyrir hann og mælti: Nú veit ég, að enginn Guð er til í neinu landi nema í Ísrael, og þigg nú gjöf af þjóni þínum.16En Elísa mælti: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er ég þjóna: Ég tek ekki við neinu! Og þótt hann legði að honum að taka við því, þá færðist hann undan.17Þá mælti Naaman: Ef ekki, þá lát þó gefa þjóni þínum mold á tvo múla, því að þjónn þinn mun eigi framar færa brennifórnir og sláturfórnir neinum guðum öðrum en Drottni.18Það eitt verður Drottinn að fyrirgefa þjóni þínum: Þegar herra minn gengur í musteri Rimmons til þess að biðjast þar fyrir, og hann þá styðst við hönd mína, svo að ég fell fram í musteri Rimmons, þegar hann fellur fram í musteri Rimmons, það verður Drottinn að fyrirgefa þjóni þínum.19En Elísa mælti til hans: Far þú í friði. En er Naaman var kominn spölkorn frá honum,20þá sagði Gehasí, sveinn Elísa, guðsmannsins, við sjálfan sig: Sjá, herra minn hefir hlíft Naaman þessum sýrlenska og ekki þegið af honum það, sem hann kom með. Svo sannarlega sem Drottinn lifir, þá skal ég hlaupa á eftir honum og þiggja eitthvað af honum.21Hélt Gehasí nú á eftir Naaman. En er Naaman sá mann koma hlaupandi á eftir sér, stökk hann af vagninum, gekk í móti honum og mælti: Er nokkuð að?22Gehasí svaraði: Nei, en herra minn sendir mig og lætur segja þér: Rétt í þessu komu til mín frá Efraímfjöllum tveir sveinar af spámannasveinunum. Gef mér handa þeim talentu silfurs og tvo alklæðnaði.23Naaman svaraði: Gjör þú mér þann greiða að taka við tveimur talentum! Og hann lagði að honum og batt tvær talentur silfurs í tvo sjóðu, svo og tvo alklæðnaði og fékk tveimur sveinum sínum, og báru þeir það fyrir honum.24En er þeir komu á hæðina, þá tók Gehasí við því af þeim, geymdi það í húsinu og lét mennina fara burt, og fóru þeir leiðar sinnar.25Síðan fór hann inn og gekk fyrir herra sinn. En Elísa sagði við hann: Hvaðan kemur þú, Gehasí? Hann svaraði: Þjónn þinn hefir alls ekkert farið.26Og Elísa sagði við hann: Ég fylgdi þér í anda, þegar maðurinn sneri frá vagni sínum í móti þér. Nú hefir þú fengið silfur og munt fá klæði, olíutré, víngarða, sauði og naut, þræla og ambáttir.27En líkþrá Naamans mun ávallt loða við þig og niðja þína. Gekk hann þá burt frá honum hvítur sem snjór af líkþrá.

5.1 Naaman Lúk 4.27 – holdsveikur 3Mós 13.2+
5.5 Gjöf handa spámanni 2Kon 8.8; 4Mós 22.7; 1Sam 9.8; 1Kon 14.3
5.7 Guð deyðir og lífgar 5Mós 32.39; 1Sam 2.6; Hós 6.1; Job 5.18; sbr 1Mós 30.2
5.10 Baða þig sbr 3Mós 14.1-18; Jóh 9.7
5.14 Varð hreinn sbr Esk 36.25
5.15 Enginn Guð nema … 1Kon 8.60+
5.17-19 Frjálslyndi í trúarsiðum 2Kon 10.18-27; 1Kor 8.; sbr Tób1.10-12; 1Makk 1.62-63; 1Kor 10.14-22
5.26 Elísa vissi sbr 2Kon 4.27+
5.27 Holdsveiki 2Kon 15.5; 2Mós 4.6-7; 4Mós 12.10