1Bóas gekk upp í borgarhliðið og settist þar. Þá bar svo við, að lausnarmaðurinn gekk fram hjá, sá er Bóas hafði talað um. Bóas sagði: Kom þú og sestu hér, þú þarna! Og hann sneri þangað og settist niður.2Þá tók hann tíu menn af öldungum borgarinnar og sagði: Setjist hér! Og þeir settust niður.3Síðan sagði hann við lausnarmanninn: Akurland það, er Elímelek frændi okkar átti, hefir Naomí selt, sú sem heim er komin úr Móabslandi.4Og ég hugsaði, að ég skyldi láta þig vita það og segja: Kaup það nú í viðurvist þeirra, er hér eru, og í viðurvist öldunga fólks míns. Ef þú vilt leysa, þá leystu. En ef þú vilt ekki leysa, þá segðu mér frá því, svo að ég viti það. Því að enginn er til, sem getur leyst, nema þú, og ég eftir þig. Hinn sagði: Ég ætla að leysa.5Þá sagði Bóas: Um leið og þú kaupir landið af Naomí, hefir þú og keypt Rut hina móabítísku, ekkju hins framliðna, til þess að reisa nafn hins framliðna á arfleifð hans.6Þá sagði lausnarmaðurinn: Ég get ekki leyst það handa mér, því að þá kynni ég að spilla arfleifð minni. Leys þú handa þér það, sem ég átti að leysa, því að ég get ekki leyst það.7Það var fyrrum siður í Ísrael við endurlausn og skipti, er menn vildu staðfesta allar gjörðir, að annar tók af sér skóinn og fékk hinum. Þetta var vottfesting í Ísrael.8Þá sagði lausnarmaðurinn við Bóas: Kaup þú það handa þér! og tók af sér skóinn.9Bóas sagði við öldungana og allt fólkið: Þér eruð í dag vottar að því, að ég hefi keypt af Naomí allt það, sem Elímelek átti, svo og allt það, sem þeir Kiljón og Mahlón áttu.10Einnig hefi ég keypt Rut hina móabítísku, ekkju Mahlóns, mér að konu, til þess að reisa nafn hins framliðna á arfleifð hans, svo að nafn hins framliðna upprætist eigi meðal bræðra hans og úr borgarhliði hans. Þér eruð vottar þess í dag.11Þá sagði allt fólkið, sem var í hliðinu, og öldungarnir: Vér erum vottar að því. Drottinn gjöri konuna, sem í hús þitt kemur, slíka sem þær voru Rakel og Lea, er báðar reistu Ísraels hús. Veitist þér vald í Efrata og verðir þú frægur í Betlehem.12Og verði hús þitt sem hús Peres, sem Tamar fæddi Júda, fyrir afsprengi það, sem Drottinn gefur þér við þessari ungu konu.13Síðan gekk Bóas að eiga Rut, og hún varð kona hans. Og hann gekk inn til hennar, og Drottinn veitti henni getnað, og ól hún son.14Þá sögðu konurnar við Naomí: Lofaður sé Drottinn, sem eigi hefir látið þig bresta lausnarmann í dag, svo að nafn hans mun nefnt verða í Ísrael.15Hann mun verða huggun þín og ellistoð, því að tengdadóttir þín, sem elskar þig, hefir alið hann, hún, sem er þér betri en sjö synir.16Naomí tók barnið og lagði það á skaut sér og varð fóstra þess.17Og grannkonurnar gáfu honum nafn og sögðu: Naomí er fæddur sonur! og nefndu hann Óbeð. Hann var faðir Ísaí, föður Davíðs.18Þetta er ættartala Peres: Peres gat Hesron,19og Hesron gat Ram, og Ram gat Ammínadab,20og Ammínadab gat Nakson, og Nakson gat Salmón,21og Salmón gat Bóas, og Bóas gat Óbeð,22og Óbeð gat Ísaí, og Ísaí gat Davíð.

4.5 Halda við nafni … 1Mós 38.8; 5Mós 25.5-7
4.11 Rakel, Lea 1Mós 29-30; 35.16-26
4.12 Tamar, Peres 1Mós 38.29; Matt 1.3
4.13 Veitti getnað 1Mós 29.31; 30.22
4.17 Fæddur sonur Jes 9.5
4.18 Ættartala 1Kro 2.5-15; Matt 1.3-5; Lúk 3.31-33
4.20 Nakson 4Mós 1.7; 2.3
4.22Davíð 1Sam 17.12; Matt 1.6