1Asafs-sálmur. Guð, heiðingjar hafa brotist inn í óðal þitt, þeir hafa saurgað þitt heilaga musteri og lagt Jerúsalem í rústir.2Þeir hafa gefið lík þjóna þinna fuglum himins að fæðu og villidýrunum hold dýrkenda þinna.3Þeir hafa úthellt blóði þeirra sem vatni umhverfis Jerúsalem, og enginn jarðaði þá.4Vér erum til háðungar nábúum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.5Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að vera reiður, á vandlæti þitt að brenna sem eldur án afláts?6Hell þú reiði þinni yfir heiðingjana, sem eigi þekkja þig, og yfir konungsríki, er eigi ákalla nafn þitt.7Því að þeir hafa uppetið Jakob og lagt bústað hans í eyði.8Lát oss eigi gjalda misgjörða forfeðra vorra, lát miskunn þína fljótt koma í móti oss, því að vér erum mjög þjakaðir.9Hjálpa þú oss, Guð hjálpræðis vors, sakir dýrðar nafns þíns, frelsa oss og fyrirgef syndir vorar sakir nafns þíns.10Hví eiga heiðingjarnir að segja: Hvar er Guð þeirra? Lát fyrir augum vorum kunna verða á heiðingjunum hefndina fyrir úthellt blóð þjóna þinna.11Lát andvörp bandingjanna koma fram fyrir þig, leys þá sem komnir eru í dauðann, með þínum sterka armlegg,12og gjald nágrönnum vorum sjöfalt háðungina er þeir hafa sýnt þér, Drottinn.13En vér, lýður þinn og gæsluhjörð þín, munum lofa þig um eilífð, kunngjöra lofstír þinn frá kyni til kyns.

79.1 Asaf Slm 50.1+ – erfðaland Guðs 2Kon 25.9; Hlj 1.10; Slm 74.3-9
79.2 Líkin ekki grafin 1Makk 7.17; sbr Jer 19.7
79.3 Blóð eins og vatn Opb 16.6
79.4 Smánaðir Slm 44.14
79.5 Hversu lengi reiður? Slm 85.6; 89.47
79.6 Reiði þinni Jer 10.25 – þekkja ekki 1Þess 4.5
79.8 Misgjörðir forfeðranna Slm 25.7 – fljótt Slm 31.3+ – örmagna Slm 142.7
79.9 Guð frelsari vor Jes 43.3+ – fyrirgef syndir vorar Slm 51.3,11; Jes 43.25; 44.22; Post 3.19
79.10 Heiðingjar segja Slm 115.2; Jl 2.17 – hver er Guð þeirra? Slm 42.4; Mík 7.10; Mal 2.17 – hefnd 4Mós 35.19
79.11 Andvörp bandingjanna Slm 102.21
79.12 Háðungin Slm 89.51
79.13 Gæsluhjörð þín Slm 77.21+