1Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú og Tímóteus, bróðir vor, heilsa2hinum heilögu og trúuðu bræðrum í Kólossu, sem eru í Kristi. Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum.3Vér þökkum Guði, föður Drottins vors Jesú Krists, ávallt er vér biðjum fyrir yður.4Því að vér höfum heyrt um trú yðar á Krist Jesú og um kærleikann, sem þér berið til allra heilagra,5vegna vonar þeirrar, sem yður er geymd í himnunum. Um þá von hafið þér áður heyrt í orði sannleikans, fagnaðarerindinu,6sem til yðar er komið, eins og það einnig ber ávöxt og vex í öllum heiminum. Það hefur það líka gjört hjá yður frá þeim degi, er þér heyrðuð það og lærðuð að þekkja náð Guðs í sannleika.7Hið sama hafið þér og numið af Epafrasi, vorum elskaða samþjóni, sem er trúr þjónn Krists í vorn stað.8Hann hefur og sagt oss frá kærleika yðar, sem andinn hefur vakið með yður.9Frá þeim degi, er vér heyrðum þetta, höfum vér því ekki látið af að biðja fyrir yður. Vér biðjum þess, að þér mættuð fyllast þekkingu á vilja Guðs með allri speki og skilningi andans,10svo að þér hegðið yður eins og Drottni er samboðið, honum til þóknunar á allan hátt, og fáið borið ávöxt í öllu góðu verki og vaxið að þekkingu á Guði.11Mætti hann styrkja yður á allan hátt með dýrðarmætti sínum, svo að þér fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.14Í honum eigum vér endurlausnina, fyrirgefningu synda vorra.15Hann er ímynd hins ósýnilega Guðs, frumburður allrar sköpunar.16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega, hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt er skapað fyrir hann og til hans.17Hann er fyrri en allt, og allt á tilveru sína í honum.18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið, frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.19Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyllingu sína búa20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum, með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.21Og yður, sem áður fyrri voruð fráhverfir Guði og óvinveittir honum í huga yðar og vondum verkum,22yður hefur hann nú sátta gjört við sig með dauða Krists í jarðneskum líkama. Hann vildi láta yður koma fram fyrir sig heilaga og lýtalausa og óaðfinnanlega.23Standið aðeins stöðugir í trúnni, grundvallaðir og fastir fyrir og hvikið ekki frá von fagnaðarerindisins, sem þér hafið heyrt og prédikað hefur verið fyrir öllu, sem skapað er undir himninum, og er ég, Páll, orðinn þjónn þess.24Nú er ég glaður í þjáningum mínum yðar vegna. Það, sem enn vantar á þjáningar Krists, uppfylli ég með líkamlegum þjáningum mínum til heilla fyrir líkama hans, sem er kirkjan.25En hans þjónn er ég orðinn samkvæmt því hlutverki, sem Guð hefur mér á hendur falið yðar vegna: Að flytja Guðs orð óskorað,26leyndardóminn, sem hefur verið hulinn frá upphafi tíða og kynslóða, en nú hefur hann verið opinberaður Guðs heilögu.27Guð vildi kunngjöra þeim, hvílíkan dýrðar ríkdóm heiðnu þjóðirnar eiga í þessum leyndardómi, sem er Kristur meðal yðar, von dýrðarinnar.28Hann boðum vér, er vér áminnum sérhvern mann og fræðum með allri speki, til þess að vér getum leitt hvern mann fram fullkominn í Kristi.29Að þessu strita ég og stríði með þeim mætti, sem kröftuglega verkar í mér.

1.1-2 Páll postuli Ef 1.1-2; 1Kor 1.1-2 – Tímóteus Post 16.1+
1.3-5 Þakkað fyrir trú og kærleika Ef 1.15-16+
1.3 Þakka Róm 1.8-9; Ef 5.4,20; Kól 1.12; 2.7; 3.15-17; 4.2; 1Þess 1.2
1.4-5 Trú, kærleikur og von 1Kor 13.13+
1.5 Þið eigið geymt Ef 1.18; Heb 6.19; 1Pét 1.3-4
1.6 Fagnaðarerindið vex Matt 28.19-20; Mrk 4.8; 13.10; 16.15; 1Tím 3.16
1.7 Epafras Kól 4.12; Fílm 23
1.9 Fyrirbæn Kól 2.2-3; Ef 1.17-18; 3.14-19; Fil 1.9
1.10 Guði líkar Ef 4.1; 1Þess 2.12; Fil 1.27
1.12 Gert fært að fá arfleið Ef 1.14,18; 5Mós 33.3-4; Jós 14.1-5; SSal 5.5; Post 20.32; 26.18; 1Pét 1.4 – hin heilögu Róm 1.7+
1.13 Frelsa 2Mós 14.30 – frá myrkrinu Post 26.17-18 – myrkur og ljós Ef 5.8+ – hinn elskaði sonur Ef 1.6+
1.14 Endurlausnin Ef 1.7; Róm 3.24
1.15 Aðrir lofsöngvar um Krist Fil 2.6-11; 1Tím 3.16 – ímynd Guðs 1Mós 1.26; SSal 7.26; 2Kor 4.4+ ; Fil 2.6; Heb 1.1-4 – frumburður allrar sköpunar Okv 8.22-36; Sír 1.4-9; Jóh 1.1-18; Róm 8.29; Heb 1.6
1.16 Kristur og sköpunin Heb 1.2+ – tignir og völd Róm 8.38-39; 1Kor 2.8; 15.24; Ef 1.21; 3.10; 6.12; Kól 2.8,10,15
1.17 Fyrri en allt Jóh 3.31; 8.58
1.18 Samfélag trúaðra, líkami Krists Róm 12.4-5; 1Kor 12.12-27 – Kristur höfuð kirkjunnar Ef 1.22-23; 4.15-16; 5.23 – upphaf Opb 3.14 – frumburðurinn frá hinum dauðu Post 26.23; Róm 8.29; 1Kor 15.20; Heb 1.6; Opb 1.5
1.19 Fylling Ef 1.23+
1.20 Koma öllu í sátt Ef 1.10; 2.16; Kól 1.16-17; Róm 5.10; 2Kor 5.18-20 – friður Ef 2.14-17; Róm 5.1 – blóð Krists Ef 2.13+
1.21 Framandi og óvinveitt Ef 2.12; 4.18; Róm 5.10
1.22 Í jarðneskum líkama Ef 2.14-16; Róm 7.4; 8.3; Jóh 1.14 – fram fyrir Drottin Kól 1.28; Ef 5.27; 2Kor 11.2 – lýtalaus Ef 1.4+
1.23 Stöðug Ef 3.17; 1Kor 15.58; Heb 3.14 – von Kól 1.5+ – fagnaðarerindið prédikað Kól 1.5-6+
1.24 Til heilla fyrir líkama hans Ef 3.1,13; Post 9.16; 2Kor 4.10-12; 11.23; 2Tím 2.10
1.25 Hlutverk Ef 3.2; Jes 42.1-4; Róm 15.16-21 – flytja Guðs orð óskorað Mrk 13.9-10; Post 20.24; 2Tím 4.17
1.26 Leyndardómur Ef 3.3+ – hin heilögu Róm 1.7+
1.27 Dýrð Guðs kunngjörð meðal heiðinna þjóða Post 13.47; Róm 15.7-13 – von dýrðarinnar Kól 3.4; Ef 1.18; Róm 5.2; 8.19-21
1.28 Fullkomin Ef 4.13
1.29 Máttur Krists í mér Ef 3.7,20; Fil 4.13