1Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins, er flutti Drottni orð þessara ljóða, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls.2Hann mælti: Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn.3Drottinn, bjarg mitt og vígi og frelsari minn, Guð minn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín!4Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum.5Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,6snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.7Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Hann heyrði raust mína í helgidómi sínum, og óp mitt barst til eyrna honum.8Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður,9reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.10Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.11Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.12Hann gjörði myrkur að skýli sínu, regnsorta og skýþykkni að fylgsni sínu allt um kring.13Frá ljómanum fyrir honum brutust hagl og eldglæringar gegnum ský hans.14Þá þrumaði Drottinn á himnum, og Hinn hæsti lét raust sína gjalla.15Hann skaut örvum sínum og tvístraði óvinum sínum, lét eldingar leiftra og hræddi þá.16Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnun þinni, Drottinn, fyrir andgustinum úr nösum þínum.17Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.18Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.19Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð.20Hann leiddi mig út á víðlendi, frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér.21Drottinn fer með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna geldur hann mér,22því að ég hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum.23Allar skipanir hans hefi ég fyrir augum, og boðorðum hans þokaði ég eigi burt frá mér.24Ég var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum.25Fyrir því galt Drottinn mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans.26Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur,27gagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn.28Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir hrokafulla niðurlúta.29Já, þú lætur lampa minn skína, Drottinn, Guð minn, þú lýsir mér í myrkrinu.30Því að fyrir þína hjálp brýt ég múra, fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi.31Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum þeim sem leita hælis hjá honum.32Hver er Guð nema Drottinn, og hver er hellubjarg utan vor Guð?33Sá Guð sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan,34sem gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum,35sem æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann.36Og þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og hægri hönd þín studdi mig, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.37Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum, og ökklar mínir riðuðu ekki.38Ég elti óvini mína og náði þeim og sneri ekki aftur, fyrr en ég hafði gjöreytt þeim.39Ég molaði þá sundur, þeir máttu eigi upp rísa, þeir hnigu undir fætur mér.40Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig.41Þú lést mig sjá bak óvina minna, og fjendum mínum eyddi ég.42Þeir hrópuðu, en enginn kom til hjálpar, þeir hrópuðu til Drottins, en hann svaraði þeim ekki.43Og ég muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem saur á strætum.44Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja þjóðanna, lýður sem ég þekkti ekki þjónar mér.45Óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér, útlendingar smjaðra fyrir mér.46Útlendingar dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum.47Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns,48sá Guð sem veitti mér hefndir og braut þjóðir undir mig,49sem hreif mig úr höndum óvina minna. Og yfir mótstöðumenn mína hófst þú mig, frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig.50Fyrir því vil ég vegsama þig, Drottinn, meðal þjóðanna og lofsyngja þínu nafni.51Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu.

18.2 Ég elska þig Drottinn sbr Slm 116.1 – styrkur minn Slm 118.14; 2Mós 15.2; Jes 12.2; Hab 3.19
18.3 Drottinn, bjarg mitt Slm 28.1+ ; vígi Slm 27.1+ ; athvarf Slm 40.18; 144.2; Lúk 1.69 – Guð minn Slm 22.11+ ; leita hælis hjá Guði Slm 7.2+ – Skjöldur minn Slm 3.4+
18.4 Hrópa til Drottins Slm 18.7; 3.5+
18.5 Dauðans bönd Slm 116.3; sbr Post 2.24
18.7 Ég kallaði Slm 3.5+ – hann heyrði Slm 4.4; 34.7; 116.1; 145.19; 2Mós 3.7; Jes 30.19; Jón 2.3
18.8 Jörðin nötaði 1Kon 19.11-12; Hab 3.6 – fjöllin Skulfu 2Mós 19.16,18; Hab 3.10 – Guð reiðist Hab 3.8,12
18.10 Steig ofan Slm 144.5; sbr 2Mós 3.8; 19.11,18,20; Jes 64.1
18.11 a) Kerúbar gæta Edengarðs 1Mós 3.24; Esk 28.14,16, b) reiðskjótar Drottins Slm 80.2; 99.1; 1Sam 4.4; 2Sam 6.2; 2Kon 19.15; c) í musterinu 1Kon 6.23-29; 2Kro 3.14 – á vængjum vindsins Slm 104.3
18.12 Myrkur Slm 97.2; 5Mós 4.11
18.14 Raust hins hæsta Slm 29; 77.18-19
18.15 Örvar, eldingar Slm 144.6
18.16 Blástur úr nösum 2Mós 15.8; Job 37.10
18.17 Vötnunum djúpu Slm 144.7
18.18 Bjargaði mér Slm 142.7
18.20 Hafa mætur á Slm 22.9
18.22 Vegir Drottins Slm 18.31; 25.9; 37.34; 77.14; 103.7; 128.1; 1Mós 18.19; Jes 2.3; 40.3; Mrk 1.3 og hlst.
18.23 Virða boðorðin Slm 119.102
18.24 Flekklaus fyrir Guði 5Mós 18.13
18.27 Andsnúinn Okv 3.34
18.28 Gerir hrokafulla niðurlúta Jes 2.11; 5.15; Okv 6.16-17
18.31 Orð Drottins Slm 12.7; Okv 30.5
18.32 Hver er Guð … ? Slm 46.11; 86.10; 90.2; Jes 43.10; 44.6,8; 45.6,14,21,22; Mrk 12.32; Jóh 17.3; 1Kor 8.4; Gal 3.20; Ef 4.5-6; 1Tím 2.5
18.34 Sem fætur hindanna Hab 3.19
18.35 Til hernaðar Slm 144.1
18.36 Hönd þín Slm 17.7+ 63.9; 98.1 – studdi mig Slm 20.3; Jes 9.6
18.44 Leiðtogi þjóðanna Slm 2.8-9; Opb 2.26-27
18.46 Skjálfandi Mík 7.17
18.48 Leggur þjóðir undir mig Slm 47.4; 144.2
18.50 Vegsama þig meðal þjóðanna Róm 15.9
18.51 Hinn smurði Slm 2.2+ – Davíð og niðjar hans 2Sam 7.16-29 – að eilífu Slm 89.5,30