1Davíðssálmur. Deil þú, Drottinn, við þá er deila við mig, berst þú við þá er berjast við mig.2Tak skjöld og törgu og rís upp mér til hjálpar.3Tak til spjót og öxi til þess að mæta ofsækjendum mínum, seg við sál mína: Ég er hjálp þín!4Lát þá er sitja um líf mitt hljóta smán og svívirðing, lát þá hverfa aftur með skömm, er ætla að gjöra mér illt.5Lát þá verða sem sáðir fyrir vindi, þegar engill Drottins varpar þeim um koll.6Lát veg þeirra verða myrkan og hálan, þegar engill Drottins eltir þá.7Því að ástæðulausu hafa þeir lagt net sitt leynt fyrir mig, að ástæðulausu hafa þeir grafið gryfju fyrir mig.8Lát tortíming koma yfir þá, er þá varir minnst, lát netið, er þeir hafa lagt leynt, veiða sjálfa þá, lát þá falla í þeirra eigin gryfju.9En sál mín skal kætast yfir Drottni, gleðjast yfir hjálpræði hans.10Öll bein mín skulu segja: Drottinn, hver er sem þú, er frelsar hinn umkomulausa frá þeim sem er honum yfirsterkari, hinn hrjáða og snauða frá þeim sem rænir hann?11Ljúgvottar rísa upp, þeir spyrja mig um það sem ég veit ekki um.12Þeir launa mér gott með illu, einsemd varð hlutfall mitt.13En þegar þeir voru sjúkir, klæddist ég hærusekk, þjáði mig með föstu og bað með niðurlútu höfði,14gekk um harmandi, sem vinur eða bróðir ætti í hlut, var beygður eins og sá er syrgir móður sína.15En þeir fagna yfir hrösun minni og safnast saman, útlendingar og ókunnugir menn safnast saman móti mér, mæla lastyrði og þagna eigi.16Þeir freista mín, smána og smána, nísta tönnum í gegn mér.17Drottinn, hversu lengi vilt þú horfa á? Frelsa sál mína undan eyðileggingu þeirra, mína einmana sál undan ljónunum.18Þá vil ég lofa þig í miklum söfnuði, vegsama þig í miklum mannfjölda.19Lát eigi þá sem án saka eru óvinir mínir, hlakka yfir mér, lát eigi þá sem að ástæðulausu hata mig, skotra augunum.20Því að frið tala þeir eigi, og móti hinum kyrrlátu í landinu hugsa þeir upp sviksamleg orð.21Þeir glenna upp ginið í móti mér, segja: Hæ, hæ! Nú höfum vér séð það með eigin augum!22Þú hefir séð það, Drottinn, ver eigi hljóður, Drottinn, ver eigi langt í burtu frá mér.23Vakna, rís upp og lát mig ná rétti mínum, Guð minn og Drottinn, til þess að flytja mál mitt.24Dæm mig eftir réttlæti þínu, Drottinn, Guð minn, og lát þá eigi hlakka yfir mér,25lát þá ekki segja í hjarta sínu: Hæ! Ósk vor er uppfyllt! lát þá ekki segja: Vér höfum gjört út af við hann.26Lát þá alla verða til skammar og hljóta kinnroða, er hlakka yfir ógæfu minni, lát þá íklæðast skömm og svívirðing, er hreykja sér upp gegn mér.27Lát þá kveða fagnaðarópi og gleðjast, er unna mér réttar, lát þá ætíð segja: Vegsamaður sé Drottinn, hann sem ann þjóni sínum heilla!28Og tunga mín skal boða réttlæti þitt, lofstír þinn liðlangan daginn.

35.4 Smána Slm 35.26; 40.15; 70.3; 71.13
35.5 Sem hismi Slm 1.4; 83.14 – engill Drottins Slm 34.8+
35.6 Háll vegur Slm 73.18; sbr Jer 23.12
35.7 Gryfja Slm 7.16+ – net Slm 9.16+ ; 57.7; 140.6; Hlj 1.13
35.8 Eyðing Jes 47.11
35.10 Hver er sem þú? Slm 40.6; 71.19; 77.14; 89.7; 113.5
35.11 Ljúgvitni Slm 27.12+
35.12 Launa gott með illu Slm 38.21; 109.4-5; Okv 17.13
35.14 Syrgjandi Slm 38.7
35.15 Gegn mér 2Sam 5.6,8
35.17 Bjarga lífi mínu Slm 22.21
35.18 Fjölmenni Slm 22.23; 40.10; 107.32; sbr 111.1+
35.19 Skotra augunum Okv 6.13; 10.10; Sr 27.22 – án ástæðu Slm 38.20; 69.5; Jóh 15.25
35.20 Stuðla ekki að friði Slm 120.6
35.21 Háðsyrði Slm 40.16; 70.4
35.22 Ver eigi hljóður Slm 22.12+
35.23 Vakna Slm 7.7; 44.24; sbr 59.5-6; Jes 51.9
35.25 Ráð óvinanna Slm 40.14-17; 70.3-5
35.28 Boða réttlæti þitt Slm 71.24