1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð.2Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd.3Þú sem heyrir bænir, til þín kemur allt hold.4Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor.5Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.6Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,7þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika,8þú sem stöðvar brimgný hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,9svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna.10Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni, þú hefir framleitt korn þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði.11Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess, með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess.12Þú hefir krýnt árið með gæsku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feiti.13Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði.14Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.

65.2 Guð á Síon Slm 132.13; 135.21; Jes 31.9; 46.13; Jer 8.19; 31.6; Jl 4.17; Hlj 4.11 – efna heitin Slm 76.12+
65.3 Guð heyrir bænir Slm 17.1; 66.19-20; Jón 2.8; Okv 15.29; sbr Slm 34.16 – allir menn Jes 66.23
65.4 Guð fyrirgefur misgjörðir Slm 78.38; 5Mós 21.8
65.5 Sæll … Slm 1.1+ – í forgöðrum þínum Slm 84.3; 92.14; 96.8; 100.4; 135.2; Jes 1.12; Sk 3.7 – seðjast Slm 36.9; 90.14; Jer 31.14
65.6 Bænheyrir oss af réttlæti 5Mós 10.21; Jes 64.2 – Guð hjálpræðis vors Jes 17.10+
65.7 Festir fjöllin Slm 24.2; 119.90; Jer 10.12 – gyrtur styrkleika Slm 93.1
65.8 Lægir brimgný hafanna Slm 89.10+ – háreysti þjóðanna Jes 29.7; Slm 2.1
65.9 Þjóðirnar fagna Slm 67.5
65.10 Vökvað landið Jes 30.23; Jl 2.23 – lækur Guðs Slm 46.5+ – korn Hós 2.10; Jl 2.19
65.12 Drjúpa af feiti Slm 72.16; Am 9.13
65.13 Hæðirnar fagna Slm 96.12