1Þess vegna, mínir elskuðu og þráðu bræður, gleði mín og kóróna, standið þá stöðugir í Drottni, þér elskuðu.2Evodíu áminni ég og Sýntýke áminni ég um að vera samlyndar vegna Drottins.3Já, ég bið einnig þig, trúlyndi samþjónn, hjálpa þú þeim, því að þær börðust með mér við boðun fagnaðarerindisins, ásamt Klemens og öðrum samverkamönnum mínum, og standa nöfn þeirra í lífsins bók.4Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.5Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.6Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.7Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.8Að endingu, bræður, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dyggð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.9Þetta, sem þér hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín, það skuluð þér gjöra. Og Guð friðarins mun vera með yður.10Ég varð mjög glaður í Drottni yfir því, að hagur yðar hefur loks batnað svo aftur, að þér gátuð hugsað til mín. Að sönnu hafið þér hugsað til mín, en gátuð ekki sýnt það.11Ekki segi ég þetta vegna þess, að ég hafi liðið skort, því að ég hef lært að láta mér nægja það, sem fyrir hendi er.12Ég kann að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir. Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlutum, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort.13Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.14Engu að síður gjörðuð þér vel í því, að taka þátt með mér í þrengingu minni.15Þér vitið og, Filippímenn, að þegar ég í upphafi boðaði yður fagnaðarerindið og var farinn burt úr Makedóníu, hafði enginn söfnuður nema þér einir reikning hjá mér yfir gefið og þegið.16Meira að segja, þegar ég var í Þessaloníku, senduð þér mér oftar en einu sinni til nauðsynja minna.17Ekki að mér væri svo umhugað um gjöfina sem um ábata þann, sem ríkulega rennur í yðar reikning.18En nú hef ég fengið allt og hef meira en nóg síðan ég af hendi Epafrodítusar tók við sendingunni frá yður, þægilegum ilm, þekkri fórn, Guði velþóknanlegri.19En Guð minn mun af auðlegð dýrðar sinnar í Kristi Jesú uppfylla sérhverja þörf yðar.20Guði og föður vorum sé dýrðin um aldir alda. Amen.21Heilsið öllum heilögum í Kristi Jesú.22Bræðurnir, sem hjá mér eru, biðja að heilsa yður. Allir hinir heilögu biðja að heilsa yður, en einkanlega þeir, sem eru í þjónustu keisarans.23Náðin Drottins Jesú Krists sé með anda yðar.

4.1 Standið stöðug Fil 1.27+
4.2 Samlyndar Fil 2.2+
4.3 Börðust með mér Fil 1.30+ – samverkamenn postulans Róm 16.3,9,21; 2Kor 8.23; Fil 2.25; Kól 4.11; Fílm1, 24 1Þess 3.2 – lífsins bók Opb 3.5+
4.4 Verið glöð Fil 1.4+
4.5 Drottinn er í nánd Fil 3.20; Heb 10.37; Jak 5.8-9; 1Pét 4.7; Opb 3.11; 22.20
4.6 Verið ekki hugsjúk Matt 6.25-34; 1Pét 5.7 – bæn og þakkargjörð Fil 1.3-4+
4.7 Friður Jes 26.3; Jóh 14.27; Kól 3.15
4.8 Sbr Róm 12.2
4.9 Það sem þið hafið numið 1Þess 4.1; 2Þess 2.15; 3.6 – Guð friðarins Róm 15.33; 16.20; 1Kor 14.33; 1Þess 5.23
4.10 Filippímenn senda gjafir Fil 2.25-30; 4.18
4.13 Sá sem mig styrkan gjörir 2Kor 12.9-10; Fil 3.10,21; Kól 1.11; 2Tím 4.17
4.15 Upphaf boðunar í Filippí Post 16.12-40 – enginn annar söfnuður 2Kor 11.8-9 – Páll fer til Makedóníu Post 20.1
4.17 Ábati – ávöxtur Matt 3.8+
4.18 Þægilegur ilmur 1Mós 8.21; 2Mós 29.18; Esk 20.41; Ef 5.2 – þekk fórn Róm 12.1-2; sbr Fil 2.17,30
4.20 Guði sé dýrðin Róm 16.27; Ef 3.20-21; Fil 1.11; 2.11