1Spádómur um Egyptaland. Sjá, Drottinn ekur á léttfæru skýi og kemur til Egyptalands. Þá skjálfa goð Egyptalands fyrir honum og hjörtu Egypta bráðna í brjóstum þeirra.2Ég æsi Egypta í gegn Egyptum, svo að bróðir skal berjast við bróður, vinur við vin, borg við borg og ríki við ríki.3Hyggindi Egypta munu þá verða örþrota, og ráðagjörðir þeirra ónýti ég. Þeir munu leita frétta hjá goðum sínum, hjá galdramönnum, þjónustuöndum og spásagnaröndum.4Ég vil selja Egypta harðráðum drottnara á vald, og grimmur konungur skal ríkja yfir þeim segir hinn alvaldi, Drottinn allsherjar.5Vötnin í sjónum munu þverra og fljótið grynnast og þorna upp.6Árkvíslarnar munu fúlna, fljót Egyptalands þverra og þorna, reyr og sef visna.7Engjarnar fram með Níl, á sjálfum Nílarbökkunum, og öll sáðlönd við Níl þorna upp, eyðast og hverfa.8Þá munu fiskimennirnir andvarpa og allir þeir sýta, sem öngli renna í Níl, og þeir, sem leggja net í vötn, munu örvilnast.9Þeir, sem vinna hörinn, munu standa ráðþrota, kembingarkonurnar og vefararnir blikna.10Stoðir landsins skulu brotnar verða sundur, allir þeir, sem vinna fyrir kaup, verða hugdaprir.11Höfðingjarnir í Sóan eru tómir heimskingjar, ráðspekin hjá hinum vitrustu ráðgjöfum Faraós orðin að flónsku. Hvernig dirfist þér að segja við Faraó: Ég er sonur vitringanna og kominn af fornkonungunum?12Hvar eru nú vitringar þínir? Þeir ættu nú að segja þér, og mega vita, hverja fyrirætlan Drottinn allsherjar hefir með Egyptaland.13Höfðingjarnir í Sóan standa eins og afglapar, höfðingjarnir í Nóf eru á tálar dregnir. Þeir sem eru hyrningarsteinar ættkvísla Egyptalands, hafa leitt það á glapstigu.14Drottinn hefir byrlað þeim sundlunaranda, svo að þeir valda því, að Egyptaland er á reiki í öllum fyrirtækjum sínum, eins og drukkinn maður reikar innan um spýju sína.15Ekkert heppnast Egyptalandi, hvorki það sem höfuð eða hali, pálmakvistur eða sefstrá taka sér fyrir að gjöra.16Á þeim degi munu Egyptar verða sem konur, þeir munu skelfast og hræðast reidda hönd Drottins allsherjar, er hann reiðir gegn þeim.17Þá skal Egyptalandi standa ótti af Júdalandi. Í hvert sinn sem á það er minnst við þá munu þeir skelfast, vegna ráðs þess, er Drottinn allsherjar hefir ráðið gegn þeim.18Á þeim degi munu fimm borgir í Egyptalandi mæla á kanverska tungu og sverja hlýðni Drottni allsherjar. Skal ein þeirra kallast Bær réttvísinnar.19Á þeim degi mun vera altari handa Drottni í miðju Egyptalandi og merkissteinn handa Drottni við landamærin.20Það skal vera til merkis og vitnisburðar um Drottin allsherjar í Egyptalandi. Þegar þeir hrópa til Drottins undan kúgurunum, mun hann senda þeim fulltingjara og forvígismann, er frelsar þá.21Drottinn mun kunnur verða Egyptalandi, og Egyptar munu þekkja Drottin á þeim degi. Þeir munu dýrka hann með sláturfórnum og matfórnum og vinna Drottni heit og efna þau.22Og Drottinn mun slá Egyptaland, slá og græða, og þeir munu snúa sér til Drottins, og hann mun bænheyra þá og græða þá.23Á þeim degi skal vera brautarvegur frá Egyptalandi til Assýríu, og Assýringar skulu koma til Egyptalands og Egyptar til Assýríu, og Egyptar munu tilbiðja ásamt Assýringum.24Á þeim degi munu þessir þrír taka saman, Ísrael, Egyptaland og Assýría, og vera blessun á jörðinni miðri.25Drottinn allsherjar blessar þá og segir: Blessuð sé þjóð mín Egyptar, verkið handa minna Assýría og arfleifð mín Ísrael!

19.1 Drottinn kemur 5Mós 33.26; Slm 18.10; 96.13; Nah 1.3 o.fl. – goð Jes 2.8,18,20; 10.10; 31.7
19.3 Spásagnamenn Egypta 1Mós 41.8; 2Mós 7.11,22; 8.2,15 – spásagnarandar Jes 8.19+
19.4 Drottinn allsherjar Jes 1.24+
19.11 Sóan Jes 30.4; 4Mós 13.22; Esk 30.14; Slm 78.12 – speki Egypta 1Mós 41.8; 1Kon 5.10; SSal 17.7; Post 7.22
19.13 Nóf Jer 2.16; 44.1; 46.14; Esk 30.13,16
19.14 Reikulir Jes 28.7; Jer 48.26
19.15 Haus né hali Jes 9.13+
19.20 Vitni Jes 8.18 – bjargvættur Dóm 2.16-18
19.21 Viðurkenna Drottin 2Mós 6.3; Esk 6.14; 13.14,21; 20.5,9 o.fl.
19.22 Hann læknar Hós 6.1
19.24 Blessun 1Mós 12.2; Sak 8.13
19.25 Afturhvarf heiðingjanna Jes 18.7; Mík 4.1+ – erlendar þjóðir Slm 87 – Ísrael, arfleið Drottins 5Mós 9.26,29; 32.9; Slm 28.9