1Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.3Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast.4Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn hversu lengi?5Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar.6Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju?7Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt.8Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna.9Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.10Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni.11Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt.

6.2 Í reiði Slm 38.2; Jer 10.24; sbr Okv 3.11-12
6.3 Líkna mér Slm 30.3; 41.5; sbr 107.20
6.4 Hversu lengi? Slm 80.5; 90.13; Jes 6.11; Hab 1.2; Sak 1.12; sbr Slm 13.2; 74.9; 89.47; 94.3; Opb 6.10
6.5 Snú þú aftur Slm 90.13
6.6 Í dánarheimum Slm 30.10; 88.6,11-13; 115.17; Jes 38.18
6.7 Úrvinda Slm 69.4; Jer 45.3
6.8 Döpur af harmi Slm 31.10
6.9 Víkið frá Slm 119.115; 139.19; Matt 7.23; Lúk 13.27; sbr Matt 25.41
6.10 Drottinn hefur Hlustað Slm 4.4; 34.7; 116.1; 145.19; 1Mós 16.11; 2Mós 2.24; 3.7; 22.22,26; Jes 30.19; Jón 2.3; Neh 9.9
6.11 Verða til skammar og skelfast Slm 83.18