1Davíðssálmur. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?2Þegar illvirkjarnir nálgast mig til þess að fella mig, þá verða það andstæðingar mínir og óvinir, sem hrasa og falla.3Þegar her sest um mig, óttast hjarta mitt eigi, þegar ófriður hefst í gegn mér, er ég samt öruggur.4Eins hefi ég beðið Drottin, það eitt þrái ég: Að ég fái að dveljast í húsi Drottins alla ævidaga mína til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.5Því að hann geymir mig í skjóli á óheilladeginum, hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett.6Þess vegna hefst upp höfuð mitt yfir óvini mína umhverfis mig, að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottni.7Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt, sýn mér miskunn og svara mér!8Mér er hugsað til þín, er sagðir: Leitið auglitis míns! Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn.9Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefir verið fulltingi mitt, hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.10Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur Drottinn mig að sér.11Vísa mér veg þinn, Drottinn, leið mig um slétta braut sakir óvina minna.12Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna, því að falsvitni rísa í gegn mér og menn er spúa rógmælum.13Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins á landi lifenda!14Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin.

27.1 Ljós Slm 4.7; 18.29; 36.10; 43.3; Jóh 8.12+ – vígi Slm 28.7-8; 31.3-4; 37.39; 52.9; 91.2; 94.22; sbr 9.10+
27.2 Gleypa mig Job 19.22
27.4 Í húsi Drottins Slm 23.6 – hjá Guði 2Mós 24.11; Slm 11.7; 17.15; 42.3; 63.3
27.5 Í Skjóli Slm 17.8; 31.21; 64.3 – upp á klett Slm 61.4
27.6 Fögnuður Slm 33.3; 3Mós 23.24
27.8 Leita auglits Drottins Slm 24.6; 105.4; Hós 5.15; sbr 2Sam 21.1
27.9 Hyl eigi auglit þitt Slm 13.2; 30.8; 44.25; 69.18; 88.15; 102.3; 143.7
27.10 Guð bæði faðir og móðir Jes 49.14-15; Jer 31.20
27.11 Vísa mér Slm 25.4,12; 86.11; 139.24
27.12 Falsvitni Slm 35.11; 1Kon 21.10-13; Mrk 14.56 og hlst.; Post 13
27.14 Vona á Drottinn Slm 37.34; 130.5-6 – ver öruggur Slm 31.25; Jós 1.9; 1Kor 16.13