1Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins.2Og lífið var opinberað, og vér höfum séð það og vottum um það og boðum yður lífið eilífa, sem var hjá föðurnum og var opinberað oss.3Já, það sem vér höfum séð og heyrt, það boðum vér yður einnig, til þess að þér getið líka haft samfélag við oss. Og samfélag vort er við föðurinn og við son hans Jesú Krist.4Þetta skrifum vér til þess að fögnuður vor verði fullkominn.5Og þetta er boðskapurinn, sem vér höfum heyrt af honum og boðum yður: Guð er ljós, og myrkur er alls ekki í honum.6Ef vér segjum: Vér höfum samfélag við hann, og göngum þó í myrkrinu, þá ljúgum vér og iðkum ekki sannleikann.7En ef vér göngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.8Ef vér segjum: Vér höfum ekki synd, þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss.9Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.10Ef vér segjum: Vér höfum ekki syndgað, þá gjörum vér hann að lygara og orð hans er ekki í oss.

1.1 Frá upphafi Jóh 1.1-2; 1Jóh 2.13-14 – sjónarvottar Jóh 1.14; 20.25; 1Jóh 4.14
1.2 Lífið Jóh 1.4; 11.25-26; 1Jóh 4.9 – eilíft líf Jóh 3.16; 1Jóh 2.25; 5.11,13 – hjá föðurnum Jóh 1.1
1.3 Samfélag 1Jóh 1.7; Jóh 17.20-21; 1Kor 1.9
1.4 Fögnuður Jóh 15.11; 16.24; 2Jóh 12
1.5 Boðskapurinn 1Jóh 3.11 – heyrt og boðum Jes 40.21; 42.9 o.fl.; Dan 2.2,4,7; 5.12,15 o.fl.; Jóh 4.25; 6.13-15 – ljós Jóh 1.4,5,9; 8.12; 9.5; 12.46; 1Tím 6.16; Jak 1.17
1.6 Í myrkrinu Jóh 8.12; 1Jóh 2.9 – ljúga 1Jóh 2.4,9 – iðka sannleikann Jóh 3.21
1.7 Ganga í ljósinu Jes 2.5; Ef 5.8 – blóð Jesú hreinsar Heb 9.14; Opb 1.5; 7.14
1.8 Hafa ekki synd 1Kon 8.46; Job 9.2; Okv 20.9; Préd 7.20; Róm 3.10-20
1.9 Játa syndir Slm 32.1-5; Okv 28.13; Matt 3.6; Mrk 1.5; Jak 5.16 – trúr og réttlátur 5Mós 32.4; 1Jóh 2.29-3.1 – fyrirgefa syndir Róm 4.6-8