1Þá svaraði Job og sagði:2Ó að gremja mín væri vegin og ógæfa mín lögð á vogarskálar!3Hún er þyngri en sandur hafsins, fyrir því hefi ég eigi taumhald á tungu minni.4Því að örvar hins Almáttka sitja fastar í mér, og andi minn drekkur í sig eitur þeirra. Ógnir Guðs steðja að mér.5Rymur skógarasninn yfir grængresinu, eða öskrar nautið yfir fóðri sínu?6Verður hið bragðlausa etið saltlaust, eða er gott bragð að hvítunni í egginu?7Matur minn fær mér ógleði, mig velgir við að snerta hann.8Ó að ósk mín uppfylltist, og Guð léti von mína rætast!9Ég vildi að Guði þóknaðist að merja mig sundur, rétta út höndina og skera lífsþráð minn sundur!10Þá væri það þó enn huggun mín og ég skyldi hoppa af gleði í vægðarlausri kvölinni að ég hefi aldrei afneitað orðum hins Heilaga.11Hver er kraftur minn, að ég skyldi þreyja, og hver verða endalok mín, að ég skyldi vera þolinmóður?12Er þá kraftur minn kletta kraftur, eða er líkami minn af eiri?13Er ég ekki með öllu hjálparvana og öll frelsun frá mér hrakin?14Hrelldur maður á heimting á meðaumkun hjá vini sínum, enda þótt hann hætti að óttast hinn Almáttka.15Bræður mínir brugðust eins og lækur, eins og farvegur lækja, sem flóa yfir,16sem gruggugir eru af ís og snjórinn hverfur ofan í.17Jafnskjótt og þeir bakast af sólinni, þorna þeir upp, þegar hitnar, hverfa þeir burt af stað sínum.18Kaupmannalestirnar beygja af leið sinni, halda upp í eyðimörkina og farast.19Kaupmannalestir frá Tema skyggndust eftir þeim, ferðamannahópar frá Saba reiddu sig á þá.20Þeir urðu sér til skammar fyrir vonina, þeir komu þangað og urðu sneyptir.21Þannig eruð þér nú orðnir fyrir mér, þér sáuð skelfing og skelfdust.22Hefi ég sagt: Færið mér eitthvað og borgið af eigum yðar fyrir mig,23frelsið mig úr höndum óvinarins og leysið mig undan valdi kúgarans?24Fræðið mig, og ég skal þegja, og sýnið mér, í hverju mér hefir á orðið.25Hversu áhrifamikil eru einlægninnar orð, en hvað sanna átölur yðar?26Hafið þér í hyggju að ásaka orð? Ummæli örvilnaðs manns hverfa út í vindinn.27Þér munduð jafnvel hluta um föðurleysingjann og selja vin yðar.28Og nú ó að yður mætti þóknast að líta á mig, ég mun vissulega ekki ljúga upp í opið geðið á yður.29Snúið við, fremjið eigi ranglæti, já, snúið við, enn þá hefi ég rétt fyrir mér.30Er ranglæti á minni tungu, eða ætli gómur minn greini ekki hvað illt er?

6.4 Örvar Hins Almáttka Job 16.13; 34.6; Slm 38.3 – ógnir Guðs Job 9.34; 13.21; 30.15; Slm 88.16-18
6.9 Að Guði þóknaðist … Job 3.21
6.10 Gleyma ekki lögmáli Guðs 5Mós 6.6-9; Slm 78.1-7
6.14 Samúð vinar Job 29.12-13; 31.16-20 – óttast Hinn Almáttka Okv 30.9
6.15 Eins og lækur Jer 15.18; sbr Jer 2.13
6.23 Bjargið, kaupið lausan Jer 15.21
6.24 Sýnið mér Job 10.2; 13.23
6.26 Hverfa út í loftið Job 35.13