1En postularnir og bræðurnir í Júdeu heyrðu, að heiðingjarnir hefðu einnig tekið við orði Guðs.2Þegar Pétur kom upp til Jerúsalem, deildu umskurnarmennirnir á hann og sögðu:3Þú hefur farið inn til óumskorinna manna og etið með þeim.4En Pétur sagði þeim þá alla söguna frá rótum og mælti:5Ég var að biðjast fyrir í borginni Joppe og sá, frá mér numinn, sýn, hlut nokkurn koma niður, eins og stór dúkur væri látinn síga á fjórum skautum frá himni, og hann kom til mín.6Ég starði á hann og hugði að og sá þá ferfætt dýr jarðar, villidýr, skriðdýr og fugla himins,7og ég heyrði rödd segja við mig: Slátra nú, Pétur, og et!8En ég sagði: Nei, Drottinn, engan veginn, því að aldrei hefur neitt vanheilagt né óhreint komið mér í munn.9Í annað sinn sagði rödd af himni: Eigi skalt þú kalla það vanheilagt, sem Guð hefur lýst hreint!10Þetta gjörðist þrem sinnum, og aftur var allt dregið upp til himins.11Samstundis stóðu þrír menn við húsið, sem ég var í, sendir til mín frá Sesareu.12Og andinn sagði mér að fara með þeim hiklaust. Þessir sex bræður urðu mér einnig samferða, og vér gengum inn í hús mannsins.13Hann sagði oss, hvernig hann hefði séð engil standa í húsi sínu, er sagði: Send þú til Joppe og lát sækja Símon, er kallast Pétur.14Hann mun orð til þín mæla, og fyrir þau munt þú hólpinn verða og allt heimili þitt.15En þegar ég var farinn að tala, kom heilagur andi yfir þá, eins og yfir oss í upphafi.16Ég minntist þá orða Drottins, er hann sagði: Jóhannes skírði með vatni, en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda.17Fyrst Guð gaf þeim nú sömu gjöf og oss, er vér tókum trú á Drottin Jesú Krist, hvernig var ég þá þess umkominn að standa gegn Guði?18Þegar þeir heyrðu þetta, stilltust þeir, og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: Guð hefur þá einnig gefið heiðingjunum afturhvarf til lífs.19Þeir, sem dreifst höfðu vegna ofsóknarinnar, sem varð út af Stefáni, fóru allt til Fönikíu, Kýpur og Antíokkíu. En Gyðingum einum fluttu þeir orðið.20Nokkrir þeirra voru frá Kýpur og Kýrene, og er þeir komu til Antíokkíu, tóku þeir einnig að tala til Grikkja og boða þeim fagnaðarerindið um Drottin Jesú.21Og hönd Drottins var með þeim, og mikill fjöldi tók trú og sneri sér til Drottins.22Og fregnin um þá barst til eyrna safnaðarins í Jerúsalem, og þeir sendu Barnabas til Antíokkíu.23Þegar hann kom og sá verk Guðs náðar, gladdist hann, og hann áminnti alla um að halda sér fast við Drottin af öllu hjarta.24Því hann var góður maður, fullur af heilögum anda og trú. Og mikill fjöldi manna gafst Drottni.25Þá fór hann til Tarsus að leita Sál uppi.26Þegar hann hafði fundið hann, fór hann með hann til Antíokkíu. Þeir voru síðan saman heilt ár í söfnuðinum og kenndu fjölda fólks. Í Antíokkíu voru lærisveinarnir fyrst kallaðir kristnir.27Á þessum dögum komu spámenn frá Jerúsalem til Antíokkíu.28Einn þeirra, Agabus að nafni, steig fram, og af gift andans sagði hann fyrir, að mikil hungursneyð mundi koma yfir alla heimsbyggðina. Kom það fram á dögum Kládíusar.29En lærisveinarnir samþykktu þá, að hver þeirra skyldi eftir efnum senda nokkuð til hjálpar bræðrunum, sem bjuggu í Júdeu.30Þetta gjörðu þeir og sendu það til öldunganna með þeim Barnabasi og Sál.

11.1 Söfnuðurnir Post 1.15+
11.3 Eta með óumskornum Post 10.28; Gal 2.12
11.5-12 Pétur sér sýn Post 10.9-20
11.6 Sbr Post 10.12
11.12 Hiklaust sbr Post 10.20; 15.9 – urðu samferða Post 10.23,45
11.13 Sent eftir Pétri Post 10.3-5,22,30-32
11.14 Mun mæla til þín Post 10.22 – þú og allt heimili þitt Post 16.15,31-32; 18.8
11.15 Andinn kom yfir þá Post 10.44 – eins og okkur Post 2.4
11.16 Orð Drottins Post 1.5
11.17 Taka trú Post 10.43 – standa gegn … Post 10.47
11.18 Einnig heiðingjunum sbr Post 15.11 – snúa sér til og … líf Post 13.48; 14.27
11.19 Dreifast og boða orðið Post 8.1-4 – Kýpur Post 4.36; 21.26 – Antíokkía Post 13.1-3; 14.26-28; 15.35-36; 18.22
11.20 Töluðu einnig til Grikkja Jóh 7.35
11.21 Söfnuðurinn vex Post 2.41+
11.22 Fréttist til Jerúsalem Post 8.14; 11.1 – sendi Barnabas Post 4.36+ ; 8.14; 9.32
11.23 Halda sér við Drottin Post 13.43; 14.22
11.24 Fullur af heilögum anda og trú Post 6.5 – söfnuðurinn vex Post 2.41+
11.25 Sál í Tarsus Post 9.30
11.26 Söfnuurinn Post 5.11+ – kristnir Post 26.28; 1Pét 4.16 – lærisveinarnir Post 6.1+ ; sbr 1.15; 2.44; 9.2,13
11.27 Spámenn Post 13.1; 15.32; 19.6; 21.9-10; sbr 2.18
11.28 Agabus Post 21.10
11.30 Öldungarnir 1) í Gyðingdómi Post 4.5,8,23; 23.14; 25.15 2) í kirkjunni Post 14.23; 15.2,4,6 o.fl.; 16.4; 20.17 – Páll fer til Jerúsalem Post 9.26-30; sbr Post 12.25; 15.4; Gal 1.18; 2.1