1Fyrir því skalt þú elska Drottin Guð þinn og varðveita boðorð hans, lög, ákvæði og skipanir alla daga.2Viðurkennið í dag því að ekki á ég orðastað við börn yðar, sem eigi hafa þekkt það né séð, viðurkennið ögun Drottins Guðs yðar, mikilleik hans, hina sterku hönd hans og útréttan armlegg hans,3tákn hans og verk, sem hann gjörði í Egyptalandi á Faraó Egyptalandskonungi og öllu landi hans,4hversu hann fór með herlið Egypta, hesta þeirra og vagna, hversu hann lét vötn Sefhafsins flæða yfir þá, er þeir veittu yður eftirför, og tortímdi þeim fram á þennan dag,5og hversu hann gjörði til yðar í eyðimörkinni allt til þess er þér komuð hingað,6og hversu hann fór með Datan og Abíram, sonu Elíabs Rúbenssonar, hversu jörðin lauk upp munni sínum og svalg þá mitt á meðal allra Ísraelsmanna, ásamt fjölskyldum þeirra og tjöldum og öllum lifandi skepnum, sem voru í fylgd með þeim.7Því að augu yðar hafa séð öll hin miklu verk, sem Drottinn hefir gjört.8Fyrir því skuluð þér varðveita allar þær skipanir, sem ég legg fyrir þig í dag, til þess að þér verðið sterkir, komist inn í og fáið til eignar land það, er þér haldið nú yfir til, til þess að taka það til eignar,9og til þess að þér megið lifa langa ævi í landinu, sem Drottinn sór feðrum yðar að gefa þeim og niðjum þeirra, landi, sem flýtur í mjólk og hunangi.10Landið sem þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar, það er ekki eins og Egyptaland, þaðan sem þér fóruð, þar sem þú sáðir sæði þínu og vökvaðir landið með fæti þínum eins og kálgarð,11heldur er land það, er þér haldið nú yfir til, til þess að taka það til eignar, fjallaland og dala, og drekkur vatn af himnum þegar rignir,12land, sem Drottinn Guð þinn annast. Stöðuglega hvíla augu Drottins Guðs þíns yfir því frá ársbyrjun til ársloka.13Ef þér hlýðið skipunum mínum trúlega, þeim er ég legg fyrir yður í dag: að elska Drottin Guð yðar, og þjóna honum af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar,14þá mun ég gefa landi yðar regn á réttum tíma, haustregn og vorregn, svo að þú megir hirða korn þitt, aldinlög þinn og olíu þína.15Þá mun ég og láta gras spretta í högum þínum handa skepnum þínum, svo að þú megir eta og saddur verða.16Gætið yðar, að hjarta yðar láti ekki tælast og þér víkið ekki af leið og dýrkið aðra guði og fallið fram fyrir þeim,17ella mun reiði Drottins upptendrast í gegn yður, og hann mun loka himninum, svo að eigi komi regn og jörðin gefi eigi ávöxt sinn, og þér munuð skjótlega eyðast úr landinu góða, sem Drottinn gefur yður.18Fyrir því skuluð þér leggja þessi orð mín á hjarta yðar og huga, og þér skuluð binda þau til merkis á hönd yðar og hafa þau sem minningarbönd á milli augna yðar.19Og þér skuluð kenna þau börnum yðar með því að tala um þau, þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú fer á fætur.20Og þú skalt skrifa þau á dyrastafi húss þíns og á borgarhlið þín,21til þess að þér og börn yðar megið lifa í landinu, sem Drottinn sór feðrum yðar að gefa þeim, svo lengi sem himinn er yfir jörðu.22Ef þér varðveitið kostgæfilega allar þessar skipanir, sem ég legg fyrir yður að halda: að elska Drottin Guð yðar, að ganga ávallt á hans vegum og halda yður fast við hann,23þá mun Drottinn stökkva burt undan yður öllum þessum þjóðum, og þér munuð leggja undir yður þjóðir, sem eru stærri og voldugri en þér.24Hver sá staður, er þér stígið fæti á, skal verða yðar eign. Frá eyðimörkinni allt til Líbanon, frá fljótinu, Efratfljótinu, allt til vesturhafsins skal land yðar ná.25Enginn mun standast fyrir yður. Ótta við yður og skelfingu mun Drottinn Guð yðar láta koma yfir hvert það land, er þér stígið fæti á, eins og hann hefir heitið yður.26Sjá, ég legg fyrir yður í dag blessun og bölvun:27blessunina, ef þér hlýðið skipunum Drottins Guðs yðar, sem ég býð yður í dag,28en bölvunina, ef þér hlýðið ekki skipunum Drottins Guðs yðar og víkið af þeim vegi, sem ég býð yður í dag, til þess að elta aðra guði, sem þér eigi hafið þekkt.29Þegar Drottinn Guð þinn leiðir þig inn í landið, sem þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar, þá skalt þú leggja blessunina á Garísímfjall og bölvunina á Ebalfjall.30En þau eru hinumegin Jórdanar, vestanvert við sólarlagsveginn, í landi Kanaanítanna, þeirra er búa á sléttlendinu, gegnt Gilgal, hjá Mórelundi.31Þér farið nú yfir Jórdan til þess að komast inn í og taka til eignar landið, sem Drottinn Guð yðar gefur yður, og þér munuð fá það til eignar og setjast að í því.32Gætið þess þá að halda öll þau lög og ákvæði, sem ég legg fyrir yður í dag.

11.1 Elska Guð 5Mós 5.10+
11.2 Máttugu hönd 5Mós 4.34+
11.3 Tákn Guðs 2Mós 7-12
11.4 Herlið Egypta 2Mós 14.23-30; 15; Slm 106.11
11.6 Datan og Abíram 4Mós 16
11.7 Sáuð þið 5Mós 29.2-3; sbr 11.2
11.8 Boðin 5Mós 4.2+ ; 5.31+ – land 5Mós 1.21+
11.9 Fyrirheitna landið 5Mós 1.8+ – langlífi 4.26+
11.11 Engin vatnsekla 5Mós 8.7
11.13 Skipanirnar 5Mós 4.2+ – elska Guð 5Mós 5.10+ – af öllu hjarta 5Mós 4.29+
11.14 Regn 5Mós 28.12; 1Kon 18.1,45; Esk 34.26; Jl 2.23; Am 4.7
11.15 Eta og verða mettur 5Mós 6.11+
11.16 Aðrir guðir 5Mós 6.14+
11.17 Akurinn ekkert gefa 3Mós 26.20 – gott land 5Mós 1.25+
11.19 Kenna börnunum 2Mós 10.2+
11.20 Á dyrastafi 5Mós 6.9
11.21 Fyrirheitna landið 5Mós 1.8+ – langlífi 5Mós 4.26+
11.22 Varðveita og halda 5Mós 5.1+ – boð 5Mós 4.2+ – ; 5.31+ – halda sér fast við Guð 5Mós 10.20+
11.23 Ryðja burt þjóðum 5Mós 4.38+
11.24 Staður Jós 1.3
11.25 Ógn og skelfing 5Mós 2.25
11.26 Blessun og bölvun 5Mós 28; 30.19
11.27 Boð 5Mós 4.2+
11.28 Aðrir guðir 5Mós 6.14+
11.29 Land til eignar 5Mós 1.21+ – Garísímfjall og Ebalfjall 5Mós 27.11-13
11.31 Landið, sem Drottinn gefur 5Mós 3.20+
11.32 Fylgja lög 5Mós 5.1+