1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð.2Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.3Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.4Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. Sela5Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!6Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!7Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,8heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.9Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.10En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.11Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.

75.1 Asaf Slm 50+
75.2 Segja frá Heb 2.12
75.3 Guð dæmir réttvíslega Slm 9.9; 67.5; 96.10; sbr Slm 35.24; 1Pét 2.23
75.4 Jarðskjálfti sbr Slm 46.3-4 – stoðir jarðarinnar 1Sam 2.8; sbr Slm 104.5; Job 26.7
75.5-6 Hrokafullir aðvaraðir 1Sam 2.3
75.8 Guð dæmir Slm 50.6+ – hann niðurlægir, upphefur 1Sam 2.4-8; Esk 21.31; Lúk 1.51-54
75.9 Bikar (dómsins) Slm 11.6; Jer 25.15-17+ ; sbr Slm 60.5; Ób 16
75.10 Lofsyngja Guði Slm 147.7+