1Heyrið þetta, þér prestar! Takið eftir, þér Ísraelsmenn! Hlýð þú á, konungs hús! Þér áttuð að framfylgja réttlæti, en eruð orðnir snara fyrir Mispa og útþanið net á Tabor.2Þeir grófu djúpa gröf fráhvarfsins, en ég mun refsa þeim öllum.3Ég þekki Efraím, og Ísrael getur ekki dulist fyrir mér. Já, nú hefir þú drýgt hór, Efraím, Ísrael saurgað sig.4Verk þeirra leyfa þeim eigi að snúa aftur til Guðs þeirra, því að hórdómsandi býr í þeim, og Drottin þekkja þeir ekki.5En Ísraels tign mun vitna í gegn þeim, og Ísrael og Efraím munu steypast vegna misgjörðar þeirra. Júda mun og steypast með þeim.6Þegar þeir þá koma með sauði sína og naut til þess að leita Drottins, þá munu þeir ekki finna hann, hann hefir sagt sig lausan við þá.7Drottni hafa þeir verið ótrúir, því að þeir hafa getið óskilgetin börn. Nú skal tunglkoman eyða þeim og ekrum þeirra.8Þeytið lúðurinn í Gíbeu og básúnuna í Rama! Æpið heróp í Betaven! Óvinirnir á hælum þér, Benjamín!9Efraím skal verða að auðn á degi hirtingarinnar. Ísraels ættkvíslum boða ég áreiðanlega hluti.10„Höfðingjar Júda eru líkir þeim, sem færa landamerki úr stað; yfir þá vil ég úthella reiði minni eins og vatni.“11Í Efraím er rétturinn ofríki borinn og fótum troðinn, því að honum þóknaðist að elta fánýt goð.12Því varð ég sem mölur Efraím og sem nagandi ormur Júda húsi.13Er Efraím sá sjúkdóm sinn og Júda mein sitt, þá leitaði Efraím til Assýríu og sendi til stórkonungsins. En hann megnar ekki að lækna yður né að græða mein yðar,14því að ég mun verða eins og dýrið óarga fyrir Efraím og eins og ungt ljón Júda húsi. Ég, ég mun sundurrífa og fara burt, bera burt bráðina, án þess að nokkur bjargi.15Ég mun fara burt og hverfa aftur á minn stað, uns þeir kannast við afbrot sín og leita míns auglitis. Þegar að þeim þrengir, munu þeir snúa sér til mín.

5.1 Ábyrgjast réttin 5Mós 1.17; Mík 3.1 – Mispa 1Mós 31.49; Dóm 10.17; 11.11 – Taborfjall Dóm 4.6
5.2 Ég refsa öllum Jes 24.2; sbr Róm 3.23
5.4 Leyfa ekki Jer 13.23; Okv 27.22; sbr Matt 7.17 – hór Hós 1.2+ ; sbr Jóh 8.34 – þekkja Drottin ekki Hós 4.1+ ; sbr Ef 4.18
5.6 Leita Drottins án árangurs Am 8.11-12; Jóh 7.34
5.8 Heróp Jer 4.5; Jl 2.1
5.10 Júda Hós 1.7+ – landamerki 5Mós 19.14; 27.17
5.13 Leita til Assýríu 2Kon 15.19-20; Hós 7.11; 8.9; 12.2; sbr 14.4
5.14 Enginn bjargar Hós 2.12+
5.15 Snúa sér til Guðs Jer 29.13; Slm 78.34; sbr Hós 5.6; 10.12