1Höggormurinn var slægari en öll önnur dýr merkurinnar, sem Drottinn Guð hafði gjört. Og hann mælti við konuna: Er það satt, að Guð hafi sagt: Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum?2Þá sagði konan við höggorminn: Af ávöxtum trjánna í aldingarðinum megum við eta,3en af ávexti trésins, sem stendur í miðjum aldingarðinum, af honum, sagði Guð, megið þið ekki eta og ekki snerta hann, ella munuð þið deyja.4Þá sagði höggormurinn við konuna: Vissulega munuð þið ekki deyja!5En Guð veit, að jafnskjótt sem þið etið af honum, munu augu ykkar upp ljúkast, og þið munuð verða eins og Guð og vita skyn góðs og ills.6En er konan sá, að tréð var gott að eta af, fagurt á að líta og girnilegt til fróðleiks, þá tók hún af ávexti þess og át, og hún gaf einnig manni sínum, sem með henni var, og hann át.7Þá lukust upp augu þeirra beggja, og þau urðu þess vör, að þau voru nakin, og þau festu saman fíkjuviðarblöð og gjörðu sér mittisskýlur.8En er þau heyrðu til Drottins Guðs, sem var á gangi í aldingarðinum í kveldsvalanum, þá reyndi maðurinn og kona hans að fela sig fyrir Drottni Guði millum trjánna í aldingarðinum.9Drottinn Guð kallaði á manninn og sagði við hann: Hvar ertu?10Hann svaraði: Ég heyrði til þín í aldingarðinum og varð hræddur, af því að ég er nakinn, og ég faldi mig.11En hann mælti: Hver hefir sagt þér, að þú værir nakinn? Hefir þú etið af trénu, sem ég bannaði þér að eta af?12Þá svaraði maðurinn: Konan, sem þú gafst mér til sambúðar, hún gaf mér af trénu, og ég át.13Þá sagði Drottinn Guð við konuna: Hvað hefir þú gjört? Og konan svaraði: Höggormurinn tældi mig, svo að ég át.14Þá sagði Drottinn Guð við höggorminn: Af því að þú gjörðir þetta, skalt þú vera bölvaður meðal alls fénaðarins og allra dýra merkurinnar. Á kviði þínum skalt þú skríða og mold eta alla þína lífdaga.15Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess.16En við konuna sagði hann: Mikla mun ég gjöra þjáningu þína, er þú verður barnshafandi. Með þraut skalt þú börn fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér.17Og við manninn sagði hann: Af því að þú hlýddir röddu konu þinnar og ást af því tré, sem ég bannaði þér, er ég sagði: Þú mátt ekki eta af því, þá sé jörðin bölvuð þín vegna. Með erfiði skalt þú þig af henni næra alla þína lífdaga.18Þyrna og þistla skal hún bera þér, og þú skalt eta jurtir merkurinnar.19Í sveita andlitis þíns skalt þú neyta brauðs þíns, þangað til þú hverfur aftur til jarðarinnar, því að af henni ert þú tekinn. Því að mold ert þú og til moldar skalt þú aftur hverfa!20Og maðurinn nefndi konu sína Evu, því að hún varð móðir allra, sem lifa.21Og Drottinn Guð gjörði manninum og konu hans skinnkyrtla og lét þau klæðast þeim.22Drottinn Guð sagði: Sjá, maðurinn er orðinn sem einn af oss, þar sem hann veit skyn góðs og ills. Aðeins að hann rétti nú ekki út hönd sína og taki einnig af lífsins tré og eti, og lifi eilíflega!23Þá lét Drottinn Guð hann í burt fara úr aldingarðinum Eden til að yrkja jörðina, sem hann var tekinn af.24Og hann rak manninn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð og loga hins sveipanda sverðs til að geyma vegarins að lífsins tré.

3.1 Höggormurinn SSal 2.24; Jóh 8.44+ ; Opb 20.2
3.5 Eins og Guð 1Mós 3.22; sbr Jes 14.14; Esk 28.2; 2Þess 2.4
3.6 Freisting Jak 1.13-15
3.8 Blygðun 2Sam 10.4-5; Opb 3.18; 16.15
3.13 Höggormurinn tældi mig 2Kor 11.13; 1Tím 2.14
3.14 Eta mold Jes 49.23; Mík 7.17
3.15 Fjandskapur Opb 12.17
3.16 Með þraut fæða 1Mós 35.16-18; Jóh 16.21+
3.17 Akurlendið bölvað 1Mós 4.11; 5.29; Hós 4.3; Róm 8.20; sbr 1Mós 8.21 – með erfiði hafa viðurværi 1Mós 4.12; Préd 2.22-23
3.18 Þyrnar og þistlar Heb 6.8
3.19 Þú ert mold sbr 1Mós 2.7+ – til moldar hverfa Slm 90.3; Job 3
3.22 Einn af oss 1Mós 3.5+ – gott og illt, lífsins tré 1Mós 2.9+
3.23 Eden 1Mós 2.8+