1Ó, að þú sundurrifir himininn og færir ofan, svo að fjöllin nötruðu fyrir augliti þínu eins og þegar eldur kveikir í þurru limi eða þegar eldur kemur vatni til að vella, til þess að gjöra óvinum þínum kunnugt nafn þitt, svo að þjóðirnar mættu skjálfa fyrir augliti þínu,2er þú framkvæmdir hræðilega hluti, sem vér gátum eigi vænst eftir. Þú fórst ofan, fjöllin nötruðu fyrir augliti þínu.3Frá alda öðli hefir enginn haft spurn af eða heyrt, né auga séð nokkurn Guð nema þig, þann er gjöri slíkt fyrir þá, er á hann vona.4Þú kemur í móti þeim er gjöra með gleði það, sem rétt er, þeim er minnast þín á vegum þínum. Sjá, þú reiddist, og vér urðum brotlegir, yfir tryggðrofi voru, og vér urðum sakfallnir.5Vér urðum allir sem óhreinn maður, allar dyggðir vorar sem saurgað klæði. Vér visnuðum allir sem laufblað, og misgjörðir vorar feyktu oss burt eins og vindur.6Enginn ákallar nafn þitt, enginn herðir sig upp til þess að halda fast við þig, því að þú hefir byrgt auglit þitt fyrir oss og gefið oss á vald misgjörðum vorum.7En nú, Drottinn! Þú ert faðir vor! Vér erum leirinn, og þú ert sá, er myndar oss, og handaverk þín erum vér allir!8Reiðst eigi, Drottinn, svo stórlega, og minnstu eigi misgjörða vorra eilíflega. Æ, lít þú á: Vér erum allir þitt fólk.9Þínar heilögu borgir eru orðnar að eyðimörk. Síon er orðin að eyðimörk, Jerúsalem komin í auðn.10Hið heilaga og veglega musteri vort, þar sem feður vorir vegsömuðu þig, er brunnið upp til kaldra kola, og allt það, sem oss var dýrmætt, er orðið að rústum.11Hvort fær þú, Drottinn, leitt slíkt hjá þér? Getur þú þagað og þjáð oss svo stórlega?

64.1 Eldur Jes 10.16-17
64.3 Enginn hefur hlustað 5Mós 4.32 – né séð 1Kor 2.9 – neinn Guð Jes 45.5 – er kemur til hjálpar Jes 45.20; 46.7; BJer 14.28 o.fl. – vona á Drottinn Jes 30.18; Slm 9.11+ ; 55.24+
64.4 Vega þinna Jer 6.16; 18.15; Slm 139.24
64.5 Sem laufblað Jes 1.30; sbr Jes 40.6+
64.6 Enginn sbr Jes 41.28+ – huldir auglit þitt Jes 54.8+ – vegna synda vorra Jes 59.2
64.7 Faðir vor Jes 63.16+ – leir Jes 45.9+ – mótar oss Jes 27.11; 43.1+ ; 1Mós 2.7; Slm 103.14
63.8 Minnstu ekki Slm 25.7; 130.3 – þjóð þín Jes 63.11
64.10 Musterið brunnið Jer 52.13; Hlj 2.4; 2Kro 36.19 – og rænt Hlj 1.10
64.11 Hljóður Jes 42.14+