1Eftir þetta sá ég fjóra engla, er stóðu á fjórum skautum jarðarinnar. Þeir héldu fjórum vindum jarðarinnar, til þess að eigi skyldi vindur blása yfir jörðina né hafið né yfir nokkurt tré.2Og ég sá annan engil stíga upp í austri. Hann hélt á innsigli lifanda Guðs og hrópaði hárri röddu til englanna fjögurra, sem gefið var vald til að granda jörðinni og hafinu,3og sagði: Vinnið ekki jörðinni grand og ekki heldur hafinu né trjánum, þar til er vér höfum sett innsigli á enni þjóna Guðs vors.4Og ég heyrði tölu þeirra, sem merktir voru innsigli, hundrað fjörutíu og fjórar þúsundir af öllum ættkvíslum Ísraelssona voru merktar innsigli.5Af Júda ættkvísl voru tólf þúsund merkt innsigli, af Rúbens ættkvísl tólf þúsund, af Gaðs ættkvísl tólf þúsund,6af Assers ættkvísl tólf þúsund, af Naftalí ættkvísl tólf þúsund, af Manasse ættkvísl tólf þúsund,7af Símeons ættkvísl tólf þúsund, af Leví ættkvísl tólf þúsund, af Íssakars ættkvísl tólf þúsund,8af Sebúlons ættkvísl tólf þúsund, af Jósefs ættkvísl tólf þúsund, af Benjamíns ættkvísl tólf þúsund menn merktir innsigli.9Eftir þetta sá ég, og sjá: Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum. Þeir stóðu frammi fyrir hásætinu og frammi fyrir lambinu, skrýddir hvítum skikkjum, og höfðu pálmagreinar í höndum.10Og þeir hrópa hárri röddu: Hjálpræðið heyrir til Guði vorum, sem í hásætinu situr, og lambinu.11Allir englarnir stóðu kringum hásætið og öldungana og verurnar fjórar. Og þeir féllu fram fyrir hásætinu á ásjónur sínar, tilbáðu Guð12og sögðu: Amen, lofgjörðin og dýrðin, viskan og þakkargjörðin, heiðurinn og mátturinn og krafturinn sé Guði vorum um aldir alda. Amen.13Einn af öldungunum tók þá til máls og sagði við mig: Þessir, sem skrýddir eru hvítu skikkjunum, hverjir eru þeir og hvaðan eru þeir komnir?14Og ég sagði við hann: Herra minn, þú veist það. Hann sagði við mig: Þetta eru þeir, sem komnir eru úr þrengingunni miklu og hafa þvegið skikkjur sínar og hvítfágað þær í blóði lambsins.15Þess vegna eru þeir frammi fyrir hásæti Guðs og þjóna honum dag og nótt í musteri hans, og sá, sem í hásætinu situr, mun tjalda yfir þá.16Eigi mun þá framar hungra og eigi heldur framar þyrsta og eigi mun heldur sól brenna þá né nokkur hiti.17Því að lambið, sem er fyrir miðju hásætinu, mun vera hirðir þeirra og leiða þá til vatnslinda lífsins. Og Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra.

7.1 Fjögur skaut jarðar Esk 7.2; Matt 24.31 – fjórir vindar Jer 49.36; Esk 37.9; Sak 6.5; Dan 7.2
7.2 Innsigli Guðs Esk 9.4-6; Opb 3.12; 9.4; 22.4; sbr 2Kor 1.22
7.4 144.000 Opb 14.1-3
7.5 Júda ættkvísl Opb 5.5+
7.9 Skrýddur hvítu Opb 3.4+
7.11 Öldungarnir (24) Opb 4.4,10; 11.16; 19.4
7.14 Þrengingin mikla Dan 12.1; Matt 24.21; Mrk 13.19
7.15 Hásæti Guðs Opb 4.2+ – musteri Guðs Opb 3.12; 11.1 – tjaldbúð Guðs 2Mós 40; Jes 4.5-6
7.16-17 Sbr Jes 49.10 – hirðir Slm 23.1; Esk 34.23; Jóh 10.11,14 – vatnslindir lífsins Slm 23.2; Jes 49.10; Jer 2.13; Jóh 4.14 – Guð þerrar hvert tár Jes 25.8; 65.19; Opb 21.4