1Eftir þetta fór Jesús um Galíleu. Hann vildi ekki fara um Júdeu, sökum þess að Gyðingar sátu um líf hans.2Nú fór að hátíð Gyðinga, laufskálahátíðin.3Þá sögðu bræður hans við hann: Flyt þig héðan og farðu til Júdeu, til þess að lærisveinar þínir sjái líka verkin þín, sem þú gjörir.4Því enginn starfar í leynum, ef hann vill verða alkunnur. Fyrst þú vinnur slík verk, þá opinbera sjálfan þig heiminum.5Því jafnvel bræður hans trúðu ekki á hann.6Jesús sagði við þá: Minn tími er ekki enn kominn, en yður hentar allur tími.7Heimurinn getur ekki hatað yður. Mig hatar hann, af því ég vitna um hann, að verk hans eru vond.8Þér skuluð fara upp eftir á hátíðina. Ég fer ekki til þessarar hátíðar, því minn tími er ekki enn kominn.9Þetta sagði hann þeim og var kyrr í Galíleu.10Þegar bræður hans voru farnir upp eftir til hátíðarinnar, fór hann samt líka upp eftir, ekki svo menn vissu, heldur nánast á laun.11Gyðingar voru að leita að honum á hátíðinni og spurðu, hvar hann væri.12Manna á meðal var margt um hann talað. Sumir sögðu: Hann er góður, en aðrir sögðu: Nei, hann leiðir fjöldann í villu.13Þó talaði enginn opinskátt um hann af ótta við Gyðinga.14Er hátíðin var þegar hálfnuð, fór Jesús upp í helgidóminn og tók að kenna.15Gyðingar urðu forviða og sögðu: Hvernig hefur þessi maður orðið lærður og hefur þó ekki fræðslu notið?16Jesús svaraði þeim: Kenning mín er ekki mín, heldur hans, er sendi mig.17Sá sem vill gjöra vilja hans, mun komast að raun um, hvort kenningin er frá Guði eða ég tala af sjálfum mér.18Sá sem talar af sjálfum sér, leitar eigin heiðurs, en sá sem leitar heiðurs þess, er sendi hann, er sannorður og í honum ekkert ranglæti.19Gaf Móse yður ekki lögmálið? Samt heldur enginn yðar lögmálið. Hví sitjið þér um líf mitt?20Fólkið ansaði: Þú ert haldinn illum anda. Hver situr um líf þitt?21Jesús svaraði þeim: Eitt verk gjörði ég, og þér undrist það allir.22Móse gaf yður umskurnina hún er að vísu ekki frá Móse, heldur feðrunum og þér umskerið mann jafnvel á hvíldardegi.23Fyrst maður er umskorinn á hvíldardegi, til þess að lögmál Móse verði ekki brotið, hví reiðist þér mér, að ég gjörði manninn allan heilan á hvíldardegi?24Dæmið ekki eftir útliti, dæmið réttlátan dóm.25Þá sögðu nokkrir Jerúsalembúar: Er þetta ekki sá, sem þeir sitja um að lífláta?26Og nú er hann að tala á almannafæri, og þeir segja ekkert við hann. Skyldu nú höfðingjarnir hafa komist að raun um, að hann sé Kristur?27Nei, vér vitum, hvaðan þessi maður er. Þegar Kristur kemur, veit enginn, hvaðan hann er.28Jesús var að kenna í helgidóminum, og nú kallaði hann: Bæði þekkið þér mig og vitið hvaðan ég er. Þó er ég ekki kominn af sjálfum mér. En sá er sannur, sem sendi mig, og hann þekkið þér ekki.29Ég þekki hann, því ég er frá honum og hann sendi mig.30Nú ætluðu þeir að grípa hann, en enginn lagði hendur á hann, því stund hans var enn ekki komin.31En af alþýðu manna tóku margir að trúa á hann og sögðu: Mun Kristur gjöra fleiri tákn, þegar hann kemur, en þessi maður hefur gjört?32Farísear heyrðu, að fólk var að skrafa þetta um hann, og æðstu prestar og farísear sendu þjóna að taka hann höndum.33Þá sagði Jesús: Enn verð ég hjá yður skamma stund, og þá fer ég aftur til þess, sem sendi mig.34Þér munuð leita mín og eigi finna. Þér getið ekki komist þangað sem ég er.35Þá sögðu Gyðingar sín á milli: Hvert skyldi hann ætla að fara, svo að vér finnum hann ekki? Hann ætlar þó ekki að fara til Gyðinga, sem dreifðir eru meðal Grikkja og kenna Grikkjum?36Hvað var hann að segja: Þér munuð leita mín og eigi finna, og þér getið ekki komist þangað sem ég er?37Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki.38Sá sem trúir á mig, frá hjarta hans munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir.39Þarna átti hann við andann, er þeir skyldu hljóta, sem á hann trúa. Því enn var andinn ekki gefinn, þar eð Jesús var ekki enn dýrlegur orðinn.40Þá sögðu nokkrir úr mannfjöldanum, sem hlýddu á þessi orð: Þessi er sannarlega spámaðurinn.41Aðrir mæltu: Hann er Kristur. En sumir sögðu: Mundi Kristur þá koma frá Galíleu?42Hefur ekki ritningin sagt, að Kristur komi af kyni Davíðs og frá Betlehem, þorpinu þar sem Davíð var?43Þannig greindi menn á um hann.44Nokkrir þeirra vildu grípa hann, en þó lagði enginn hendur á hann.45Nú komu þjónarnir til æðstu prestanna og faríseanna, sem sögðu við þá: Hvers vegna komuð þér ekki með hann?46Þjónarnir svöruðu: Aldrei hefur nokkur maður talað þannig.47Þá sögðu farísearnir: Létuð þér þá einnig leiðast afvega?48Ætli nokkur af höfðingjunum hafi farið að trúa á hann, eða þá af faríseum?49Þessi almúgi, sem veit ekkert í lögmálinu, hann er bölvaður!50Nikódemus, sem kom til hans fyrrum og var einn af þeim, segir við þá:51Mundi lögmál vort dæma mann, nema hann sé yfirheyrður áður og að því komist, hvað hann hefur aðhafst?52Þeir svöruðu honum: Ert þú nú líka frá Galíleu? Gáðu að og sjáðu, að enginn spámaður kemur úr Galíleu.53Nú fór hver heim til sín.

7.1 Sátu um líf Jesú Jóh 5.18+
7.2 Laufskálahátíðin 3Mós 23.34; 4Mós 29.12-39; 5Mós 16.13-16
7.3 Bræður hans Mrk 3.31+
7.4 Opinbera sjálfan sig Jóh 2.18; 4.48; 6.30; sbr Matt 12.38-40
7.6 Enn ekki kominn Jóh 2.4+
7.7 Hataður Jóh 15.18 – verk hans eru vond Jóh 3.19-21
7.11 Leituðu að Jesú Jóh 11.56
7.13 Af ótta við yfirvöld Jóh 9.22; 19.38; 20.19
7.15 Lærður Matt 13.54; Lúk 2.47
7.16 Kenning Jesú frá Guði Jóh 3.11-13,31-35; 5.19-23; 12.49; 14.10
7.18 Leita eigin heiðurs Jóh 8.50
7.19 Móse gaf lögmálið Jóh 1.17 – halda ekki lögmálið Post 7.53; Róm 2.21-24 – setið um líf Jesú Jóh 5.18+
7.20 Haldinn illum anda Mrk 3.22+
7.21 Eitt verk Jóh 5.16
7.22 Umskurn 1Mós 17.10-13; 3Mós 12.3; Róm 4.11
7.23 Lækning á hvíldardegi Jóh 5.8-9,16; sbr Matt 12.1+
7.24 Ekki eftir útliti Jes 11.3; Jóh 8.15 – dæmið réttlátan dóm 3Mós 19.15; Jes 11.4
7.25 Lífláta Jóh 5.18+
7.27 Vitum hvaðan hann er Jóh 9.29
7.29 Ég þekki hann Jóh 8.55; 17.25
7.30 Stundin enn ekki komin Jóh 2.4+ – ætluðu að grípa Jóh 7.44
7.31 Margir tóku að trúa á hann Jóh 2.23; 8.30; 10.42; 11.45; 12.11,42; sbr 12.18-19
7.33 Enn hjá ykkur skamma stund Jóh 13.33; 16.16-19; sbr 9.10 – til þess, sem sendi mig Jóh 16.5; 17.18 – brottför Jesú Jóh 8.14,21-22; 13.3,36; 14.4-5,28; 16.5,10; 17.11,13
7.34 Leita mín Jóh 8.21; 13.33 – þið getið ekki komist þangað sem ég er Jóh 13.36; sbr 17.24
7.35 Kenna Grikkjum Jóh 4.35-38; 12.20-24
7.37 Síðasti dagur hátíðarinnar 3Mós 23.36 – komi og drekki Jóh 4.10,14
7.38 Lækir lifandi vatns Okv 18.4; Jes 58.11; Sak 14.8
7.39 Andinn Jóh 16.7; 20.22; Post 2.4 – Jesús dýrlegur 1) á jarðvistardögum Jesú Jóh 1.14; 2.11; 11.4; 2) á krossinum Jóh 12.16,23,28; 13.31-23; 17.5
7.40 Spámaðurinn Jóh 6.14; Matt 21.11+
7.41 Hann er Kristur Jóh 4.29; Post 9.22 – frá Galíleu Jóh 7.52; sbr 1.46-47
7.42 Af kyni Davíðs 2Sam 7.12; Slm 89.4-5; Jer 23.5 – frá Betlehem Mík 5.1; Matt 2.5-6
7.43 Menn greindi á Jóh 9.16; 10.19; sbr 3.19-21
7.44 Vildu grípa hann Jóh 7.30
7.48 Nokkrir af höfðingjunum Jóh 12.42
7.50 Nikódemus Jóh 3.1-2; 19.39
7.51 Yfirheyra áður 5Mós 1.16
7.52 Enginn spámaður úr Galíleu Jóh 1.46; 7.41