1Sálmur eftir Davíð, þá er hann var í Júda-eyðimörk.2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.3Þannig hefi ég litast um eftir þér í helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,4því að miskunn þín er mætari en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi, hefja upp hendurnar í þínu nafni.6Sál mín mettast sem af merg og feiti, og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,7þá er ég minnist þín í hvílu minni, hugsa um þig á næturvökunum.8Því að þú ert mér fulltingi, í skugga vængja þinna fagna ég.9Sál mín heldur sér fast við þig, hægri hönd þín styður mig.10Þeir sem sitja um líf mitt sjálfum sér til glötunar, munu hverfa í djúp jarðar.11Þeir munu verða ofurseldir sverðseggjum, verða sjakölunum að bráð.12Konungurinn skal gleðjast yfir Guði, hver sá er sver við hann, skal sigri hrósa, af því að munni lygaranna hefir verið lokað.

63.1 Davíð í Júda-eyðimörk 1Sam 23.14
63.2 Þyrstir eftir þér Slm 42.3+ – í vatnslausu landi Slm 143.6
63.4 Miskunn þín Slm 17.7+
63.5 Ég lofa þig Slm 145.2 – hefja upp hendurnar (biðja) Slm 28.2+
63.6 Mettast Slm 36.9
63.8 Í skugga vængja þinn Slm 17.8+
63.9 Halda sér fast við Guð 5Mós 13.4 – styður mig Slm 18.36; Jes 41.10
63.12 Konungurinn gleðst Slm 21.2