1Eftir þetta vann Davíð sigur á Filistum og braut þá undir sig og tók tauma höfuðstaðarins úr höndum Filista.2Hann vann og sigur á Móabítum og mældi þá með vað, það er að segja, hann lét þá leggjast niður á jörðina og mældi tvo vaði til lífláts og eina vaðlengd til að halda lífi. Þannig urðu Móabítar skattskyldir þegnar Davíðs.3Davíð vann og sigur á Hadadeser Rehóbssyni, konungi í Sóba, þá er hann fór leiðangur til að ná aftur ríki við Efrat.4Vann Davíð af honum eitt þúsund og sjö hundruð riddara og tuttugu þúsundir fótgönguliðs. Lét Davíð skera sundur hásinarnar á öllum stríðshestunum og hélt aðeins hestum fyrir hundrað stríðsvagna eftir.5Og er Sýrlendingar frá Damaskus komu til liðs við Hadadeser, konung í Sóba, þá felldi Davíð tuttugu og tvö þúsund manns af Sýrlendingum.6Og Davíð setti landstjóra á Sýrlandi, því er kennt er við Damaskus, og urðu Sýrlendingar skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig veitti Drottinn Davíð sigur, hvert sem hann fór.7Davíð tók og hina gullnu skjöldu, er þjónar Hadadesers höfðu borið, og flutti þá til Jerúsalem.8Auk þess tók Davíð konungur afar mikið af eir í Beta og Berótaj, borgum Hadadesers.9Þegar Tóú, konungur í Hamat, frétti að Davíð hefði lagt að velli allan her Hadadesers,10þá sendi Tóú Hadóram son sinn á fund Davíðs konungs til þess að heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafði barist við Hadadeser og unnið sigur á honum því að Tóú átti í ófriði við Hadadeser, og hafði hann með sér gripi af silfri, gulli og eiri.11Gripina helgaði Davíð konungur einnig Drottni, ásamt silfri því og gulli, er hann hafði helgað frá öllum þeim þjóðum, er hann hafði undirokað:12frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filistum, Amalek og af herfangi Hadadesers Rehóbssonar, konungs í Sóba.13Davíð jók orðstír sinn, þá er hann sneri aftur og hafði unnið sigur á Sýrlendingum, með því að vinna sigur á Edómítum í Saltdalnum, átján þúsund manns.14Og hann setti landstjóra í Edóm. Um allt Edóm setti hann landstjóra, og þannig urðu allir Edómítar þegnar Davíðs. En Drottinn veitti Davíð sigur, hvert sem hann fór.15Davíð ríkti yfir öllum Ísrael og lét alla þjóð sína njóta laga og réttar.16Jóab Serújuson var fyrir hernum, og Jósafat Ahílúðsson var ríkisritari.17Sadók Ahítúbsson og Ahímelek Abjatarsson voru prestar og Seraja kanslari.18Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíðs voru prestar. 2S 9.-20. kap., 1 Kon 1.-2. kap.

8.1-14 Sigurvinningar Davíðs 1Kon 5.1
8.4 Skera á hásinar 1Mós 49.6; Jós 11.6-9 – hestar 5Mós 17.16; Jes 31.1; Mík 5.9; Slm 20.8
8.7 Gullskildingar 1Kon 10.16-17; 14.26-27; 2Kon 11.10
8.11 Helgigjafir 1Kon 7.51; 2Kon 12.19
8.13 Saltdalur Slm 60.2
8.15-18 Embættismenn 2Sam 20.23-25; 1Kon 4.1-6
8.15 Njóta réttar og réttlætis 1Kon 3.28; 10.9