1Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:2Hversu lengi ætlið þér að halda áfram þessu orðaskaki? Látið yður segjast, og því næst skulum vér talast við.3Hvers vegna erum vér metnir sem skepnur, orðnir heimskir í yðar augum?4Þú, sem tætir sjálfan þig sundur í reiði þinni, á jörðin þín vegna að fara í auðn og bjargið að færast úr stað sínum?5Ljós hins óguðlega slokknar, og logi elds hans skín ekki.6Ljósið myrkvast í tjaldi hans, og það slokknar á lampanum yfir honum.7Hans öflugu skref verða stutt, og ráðagjörð sjálfs hans steypir honum,8því að hann rekst í netið með fætur sína, og hann gengur í möskvunum.9Möskvi festist um hæl hans, lykkjan herðist að honum.10Snaran liggur falin á jörðinni, og gildran liggur fyrir honum á stígnum.11Skelfingar hræða hann allt um kring og hrekja hann áfram, hvar sem hann gengur.12Ógæfu hans tekur að svengja, og glötunin bíður búin eftir falli hans.13Hún tærir húð hans, og frumburður dauðans etur limu hans.14Hann er hrifinn burt úr tjaldi sínu, er hann treysti á, og það lætur hann ganga til konungs skelfinganna.15Í tjaldi hans býr það, sem eigi er hans, brennisteini er stráð yfir bústað hans.16Að neðan þorna rætur hans, að ofan visna greinar hans.17Minning hans hverfur af jörðunni, og nafn hans er ekki nefnt á völlunum.18Menn hrinda honum frá ljósinu út í myrkrið og reka hann burt af jarðríki.19Hann mun hvorki eiga börn né buru meðal þjóðar sinnar, og enginn, sem undan hefir komist, er í híbýlum hans.20Yfir skapadægri hans skelfast eftirkomendurnir, og hrylling grípur þá, er fyrr voru uppi.21Já, svo fer um bústaði hins rangláta og svo um samastað þess manns, sem eigi þekkir Guð.

18.5 Ljós guðleysingjans slokknar Job 18.18; Jer 25.10; Okv 13.9
18.7 Steypa honum Slm 27.2; Okv 4.12; sbr Slm 37.30-31
18.8 Net Job 19.6; 22.10; Slm 35.7-8; Okv 7.21-23
18.11 Ógnir Job 15.20+
18.15 Brennisteini verður stráð 1Mós 19.24; 5Mós 29.23; Opb 9.17-18
18.16 Greinar hans visna Dan 4.11,20
18.17 Minning hans verður afmáð Jes 14.20; Slm 9.6; Okv 10.7
18.19 Enga niðja, enga … Jes 14.22; Slm 37.28; sbr Sír 47.22