1Bræður heilagir! Þér eruð hluttakar himneskrar köllunar. Gefið því gætur að Jesú, postula og æðsta presti játningar vorrar.2Hann var trúr þeim, er hafði skipað hann, eins og Móse var það líka í öllu hans húsi.3En hann er verður meiri dýrðar en Móse, eins og sá, er húsið gjörði, á meiri heiður en húsið sjálft.4Sérhvert hús er gjört af einhverjum, en Guð er sá, sem allt hefur gjört.5Móse var að sönnu trúr í öllu hans húsi, eins og þjónn, til vitnisburðar um það, sem átti að verða talað,6en Kristur eins og sonur yfir húsi hans. Og hans hús erum vér, ef vér höldum djörfunginni og voninni, sem vér miklumst af.7Því er það, eins og heilagur andi segir: Ef þér heyrið raust hans í dag,8„þá forherðið ekki hjörtu yðar, eins og í uppreisninni á degi freistingarinnar á eyðimörkinni;“9þar sem feður yðar freistuðu mín og reyndu mig, þótt þeir fengju að sjá verkin mín í fjörutíu ár.10Þess vegna varð ég gramur kynslóð þessari og sagði: Án afláts villast þeir í hjörtum sínum. Þeir þekktu ekki vegu mína.11Og ég sór í bræði minni: Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.12Gætið þess, bræður, að enginn yðar búi yfir vondu vantrúar hjarta og falli frá lifanda Guði.13Áminnið heldur hver annan hvern dag, á meðan enn heitir í dag, til þess að enginn yðar forherðist af táli syndarinnar.14Því að vér erum orðnir hluttakar Krists, svo framarlega sem vér höldum staðfastlega allt til enda trausti voru, eins og það var að upphafi.15Sagt er: Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni16Hverjir voru þá þeir, sem heyrt höfðu og gjörðu þó uppreisn? Voru það ekki einmitt allir þeir, sem út höfðu farið af Egyptalandi fyrir tilstilli Móse?17Og hverjum var hann gramur í fjörutíu ár? Var það ekki þeim, sem syndgað höfðu og báru beinin á eyðimörkinni?18Og hverjum sór hann, að eigi skyldu þeir ganga inn til hvíldar hans, nema hinum óhlýðnu?19Vér sjáum, að sakir vantrúar fengu þeir eigi gengið inn.

3.1 Jesús æðsti prestur Heb 2.17+
3.2 Móse í húsi Guðs 4Mós 12.7
3.7-11 Slm 95.7-11
3.8 Massa og Meríba 2Mós 17.7
3.11-18 Njósnarmenn sendir til Kanaanlands 4Mós 13 – vantrú 4Mós 14.11; 5Mós 1.28; sbr 4Mós 14.21-23 – dóu á eyðimörkinni 4Mós 14.29,32; 1Kor 10.10