1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni:2Statt upp og gakk ofan í hús leirkerasmiðsins. Þar vil ég láta þig heyra orð mín!3Og ég gekk ofan í hús leirkerasmiðsins, og var hann að verki sínu við hjólið.4Mistækist kerið, sem hann var að búa til, þá bjó hann aftur til úr því annað ker, eins og leirkerasmiðinum leist að gjöra.5Þá kom orð Drottins til mín:6Get ég ekki farið með yður eins og þessi leirkerasmiður, þú Ísraels hús? segir Drottinn. Sjá, eins og leirinn í hendi leirkerasmiðsins, svo eruð þér í minni hendi, Ísraels hús.7Stundum hóta ég þjóð og konungsríki að uppræta það, umturna því og eyða því,8en snúi þjóðin, er ég hefi hótað þessu, sér frá vonsku sinni, þá iðrar mig hins illa, er ég hugði að gjöra henni.9En stundum heiti ég þjóð og konungsríki að byggja það og gróðursetja það,10en ef það gjörir það, sem illt er í mínum augum, svo að það hlýðir ekki minni raustu, þá iðrar mig þess góða, er ég hafði heitið að veita því.11Seg þú nú við Júdamenn og Jerúsalembúa á þessa leið: Svo segir Drottinn: Sjá, ég bý yður ógæfu og brugga ráð gegn yður. Snúið yður hver og einn frá sinni vondu breytni og temjið yður góða breytni og góð verk!12En þeir munu segja: Það er til einskis! Vér förum eftir vorum hugsunum og breytum hver og einn eftir þverúð síns vonda hjarta.13Svo segir Drottinn: Spyrjið meðal þjóðanna: Hefir nokkur heyrt slíkt? Mjög hryllilega hluti hefir mærin Ísrael í frammi haft.14Hvort hverfur snjór Líbanons af gnæfandi klettinum? Eða þrýtur uppvellandi vatnið, hið svala og niðandi?15Þjóð mín hefir gleymt mér. Fánýtum goðunum færa þeir reykelsisfórnir, og þeir hafa leitt þá í hrösun á vegum þeirra, gömlu götunum, svo að þeir ganga stigu, ólagðan veg.16Þeir gjöra land sitt að skelfingu, að eilífu háði, svo að hver sá, er þar fer um, skelfist og hristir höfuðið.17Eins og fyrir austanvindi mun ég tvístra þeim fyrir óvinunum, ég mun sýna þeim bakið, en ekki andlitið á þeirra glötunardegi.18Þeir sögðu: Komið, bruggum ráð gegn Jeremía, því að eigi mun prestana skorta kenning, spekingana ráð, né spámennina opinberun. Komið, vér skulum drepa hann með tungunni og engan gaum gefa orðum hans.19Gef mér gaum, Drottinn, og heyr tal andstæðinga minna.20Á að launa gott með illu, þar sem þeir hafa grafið mér gröf? Minnstu þess, hversu ég hefi staðið frammi fyrir þér til þess að tala máli þeirra, til þess að snúa þinni heiftarreiði frá þeim.21Ofursel því sonu þeirra hungrinu og fá þá sverðinu á vald, svo að konur þeirra verði barnlausar og ekkjur, og menn þeirra farist af drepsótt og æskumenn þeirra falli fyrir sverði í bardaga.22Lát neyðarkvein heyrast úr húsum þeirra, þegar þú lætur morðflokka skyndilega yfir þá koma, því að þeir hafa grafið gröf til að veiða mig í, og lagt snörur fyrir fætur mína.23En þú, Drottinn, þekkir öll fjörráð þeirra gegn mér. Fyrirgef eigi misgjörð þeirra og afmá ekki synd þeirra fyrir augliti þínu. Lát þá steypast fyrir þér, framkvæm það á þeim, þegar reiði þín brýst út.

18.3 Leirkerasmiðurinn Sír 38.29
18.6 Eins og leir 1Mós 2.7; Jes 64.7; Job 10.8-9; Sír 33.13
18.7 Uppræta Jer 1.10+
18.8 Drottinn iðrast Jer 26.3,13,19; 42.10 – hins góða 1Mós 6.6-7
18.11 Snúa til betri vegar Jer 7.3,5; 23.22; 25.5; 26.3; 35.15; 36.7; 2Kon 17.13; Sak 1.4
18.12 Til einskis Jer 2.25 – þverúð Jer 3.17+
18.13 Spyrjið Jer 2.10-11 – ódæði Jer 5.30+
18.15 Guð gleymdur Jer 2.32+ – fórnir Jer 1.16+ – fánýt goð Jer 2.8+,11+ – gömlu göturnar Jer 6.16+
18.16 Skelfing og háð Jer 19.8; 25.9; 29.18; 50.13; 51.37 – hrista höfuðið Slm 22.8+ ; sbr 44.15
18.17 Snúa í þá bakinu Jer 2.27
18.18 Ráðabrugg Jer 11.18+ – kenning prestanna 2Kon 12.3; Jes 2.3 – prestar og spámenn Jer 2.8; sbr Hlj 2.9-10 – ráðast á með eigin orðum Jer 9.3,8
18.19 Fyglstu með mér Jer 5.3
18.20 Gott með illu Slm 35.12+ – frammi fyrir Guði Jer 15.19+ – tala máli Jer 7.16+ – snúa heift þinni Slm 106.30
18.21 Ofurseldu þá ógæfunni Jer 17.18
18.22 Snörur Slm 9.16+
18.23 Þú veist Jer 12.3; Hab 1.13; Slm 35.22 – afmáðu ekki Neh 3.37; 6.14; Slm 109.14