1Öfunda ekki vonda menn og lát þig ekki langa til að vera með þeim,2því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum, og varir þeirra mæla ógæfu.3Fyrir speki verður hús reist, og fyrir hyggni verður það staðfast,4fyrir þekking fyllast forðabúrin alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.5Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill,6því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð, og þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.7Viskan er afglapanum ofviða, í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.8Þann sem leggur stund á að gjöra illt, kalla menn varmenni.9Syndin er fíflslegt fyrirtæki, og spottarinn er mönnum andstyggð.10Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi, þá er máttur þinn lítill.11Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts, og þyrm þeim, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.12Segir þú: Vér vissum það eigi, sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það, og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það og mun gjalda manninum eftir verkum hans.13Et þú hunang, son minn, því að það er gott, og hunangsseimur er gómi þínum sætur.14Nem á sama hátt speki fyrir sálu þína, finnir þú hana, er framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.15Sit eigi, þú hinn óguðlegi, um bústað hins réttláta og eyðilegg ekki heimkynni hans,16því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur aftur upp, en óguðlegir steypast í ógæfu.17Gleð þig eigi yfir falli óvinar þíns, og hjarta þitt fagni eigi yfir því að hann steypist,18svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki, og hann snúi reiði sinni frá honum til þín.19Reiðst ekki vegna illgjörðamanna, öfunda eigi óguðlega,20því að vondur maður á enga framtíð fyrir höndum, á lampa óguðlegra slokknar.21Son minn, óttastu Drottin og konunginn, samlaga þig ekki óróaseggjum,22því að ógæfa þeirra ríður að þegar minnst varir, og ófarir beggja hver veit um þær?23Þessir orðskviðir eru líka eftir spekinga. Hlutdrægni í dómi er ljót.24Þeim sem segir við hinn seka: Þú hefir rétt fyrir þér! honum formæla menn, honum bölvar fólk.25En þeim sem hegna eins og ber, mun vel vegna, yfir þá kemur ríkuleg blessun.26Sá kyssir á varirnar, sem veitir rétt svör.27Annastu verk þitt utan húss og ljúk því á akrinum, síðan getur þú byggt hús þitt.28Vertu eigi vottur gegn náunga þínum að ástæðulausu, eða mundir þú vilja svíkja með vörum þínum?29Seg þú ekki: Eins og hann gjörði mér, eins ætla ég honum að gjöra, ég ætla að endurgjalda manninum eftir verkum hans!30Mér varð gengið fram hjá akri letingja nokkurs og fram hjá víngarði óviturs manns.31Og sjá, hann var allur vaxinn klungrum, hann var alþakinn netlum, og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.32En ég varð þess var, veitti því athygli, sá það og lét mér það að kenningu verða:33Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,34þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.

24.1 Öfundaðu ekki Okv 3.31+
24.3 Reisa hús Okv 9.1; 14.1
24.6 Holl ráð Lúk 14.31
24.9 Spottarinn Okv 13.1+
24.11 Bjargaðu þeim VDan 1
24.12 Sá sem gaumgæfir hjörtun Okv 16.2+ – gjalda eftir verkum Okv 11.31+ ; Slm 62.13+
24.14 Framtíð Okv 23.18+
24.20 Hlutskipti ranglátra Okv 3.33+
24.23-24 Hlutdrægni í dómi Okv 18.5; 3Mós 19.15; Mík 3.9-12; sbr Jes 11.3-5; Gal 2.6
24.28 Vitna sbr Okv 6.19+
24.29 Makleg málagjöld Okv 24.12+
24.34 Hlutskipti letingjans Okv 6.11+